Dagrenning - 01.08.1956, Side 10
"------------------------------------------------------------------------------V
„segja sig úr lögum“ við Moskvuvaldið. En ekki datt Tító í hug, að breyta
til um stjórnarstefnu í Júgóslavíu. Hún er áfram heilsteypt kommúnista-
ríiki með einum leyfð(um stjómmálaflokki og öllu sama kúgunar- og
þrælafyrirkomulaginu og í Rússlandi. Hitler var national-sósíalisti. Tító
er national-kommúnisti.
Höfuðeinkenni nýkommúnismans er það, að vera í orði, en ekki í verki,
á móti Stalrn og Rússlandi. Nýkommúnisti þekkist á því, að hann for-
dæmir allan undirlægjuhátt, bæði við „austur og vestur.“ Nýkommúnist-
ar þykjast vera allra manna þjóðlegastir og bera alveg takmarkalausa virð-
ingu, að því er þeir sjálfir segja, fyrir „menningu“ þjóða sinna, og að
henni verði ekki spillt með utanaðkomandi áhrifum. Gleggsta merkið á
hreinræktuðum nýkommúnistum er þó fjandskapur þeirra í garð Banda-
ríkjamanna og Breta, sem þeir aldrei geta dulið.
Forustumaður og brautryðjandi nýkommúnismans er Tító Júgóslavíu-
forseti. Hann er, og hefur alla tíð verið, þjónn Moskvuvaldsins, en hefur
haft þessu hlutverki að gegna. Hann er „höfundur“ hlutleysisstefnunnar í
heimspólitíkinni í sinni núverandi mynd hennar. Tító hefur tekizt vel að
blekkja vestrænar þjóðir, og alveg sérstaklega vestræna jafnaðarmenn —
sósíaldemókrata. Sovétríkin hafa beitt honum fyrir sig við myndun hins
nýja „hlutleysisbandalags“, sem nú er verið að koma á fót. Með Tító
standa nú fremstir í „hlutleysinu“ þeir Nerú hinn indverski og Nasser
hinn egypzki. Þetta ógæfu bandalag er nú vel á vegi með að stinga hinum
vestrænu þjóðum það svefnþom, sem ríða mun frelsi þeirra og menningu
að fullu. Hlutleysisþrenningin: Tító, Nerú og Nasser, áttu fyrir skömmu
fund með sér í ríki Títós, á eynni Brioni í Adriahafi. Menn vita fátt um
þann fund, annað en það, að þar munu hafa verið lögð á ráðin um næstu
aðgerðirnar til að eyðileggja samtök frjálsra þjóða — Atlantshafsbanda-
lagið og Bagdad- og Suðaustur-Asíu bandalagið. Um hitt munu litlar áætl-
anir hafa verið gerðar, hvernig koma mætti í veg fyrir útþenslu Sovétríkj-
anna, og vinna gegn kommúnismanum. Á hlutleysisstefnu Nassers er
minnt annarsstaðar í þessari grein. Af hlutverki þessara þriggja
hlutleysisleiðtoga er hlutverk Nerús athyglisverðast og um leið ógeð-
felldast. Indland tilheyrir a. m. k. að nafninu til Brezka samveldinu
og telst til hinna frjálsu þjóða. Bretar hafa sleppt þar öllum yfirráðum,
sem þeir hafa haft síðustu aldirnar, í trausti þess, að þeir með því sköpuðu
sér vináttu, en ekki óvild þessarar stóru og sundurleitu þjóðar. En Nerú
notar hvert tækifæri, sem býðst, til að gera Bretum erfiðara fyrir á öllum
sviðum. Hann er andstæðingur Atlantshafsbandalagsins — varnarsamtaka
liinna frjálsu vestrænu þjóða. — Hann er andstæðingur Bagdad-bandalags-
ins — varnarsamtaka þeirra Arabaríkja, sem vilja viðhalda tengslum sín-
---------------------------------------------------------------------------------
8 DAGRENNING