Dagrenning - 01.12.1953, Side 33
er hófst á dögum Móse og endaði á dögum
Krists — tímann, sem ísraelsmenn í fyrir-
heitna landinu áttu þess kost, að öðlast liarn-
ingju og frið og lifa samkvæmt hinu guð-
lega lögmáli, sem þeim var gefið fyrir Móse
— en þeim mistókst í þessu efni. Þeir héldu
ekki, og gátu raunar ekki haldið, þetta lög-
mál svo hvergi skeikaði, ófullkomnir menn
eins og þeir voru. Kristur einn gat uppfyllt
lögmálið.
Það er þá hér í Pýramídanum undursam-
lega, sem oss eru sýndar hvorutveggju að-
stæðumar þegar Kristur fæddist — gólflína
Drottningarsalsins sýnir svið mannlegrar
fullkomnunar og fyrsti uppgangurinn tákn-
ar ástandið á tímabili Móse-laganna. Þess
\’egna gæti staðurinn, sem sýnir fæðingu
Krists, hvergi verið nerna í gólflínu Drottn-
ingarsalsins, en samt gæti hann ekki verið í
sjálfum salnurn, þar eð sá tínri, sem salur-
inn táknar, er þúsundáraríkið, sem enn er
ókomið, en Jesús fæddist fyrir nálega tvö þús-
und árum. Vér verðum því að leita að staðn-
um, sem sýnir fæðingu Krists, utan sjálfs
salsins og áður en hann byrjar, en þó á ná-
kvæmlega sömu línu og gólfflötur hans er.
Þar sem Drottinn vor var fæddur undir
lögmáli Móse í þessu landi (Palestínu) og á
þeim tíma, sem lögmálið \'ar þar í gildi, gæti
fæðing hans hvergi verið sýnd nema í f\’rsta
uppganginum, sem táknar tíma, stað og
ástand lögmálstímabilsins forna. Gólfflötur
Drottningarsalsins (svið mannlegrar full-
komnunar) er láréttur, en gólf fyrsta upp-
gangsins (svið lögmálstímabilsins) er hall-
andi. Nú geta tvær ósamhliða beinar línur,
eða fletir, eins og þær, sem hér um ræðir,
ekki skorist nema einu sinni, eins og hver
skóladrengur veit, og þess vegna hlýtur skurð-
arpúnkturinn að vera eini staðurinn, sem er
á hæðarfleti beggja í senn. Af þeirri ástæðu
er staðurinn þar sem gólflína Drottningar-
salsins sker gólf fyrsta uppgangsins eini stað-
urinn í Pýramídanum, sem sýnir hvorttveggja
í senn — mannlega fullkomnun og fæðingu
undir lögmálinu. Drottinn vor Jesús Krist-
ur, og hann einn, uppfyllti bæði þessi skil-
yrði við fæðingu sína og þess vegna gæti eng-
inn annar staður í Pýramídanum en skurð-
arpunktur þessara tveggja flata sýnt fæðingu
hans. Svo sem sjá má af mynddinni á bls. oo
er skurðarpunktur þessi nálægt endanum á
gólfi fyrsta uppgangsins ,en eins og rnenn
vita fæddist Kristur undir lok lögmálstíma-
bilsins í Palestínu. En Pýramídinn mikli
sýnir ekkert hér um bil, þar er allt alveg ná-
kvæmt. Það er algerlega fullnægjandi, að
ákveða eftir táknmálinu einu einhvern stað,
er sýni einhvern ákveðinn atburð og sanna
Jrað síðan með algerlega óskyldri aðferð, sem
sé, að rnæla að þessum stað á tímakvarðan-
urn og fullvissa sig um, hvaða ártal kemur
fram með því móti, en þá kemur í ljós að það
er nákvæmlega ártalið þegar sá atburður
skeði, sem táknmálið sýndi á Jressum stað.
Vér skulum því halda áfram að fullvissa
oss um hvaða ár í tímatali Pýramídans mikla
er sýnt á staðnum, sem merkir fæðingu Krists
í táknmálinu. Mælikvarðinn, sem yfirsmið-
urinn fékk oss, er einn Jrumlungur fyrir eitt
ár, eins og áður er frá skýrt. í fyrstu bók-
inni var það rökstutt, að allt tímatal Pýra-
nridans hvíldi á stjamfræðilegum grundvelli
og ártalið, sem táknað væri við innganginn
í Pýramídann, væri haustið 2623 f. K. Það
var árið, sem smiðimir fomu byrjuðu að
reisa Pýramídann. Þess vegna táknar hver
þumlungur eftir hinum hallandi göngum
eitt ár fram í tímann frá því að Pýramídinn
var reistur. Frá innganginum að staðnum,
sem vér teljum tákna fæðingu Krists, eru
2621 pýramídaþumlungur, sem samkvæmt
mælikvarðanum, einn þuml. f\’rir eitt ár, sýn-
ir 2621 ár. Samkvæmt því sem skráð er í
Pýramídanum mikla, hefir Kristur því fæðst
2621 ári eftir haustið 2623 f. K. eða um haust-
DAGRENNING 31