Dagrenning - 01.12.1953, Blaðsíða 40
og viðurkennt af öllum, og þar af leiðandi
er það sannað, að Heródes hefur sest að völd-
um árið 37 f. K. Jósephus segir bæði í Anti-
quities oí the Jews og Wars of the Jews, að
Heródes hafi ríkt 37 ár, og samkvæmt því
hefur Heródes dáið árið 1 e. K., því að 37 ár
frá árinu 37 f. K. ber oss að árinu 1 e. K. (37-f-
37+1=1). En þetta er, eins og vér sjáum, ár-
talið, sem vér fengum með sjálfstæðri stjarn-
fræðilegri ákvörðun, með aðstoð tunglmvrkv-
ans, sem varð þegar Heródes lá banaleguna.
William Whiston, sem þýddi hina vin-
sælu, ensku útgáfu af ritum Josephusar, lét
blekkjast af ríkjandi skoðun og fer Jiess vegna
rangt með ártölin í sambandi við valdatíma
Heródesar. Það dregur Jiann dilk á eftir sér,
að nokkrar athugasemdir hans neðanmáls
eru ónákvæmar, og á einum stað, a. m. k. er
þýðing hans alröng. Þar sem sagt er frá
ákvörðun Öldungaráðins í Róm, árið 40 f. K.,
um að veita Heródesi konungstign Jiegar bú-
ið væri að ráða niðurlögum Antigónusar, þýð-
ir Whiston orð Josephusar Jiannig: „Einnig
bjó Antoníus Ileródesi veizlu á fvrsta valda-
degi hans.“ í gríska frumtextanum orðar
Josephus þetta alls ekki svona. Hann segir:
„Og fyista daginn bjó Antonius Heródesi
veiziu, til heiðurs konungsembættinu," eins
og séra William B. Galloway þýðir Jiað og
bætir Jiví við, að „Josephus var að enda við að
segja frá, að Heródes hafi aðeins verið sjö
daga um kyrrt á Ítalíu, og þetta liafi verið
fyrsta daginn. Það er afar óheppilegt, að
Whiston skvldi verða á þessi meinlegu mis-
tök í þýðingunni, Jiví að Jiað er mjög villandi
fyrir enska lesendur.
En Jiótt útnefningin í Róm, árið 40 f. K.,
sé ranglega talin upphafið á valdatíma Heró-
desar, samræmist það ekki kenningunni samt,
því að Heródes ríkti 37 ár, og 37 ár frá árinu
40 f. K. flvtja oss að árinu 3 f. K. sem dánar-
ári Ileródesar, en ekki árinu 4 f. K., eins og
kenningin krefst. Hér er á ferð tímatalsvilla,
sem fæðir af sér langa keðju af öðrum villum,
Jiar á meðal um dánarár Antigónusar, fæð-
ingarár Krists og raunar öll æviár Drottins
vors, frá Betlehem til Golgata.
Til þess að frásögn Jósephusar, að Heró-
des hafi ríkt 34 ár eftir dauða Antigónusar,
komi heim við kenninguna um árið 4 f. K.
hefur þurft að gera ráð fyrir, að Antigónus
hafi verið líflátinn strax þegar Heródes fékk
völdin eftir hemám Jerúsalem, árið 37 f. K.
En hér fatast nú fræðimennskunni aftur,
Jiví að 34 ár frá árinu 37 f. K. enda ekki árið
4 f. K. heldur árið 3 f. K., og auk þess mæla
staðreyndirnar gegn því, að Antigónus hafi
verð tekinn af lífi Jiegar Sossius hemam
Jerúsalem — þessir heir atburðir gerðust
ekki um sama leyti eins og kenningin krefst.
Menn ættu að taka vel eftir því, að Jósephus
segir hvergi að Heródes hafi ríkt 34 ár eftir að
Sossius hernam Jerúsalem, cins og ranglega
hefur verið talið. Hann segir að Ileródes hafi
rikt 34 ár eftir að hann lét lífláta Antigónus.
Það hefur einnig verið talið að Ileródes hafi
orðið einvaldur um leið og hann tók raun-
verulega við völdum árið 37 f. K., en hér
leiðir rannsóknin aftur í ljós, að svo var ekki,
því að heimildir sýna að hann átti í erjum
við fylgismenn Antigónusar þangað til Anti-
gónus konungur var sjálfur tekinn af lífi, og
Jiá, en fyrr ekki, varð Ileródes fullkomlega
fastur í sessi.
Það sem hér skiptir máli er, hve langur
tími leið milli valdatöku I leródesar og dauða
Antigónusar. Josephus segir að eftir hand-
tökuna hafi Antigónus verið fluttur til Anti-
okkiu, og hafi ætlunin verið að gevma hann
Jiar í haldi Jiangað til sigurhátíð Antoníusar
væri lokið í Róm. En óeirðir hlgismanna
Antigónusar mögnuðust svo mjög, að Josep-
hus segir að „þjóðin hafi verið í uppreisnar-
hug“ (að dómi Heródesar). Jæja, en uppreisn-
ir til þess að koma Antigónusi aftur á kon-
ungsstól gátu samt ekki staðið yfir lengur
38 DAGRENN I NG