Dagrenning - 01.12.1953, Side 43
borðinu, þó úr þeim liafi dregið á sjálfu
yfirborðinu nú í bili.
Ástandið í stjórnmálum Frakklands og
Italíu fer stórversnandi með hverjum
degi sem líður, enda ráða kommúnistar
og nýkommúnistar orðið lögum og lof-
um í löndum þessum, en stjórnir og þing
máttlaus vegna liins spillta stjórnmála-
lífs og hins gersamlega óhœfa stjórnar-
fyrirkomulags, sem þjóðir þessar búa við.
Frakkland hefir tafið allar framkvæmdir
Vesturlanda í varnarmálum og reynir
nú flest til að koma í veg fvrir stofnun
Evrópuhers með þátttöku Þjóðverja,
sem er eina lausnin sem til er á varnar-
málum Vestur-Evrópu eins og málurn
liorfir nú. Rússar nota sér út í æsar veik-
leika Frakka og ekki er ólíklegt að svo
fari, jafnvel strax á næsta ári, að Frakk-
land slitni að fullu og öllu úr tengslum
við engilsaxnesku stórveldin og verði
kommúnismanum auðtekin bráð enda
liafa þeir stefnt lengi að því marki. Ef
Bandaríkin héldu Italíu ekki uppi með
fjármagni sínu, væri hún nú þegar orðin
eitt af leppríkjum Rússa.
#
Átökin um Zuesskurðinn hafa haldið
áfram allt þetta ár og eru enn jafn langt
frá endanlegri lausn og þau voru í upp-
hafi. Egyptaland er nú aðalvígi þýzka
nazismans frá dögum Hitlers. Það segja
menn, sem farið hafa til Egyptalands nú
í ár, að öllu svipi þar nú meir og rneir til
þess sem var í Þýzkalandi á dögum
Hitlers. Litir nazismans — svart, hvítt og
rautt — eru orðnir öllum öðrum litum
yfirsterkari í Kairó og víðar um Egypta-
land. Herinn er æfður og skipulagður
af herforingjum frá Hitler og stjórnmála-
starfsemin öll er vasaútgáfa af stjórnmála-
starfsemi Hitlerstímahilsins í Þýzkalandi.
F.kki eitt stygðaryrði heyrist heldur milli
Sovíetríkjanna og Nagihs. — Sú þögn er
auðskilin. Nú er verið að byggja upp í
Egyptalandi nazistaher, sem ætlað er það
hlutverk, að útrýma öllum áhrifum vest-
rænnar menningar í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs, og taka höndum
saman við Sovíetríkin í styrjöld þeirra
gegn Bretum og Bandaríkjunum.
#
Nýkommúnisminn hefir breiðst ört út
innan allra sósíaldemokrataflokka Ev-
rópu og Demokrataflokksins í Bandaríkj-
unum á þessu ári. Hinar heiftarlegu árás-
ir demokrata á stjórnarstefnu Eisen-
howers og þá tilraun hans, að hreinsa
kommúnista út úr opinberum stöðum í
Bandaríkjunum, eru annaðhvort vísvit-
andi þjónusta við Sovíetríkin, eða þær
stafa frá nýkommúnistiskum áhrifum
sem ört grípa um sig innan Demókrata-
flokksins' án þess llokksmennirnir geri
sér þess fulla grein, eða skynsemi þeiiTa
lætur undan fyrir persónulegu og póli-
tísku liatri. Sama er aðstaðan í Bretlandi
þar sem nú er svo komið, að jafnvel Win-
ston Churchill er farinn að liugsa til þess
að verða „fljúgandi“ sáttasemjari“ eins
og fyrirrennari lians Chamberlain.
#
Bermuda-ráðstefnan fyrstu dagana í
desember er merkisathurður í stjórnmála-
lífi vestrænna þjóða á þessu ári. Hún
var haldin til þess að reyna að komast
að sameiginlegri niðurstöðu um helztu
vandamálin, sem nu steðja að vestræn-
um þjóðum. Frakkar eru að gefast upp
hæði fjárhagslega og stjórnmálalega og
Bretar geta í hvorugan fótinn stígið í
Asíu vegna Indlands, sem siglir hraðhvri
inn í kommúnismann, undir forustu
Nerús, sem vill fyrir hvern mun sam-
vinnu við kommúnistaríkin, en þorir þó
ekki enn að taka þá afstöðu opinberlega.
DAGRENNING 41