Dagrenning - 01.12.1953, Side 41
en hann lifði og hægt var að setja hann aft-
ur í hásætið. Ef vér því getum fullvissað oss
um, hvenær þessum uppreisnum lauk, höf-
um vér leyst gátuna um aftökuár Antigónus-
ar. í Styrjaldarsögu segir Josephus: „Nú þeg-
ar stríðið um Aktium var að hefjast, bjó
Heródes sig undir að fara til liðs við Antoni-
us, því að nú var lokið öllum erfiðleikum
hans í Júdeu og hann hafði náð Hyrkaníu —
stað, sem hafði verið á valdí systur Antigón-
usar.“ Ósættin milli Octavianusar og Antoní-
usar, sem magnaðist stig af stigi uns í odda
skrast í þessari frægu orustu við Aktiurn (31 f.
K.) bvrjaði árið 33 f. K. (Outline History oí
the World, bls. 194) og frásögn Josepliusar, er
vitnað var í hér á undan, ber með sér, að
Heródes var þá nýlega búinn að losa sig við
þau vandræði og áhyggjur, sem Antigónus
olli honum, en áreiðanlega aðeins fyrir nokkr-
um mánuðunr, í mesta lagi, svo ekki hefur
getað \’erið lengra um liðið en frá því árið
34 f. K. Þetta sannar að Antigónus hefur end-
að líf sitt í fyrsta lagi árið 34 f. K. þremur
árum eftir umsát Jerúsalem og valdatöku
Heródesar, árið 37 f. K. En Josephus lætur
oss í té enn gleggri frásögn um þetta atriði.
Antigónus var síðasti konungurinn af ætt
Hasmónea, hinna prestlærðu konunga. Josep-
hus segir að Hasmónear hafi ríkt samfellt 126
ár (Antq. XIV, 4). Samkvæmt frásögninni í
fyrstu bók Makkabea hófst valdatíð þessara
Iiasmónea með Júdasi Makkabeusi, eftir
dauða æðstaprestsins Menelásar, árið 163
f. K., og eftir 126 ár frá þeim tírna komum
þér að árinu 37 f. K. þegar Antigónus var
handtekinn og Heródes settist að völdum.
Josephus rekur þetta samt öðruvísi. Hann
telur að Júdas Makkabeus hafi raunverulega
orðið æðstiprestur við fráfall Alkinusar árið
160 f. K. og þá hafi valdatíð Hasmóneanna
hafist. í Chionicon Paschale og Chronicus
Canon telur Eusebius að Júdas Makkabeus
hafi tekið við æðstaprests embættinu 1. ár
155. Ólympíuskeiðsins, þ. e. 160 f. K., og ber
því saman við frásögn Josepheusar. Þar eð
Josephus segir að Hasmónear hafi ríkt urn
126 ára skeið, ætti að vera óhætt að gera ráð
fyrir að það sé í samræmi við önnur ártöl
Josephusar sjálfs. Ef 126 ár eru dregin frá
160 f. K. komum vér að árinu 34 f. K. ein-
mitt árinu sem oss reiknast til hér að frarnan
að væri dánarár Antigónusar konungs, þrem-
ur árum eftir handtöku hans og urnsát Jerú-
salern. Josephus hafði hliðsjón af því, að enda
þótt Heródes mikli vrði að nafninu til kon-
ungur árið 37 f. K. þá voru Gyðingar samt
sem áður hollir Antigónusi, meðan hann var
á lífi, og Heródes því mjög valtur í sessi.
Josephus hefur það eftir Strabó, að Antoní-
us hafi látið taka Antigónus af lífi vegna þess,
að „hann sá enga aðra leið til þess að sveigja
Gyðinga til hlýðni við Heródes, sem hann
hafði sett á konungsstól í stað Antigónusar"
(Antiq. XV, 1, 2). Þegar þessa er gætt, var
konungsdæminu ekki að fullu ráðstafað fyrr
en Antigónus hafði verið tekinn af lífi, árið
34 f. K. og þess vegna telur Josephus hinum
126 ára valdaferli Hasmóneanna hafa lokið
með dauða Antigónusar. Samkvæmt frásögn
Josephusar „var Heródes svo hræddur,“ að
hann gaf Antoníusi stóra fjárhæð í því skyni,
að fá hann til að gera Antigónus höfðinu
styttri, því þegar svo væri komið, \'æri sá
ótti úr sögunni. Og þannig lauk valdaskeiði
Hasmóneanna, 126 árurn eftir að það rann
upp.“ Dauði Antigónusar, árið 34 f. K., kem-
ur ágætlega heim við lútt, sem Josephus seg-
ir, að Heródes hafi ríkt 34 ár eftir dauða hans,
því að 34 ár frá árinu 34 f. K. bera oss að ár-
inu 1 e. K. sem er einmitt dánarár Heródesar
mikla eins og vér höfum þegar fullvissað oss
um.
DAGRENNING 39