Dagrenning - 01.12.1953, Síða 46
g
Með pessu hejti lýkur áttunda árgangi Dagrenningar. Þegar hún hóf göngu
sina bjóst ég eklii við að hennar aldur yrði lengri en þrjú til fjögur ár i mesta
lagi. Ég bjóst við, að þá yrði það efni þrotið, sem ég réði við að skrifa um á
því sviði, sem Dagrenningu var afmarkað. En þetta hefir farið á annan veg.
Aldrei hefir verið meira efni fyrir hendi en nú, og aldrei verið greinilegri þörfin
á því, að veitt vœri viðtaka þeim boðskap, sem Dagrenning hefir að flytja. Þótt
ég hafi nú miklu meiri og betri tíma til að sinna ritstörfum, en áður var, kemsl
ég þó hvergi ncern yfir þau verkefni, sem leysa þyrfti af hendi. Þegar ég hvarj
frá minu fyrra starfi var það cetlan min að verja sem mestu af tima mínum til
að taka saman þrjár bcckur eða stórar ritgerðir, sem nauðsynlega þarf að skrifa
á islenzku sem allra fyrst. Ein þeirra er skýringar á spádómum Danielsbókar og
Opinberunnarbókarinnar, þeim, sem nií eru augljóslega fram komnir, og sérstak-
lega eiga við vora tirna. Ég er nú byrjaður á því verki og birtist einn kafli
þeirra ritsmiða i þessu hefti. Annað verkefnið var að reyna að skýra sköpunar
söguna eins og hún er i fyrstu Mósebók, og sárafáir virðast núorðið reyna til að
skilja eða skýra rétt. Hefir þvi efni oftar verið misþyrmt, en flestu öðru i hinni
lielgu bók, Bibliunni. Loks vakir fyrir mér að skrifa sögu Benjamínsættkvíslar-
innar þannig, að rekja feril hennar í aðaldráttum frá þvi hún varð til, við
fceðingu Benjamins — en hann fceddist i Bellehem eins og Jesús Kristur — og
rekja slóð liennar alt til þess er leifar hennar flýðu út til íslands á 9. og 10. öld
vors tímaials. — All eru þetta mikil viðfangsefni og sennilega mér ofviða, ef vel
á að takast. Alt það merkasta af þessum ritsmiðum mun birtast i Dagrenningu.
Ég hefi ekki i hyggju að gera neinar verulegar breytingar á Dagrenningu
ncesta ár. Sií breyting sem ncest liggur, er að gera hana að mánaðarriti, en það
hefir bceði kosti og galla. Af þvi verður a. m. k. ekki á ncesta ári og tcepast fyr
en hún hefir fylt fyrsta áratuginn — 1955.
Dagrenning mun hér eftir sem hingað til aðallega leitast við að sinna þeim
tveim aðalþáttum hlutverks sins, sern þýðingarmestir eru, en þeir eru, að vekja
íslenzku þjóðina til skilnings á uppruna sínum — að hún er ein af hinum týndu
cettkvislum fsraels, — og að endurvekja trú þjóðarinnar á hið heilaga orð Guðs
— Biblíuna — og alveg sérstaklega á spádóma hennar og þýðingu þeirra.
Ég veit að Drottinn mun blessa Dagrenningu i fraintiðinni eins og Hann
hefir blessað hana til þessa dags. Og ég bið þess, að mér megi takast að gera
hana þannig úr garði að hún þjóni réttilega þeim málstað, sein liún einkum á
að vera helguð. Þá veit ég, að hún verður þeim til blessunar, sem hana kaupa.
Ég þakka svo ykkur öllum: kaupendum, útsölumönnum og lesendum Dag-
renningar, fyrir vinsemd, hlýju og skilvisi mi og fyr, og bið ykkur öllum bless-
unar, náðar og varðveizlu Drottins á koinandi ári.
JÓNAS GUÐMUNDSSON.
44 dagrenning
\