Dagrenning - 01.08.1956, Síða 46
koma að ógilda kosningu sumra uppbót-
arþingmannanna fyrir þessar sakir.
Hitt er miklu alvarlegra mál, sem síð-
ar gerðist, að tveir flokkanna hafa hrein-
lega brugðizt yfirlýsingum, sem gefnar
voru í kosningunum og ætla má, að veru-
leg áhrif hafi haft á atkvæðagreiðslu
fjölda manna. Slík brigðmæli eru að
verða algeng í íslenzkri pólitík og eru
óhugnanlegt tímanna tákn.
Ræturnar liggja dýpra.
En það áttar sig enginn á því, sem nú
hefur gerzt í íslenzkum stjórnmálum,
nema hann gefi gaum að þeirri þróun,
sem á undan er gengin. Allar „brell-
urnar“ og hinar vafnefndu yfirlýsingar
eiga sér miklu dýpri rætur og hættu-
legri, en fram kemur í h(inum yfir-
borðslegu blaðaskrifum og viðræðum
manna í milli um þessi málefni.
Eftir kosningarnar 1953, en þá var
höfundur þessarar greinar í framboði
fyrir Lýðveldisflokkinn, birtust í Dag-
renningu nokkrar greinar um það
laumuspil, sem þá varð vart við í stjórn-
málabaráttunni, og er rétt að rif ja nokk-
uð af því upp nú að gefnu þessu tilefni.
Um mörg undanfarin ár hefur ákveð-
inn hópur manna hérlendis stefnt að
því að sameina Framsóknarflokkinn,
Alþýðuflokkinn og kommúnista í einn
flokk eða eina samfylkingu, og er þetta
einn þátturinn í sókn nýkommúnismans
hér á landi. Undanfarin ár hefur Sovét-
stjórnin lagt höfuðáherzlu á að koma
ár sinni sem bezt fyrir borð hér á ís-
landi til þess að get spillt sem mest
samstarfi liinna vestrænu þjóða. Fyrir
mörgum árum ákvað hún að gera Island
að þýðingarmiklum stað í sókn sinni
til eyðileggingar vamarsamtökum og
menningu vestrænna þjóða. Ég rakti
þetta nokkuð í febrúarhefti Dagrenn-
ingar 1953 í grein sem heitir „Nýkomm-
únisminn á íslandi". Þar segir fyrst með
hverjum hætti nýkommúnisminn byrjar
í flestum löndum, og hver voru upptök
hans hér á landi. En síðan segir:
„Næsta stigið var innrás nýkommún-
ista í ákveðna stjórnmálaflokka og ýmis-
konar félagsskap------“
„Hér á íslandi hófu nýkommúnistar
skipulagða „innrás“ í tvo stjórnmála-
flokka nokkuð samtímis, eða um það bil
sem Þjóðvarnarliðið (gamla) hvarf undir
yfirborðið eftir hina velheppnuðu „gen-
eralprufu“ við Alþingishúsið 1949. Mest-
ur hluti þeirra leitaði inn í Framsóknar-
flokkinn og hefur búið þar öfluglega
um sig í flokksfélögunum í Reykjavík,
hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess, og
við aðalblað flokksins, Tímann.
Nokkrir hurfu til Alþýðuflokksins,
enda hefur nýkommúnisminn frá fvrstu
átt ötulan fyrirsvarsmann í þeim flokki.
Hin skipulagða leynihreyfing
kommúnista, er stendur á bak
við nýkommúnismann hér á landi, hef-
ur talið réttara að leggja fyrst aðal-
áherzluna á sókn innan Alþýðuflokks-
ins, enda voru þar menn fyrir, sem flokk-
urinn hafði fajlið mikinn trúnað, en
telja mátti örugga fylgjendur þessarar
nýju stefnu og líklega til að draga loku
frá dyrum, þegar tími þætti til kom-
• _ <(
mn.
„Nýkommúnistar höfðu með mikilli
leynd, og með tilstyrk nýkommúnista
hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga og í
Framsóknarflokknum, unnið að því, all-
lengi, fyrir síðasta Alþýðuflokksþing,
að fella stjóm þá, sem Alþýðuflokkur-
inn hefur haft undanfarin ár. Launráð-
in heppnuðust og á Alþýðuflokksþing-
44 DAGRENNING