Dagrenning - 01.12.1953, Qupperneq 32
ADAM RUTHERFORD:
Fæðínfí Krísts
Grein þessi er einn kaflinn í bók Dr. Adam Rutherfords „Frelsari
heimsins", sem byrjaði að koma út í 45. hefti Dagrenningar, og er fram-
hald af því, sem þar birtist. Hér er gerð vísindaleg og sagnfræðileg til-
raun til að ákveða hvaða dagur sé hinn raunverulegi fæðingardagur Krists,
því það er almcnnt viðurkennt að hann hafi ekki fæðst í desember. Varpar
það að sjálfsögðu engum skugga á JÓLAHÁTÍÐINA sem haldin er til
MINNINGAR um fæðingu Frelsarans, frekar en það varpar engum skugga
á Páskahátíðina að hún ber sjaidnast upp á upprisudag Krists.
Þegar vér förum að kynna oss líf Krists
eins og það er sýnt í Pýramídanum, verðum
vér, auðvitað, að byrja á fæðingu hans. En
áður en vér reynum að ákveða fæðingardag
hans eftir tímatali Pýramídans, þurfum vér
að finna, hvar fæðing hans er sýnd í tákn-
málinu. Til þess að finna eftir táknmálinu,
hvernig og hvar fæðing Krists er sýnd, verð-
um vér að leita þess, sem bendir á þau skil-
yrði, er hann fæddist undir. Samkvæmt frá-
sögn Biblíunnar var hann syndlaus og full-
korninn, hins vegar fæddist hann á tilveru-
sviði ófullkominna manna. Enn fremur
fæddist hann sem ísraelsmaður í Gyðinga-
landi, á réttarsvæði Móse-laga. Hann var því
fæddur fullkominn maður og undir lögmál-
inu.
Eins og sýnt hefir verið fram á í fyrri bók-
um þessa flokks, tákna gangar Pýramídans
aldaferil vorn að hinu eilífa lokatakmarki,
sem táknað er með síðustu sölunum, fvrir
ofan alla ganga, þ. e. Konungssalnum og
Drottningarsalnum, er samsvara „nýjum
himni“ og „nýrri jörð“ í táknmáli Bibílunn-
ar, og sameiginlega mynda þeir „hinn nvja
heim“ eða „nýju skipan“, hið löngu fyrir-
heitna Guðsríki á jörðu, sem spámaðurinn
Daniel fullvissar oss urn að „aldrei muni
eytt verða“, heldur skuli það „standa“ að
eilífu. Táknmálið í Konungssalnum sýnir á
undurfagran hátt fullkomleik þeirra, sem
dveljast á hinum himnesku sviðum þessa
skipulags, en Drottningarsalurinn fullkomn-
un þá, er að lokum verður náð á jarðneska
sviðinu að afloknu 1000 ára endurreisnar-
tímabilinu, sem lýkur árið 2994 e. K., sam-
kvæmt aldakvarða Pýramídans og tímaspá-
dómurn Biblíunnar. Gólflína Drottningar-
salsins, sem táknar fullkomnun jarðheimsins,
er einkar vel til þess fallin, að sýna svið hinn-
ar mannlegu fullkomnunar.
Eins og rök vom leidd að í fyrstu bókinni,
táknar ofangangurinn, sem liggur niður að
Neðanjarðarsalnum og botngjánni hin
illu áhrifavöld „þessa vonda heims, sem vér
nú lifum í“, og afleiðingar þeirra, sem eru:
sorgir, synd, þjáningar og dauði. Hins vegar
sýnir Rrsti uppgangurinn með táknmáli og
mælikvarða ástand það og árabil, sem Biblíu-
fræðingar nefna tímabil lögmálsins forna,
30 DAGRENNING