Dagrenning - 01.12.1953, Síða 34
ið árið 2 f. K.1) Fæðingarár Jesú er nrjög oft
ranglega talið árið 4 f. K., en þess ber að
minnast, að almenn skoðun og jafnvel lær-
dómsþekking, er stundum röng. En ártöl
Pýramídans eru alltaf rétt, séu þau fund-
in með nákvæmum mælingum og hárrétt-
um aðferðum, á hinurn stjarnfræðilega
grundvelli. Pýramídanum skjátlast aldrei.
Það er áríðandi að rannsaka vel, hvað sé
hið rétta fæðingarár Krists. Þegar borin eru
saman öll áreiðanleg gögn, sem kunn eru,
kemur í ljós að árið 2 f. K. er hið rétta, enda
er það í sanrræmi við hið óskeikula tímatal
Pýramídans.
Af frásögn Biblíunnar vitum vér, að Krist-
ur fæddist fyrir dauða Heródesar mikla, kon-
ungs í Júdeu. Það hefir verið útbreidd skoð-
un, að Heródes hafi dáið árið 4 f. K. Væri
það rétt gæti Kristur að sjálfsögðu ekki ver-
ið fæddur síðar en árið 4 f. K. Mönnunr hætt-
ir til að trúa þessu ártali aðeins vegna þess,
að það er tekið gott og gilt af svo mörgmn,
og því talið ástæðulaust að rannsaka það nán-
ar. Afleiðingin er sú, að þetta ártal hefur ver-
ið afritað aftur og aftur, án þess að talið væri
ómaksins vert að sannprófa það frekar. Það
má því gera ráð fyrir, að margur, sem ekkert
hefur kynnt sér annað um málið, verði undr-
andi þegar hann heyrir það, að enginn forn
sagnaritari, hvorki kirkjulegur eða veraldleg-
ur, telur Heródes hafa dáið árið 4 f. K. og
enginn þeirra skráir Jrann atburð fyrr en árið
1 e. K. (sem er hið rétta, eins og rök skulu
nú leidd að). Þessi skekkja í sanrbandi við
árið 4 f. K. er til orðin vegna vissra ummæla
Josephusar, sagnaritara Gyðinga, sem hafa
verið ranglega skilin. En jafnvel þótt Jose-
1) Þeim, sem eru óvanir tímatalsfræðum, þvkir
það ef til vill undarlegt, að tala um að Kristur sé
fæddur árið 2 „fj’rir Krist“. Þessi liáttur, að telja
timann fj’rir og eftir Krist, var tckinn upp af Diony-
siusi Exiguus á 6. öld hins kristna tímatals, en hann
reiknaði fæðingu Krists skakkt út um 2 ár.
phus hefði sagt það, sem honunr er eignað,
ætti það að vekja hjá oss efa og hvetja oss
til gaumgæfilegrar rannsóknar, að slík álvkt-
un af orðurn hans er í mótsögn við allar
heimildir hinna fornu sagnaritara og elstu
kirkjufeðra.
Ennfremur ber að athuga það, að árið 4
f. K., sem almennt er talið fæðingarár Drott-
ins vors, er hvergi staðfest af hinurn fomu
sagnariturum eða elstu kirkjufeðrum (fvrir
daga Jerome, sem uppi var á 4. og 5. öld).
Enginn Jreirra telur Krist fæddan fyrr en
árið 2 f. K., en flestir það ár — einmitt árið
sem Pýramídinn mikli opinberar sem fæð-
ingarár hans. Vér skulum nú láta hina fornu
fræðimenn tala sjálfa og taka upp orð þeirra
þekktustu, sem fjalla um fæðingarár Krists.
Tertullian.
Tertullian, einn hinna elstu kirkjufeðra,
fæddur um 160 e. K. lætur í té fullnægjandi
fræðslu um fæðingarár Drottins vors með
óvéfengjanlegum sögulegum ártölum. Hann
segir að Ágústus hafi sezt að völdurn 41 ári
fy'rir fæðingu Krists og dáið 15 árum eftir
fæðingu lians. Eins og allir fomsögufræðing-
ar vita er stjórnartíð Ágústusar reiknuð með
tvennum hætti: 1) frá því að hann fékk ræð-
ismannsvaldið og annað þrístjóman'eldið var
sett á laggimar, í lok ársins 43 f. K. eða 2)
frá því að hann varð æðsti stjórnandi alls
Rómaríkis og valinn keisari af Öldungaráð-
inu, haustið 31 f. K. Sönnunin fyrir því, að
Tertullian notaði fyrri reikninginn er sú, að
hann telur Ágústus liafa ríkt 56 ár, eins og
sagt var hér að frarnan (41 + 15= 56). Þetta
er hárétt, því að dánardægur Ágústusar, h.
19. ágúst árið 14 e. K. er óumdeilanlega og
almennt viðurkennt, en þá voru nákvæmlega
56 ár liðin frá því að honum var veitt ræðis-
mannsvald, árið 43 f. K. (43 + 14 -f- 1 =
56). Þar sem tímabilið frá því að Ágústus
settist að völdum, undir lok ársins 43 f. K.,
32 DAGRENNING