Morgunblaðið - 09.01.2015, Page 1
F Ö S T U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 7. tölublað 103. árgangur
FLYTJENDUR
MISREYNDIR
Í KEPPNI
GEKK Á ÖLL
ÍSLENSK
BÆJARFJÖLL
ÆTLA AÐ KOMAST
Í LOKAKEPPNINA
Í BRASILÍU
GENGIÐ TIL GÓÐS 10 U21 ÁRS LANDSLIÐIÐ ÍÞRÓTTIRSÖNGVAKEPPNIN 38
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verðhrun á olíu að undanförnu mun
að líkindum örva hagvöxt og leiða til
þess að hann verði meiri undir lok
árs 2014 en hann hefði annars orðið.
Þetta er mat Þórarins G. Péturs-
sonar, aðalhagfræðings Seðlabank-
ans, sem bendir á að vegna lægra
olíuverðs aukist ráðstöfunartekjur
heimila, að öðru óbreyttu.
Hann segir horfur um viðskipta-
kjör hafa batnað frá birtingu síðustu
Peningamála í nóvember sl. Við-
skiptakjör mæla hlutfall þróunar út-
flutningsverðs í samanburði við verð
innfluttra vara og þjónustu.
„Horfur um viðskiptakjör hafa
batnað. Innflutningsverð hefur
lækkað töluvert og þá fyrst og
fremst olían. Á meðan útflutnings-
verð gefur ekki eftir blasir við að
horfur um viðskiptakjör hafa batnað
frá því í nóvember … Álverðið hefur
ekki gefið eftir með sama hætti og
verð á sjávarafurðum hefur hækkað
umtalsvert. Þessi þróun er því mjög
jákvæð. Þetta er að gerast hjá öllum
ríkjum sem flytja inn olíu. Þau eru að
fá töluverðan bata í viðskiptakjörum.
Það mun þá þýða, að öðru óbreyttu,
batnandi hagvaxtarhorfur fyrir þau
ríki,“ segir Þórarinn.
Skv. greiningu Analytica hefur
verðmæti áls og sjávarafurða miðað
við olíu ekki verið jafnmikið frá 2009.
Skapar meiri hagvöxt
Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir olíuhrunið hafa mikil áhrif í hagkerfinu
Vegna lægra olíuverðs hafi horfur um viðskiptakjör batnað frá því í haust
MOlíuhrunið bætir »12
Verðhrun
» Heimsmarkaðsverð á olíu
hefur lækkað úr um 100
bandaríkjadölum á miðju síð-
asta ári í um 50 dali nú.
» Hagstofan áætlaði í byrjun
desember að hagvöxtur fyrstu
níu mánuði ársins 2014 hefði
verið 0,5%.
Um það bil þrjú hundruð manns lögðu leið sína í
garð franska sendiráðsins í Reykjavík í gær-
kvöldi til þess að sýna samstöðu sína með fórnar-
lömbum hryðjuverksins í París í fyrradag. Fán-
um Frakklands og Evrópusambandsins var
flaggað í hálfa stöng, og gerðu önnur sendiráð í
nágrenninu hið sama. Gestir lögðu kerti við
fánastengurnar og héldu á skiltum með áletr-
uninni „Je suis Charlie“ og skriffærum. Álíka at-
hafnir voru haldnar víða um heim, og voru ljósin
á Eiffel-turninum í París slökkt í virðingarskyni
við hina föllnu.
Í Frakklandi hélt leitin að hinum grunuðu
áfram, en sjö manns voru handteknir í tengslum
við málið í fyrrinótt. Enn hafði þó ekki tekist að
hafa hendur í hári Kouachi-bræðranna, sem
taldir eru hafa framið árásina. Einbeitti franska
lögreglan sér að Picardy-héraði í norðurhluta
landsins, en bræðurnir rændu bensínstöð fyrr
um daginn. Óttast var að þeir myndu láta til
skarar skríða á ný. »20-21
Frökkum sýndur samhugur víða um heim
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstöðufundur við franska sendiráðið í Reykjavík
Erfitt verður
að manna ný
störf á vinnu-
markaði innan
fárra ára verði
ekkert að gert.
Þjóðin eldist
hratt og örorku-
lífeyrisþegum
hefur fjölgað ört.
Búast má við að
innan fárra ára muni fækka á ís-
lenskum vinnumarkaði þar sem
fleiri hverfa út af honum en bætast
við. Sé gert ráð fyrir að 400 manns
komi til landsins umfram brott-
flutta mun hefjast fækkun á vinnu-
markaði árið 2022 skv. nýjum út-
reikningum Samtaka
atvinnulífsins. »22
Fækkun fólks á
vinnumarkaði gæti
hafist árið 2022
Neysla fæðubótarefna, brennslu-
taflna og stera er algengari hjá þeim
framhaldsskólanemum sem æfa
íþróttir utan íþróttafélaga en þeirra
sem æfa með félagi, samkvæmt
nýrri rannsókn sem gerð var á veg-
um Lyfjaeftirlits ÍSÍ. Þar kemur
fram að drengir séu líklegri til þess
að nota stera og fæðubótarefni en
stúlkur. Viðar Halldórsson, íþrótta-
félagsfræðingur, segir að sam-
félagsleg pressa á að ná árangri ýti
undir slíka notkun. »4
Steranotkun meiri
meðal drengja
„Þetta getur
orðið milljónatjón
fyrir fyrirtækið
ef svona gerist
marga daga í röð.
Mötuneyti og
verslanir bíða eft-
ir vörunum og
sætta sig ekki við
að fá ekki vörur.
Svo vantar líka
hráefni í fram-
leiðsluna,“ segir Grímur Þór Gísla-
son sem rekur matvælaiðjuna Grím-
ur Kokkur í Vestmannaeyjum. Hann
er með fjölmarga viðskiptavini uppi
á landi og þarf að afhenda tilbúnar
matvörur reglulega.
Allar ferðir Herjólfs á milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar féllu
niður í gær og fyrradag vegna veð-
urs og ölduhæðar og flug hefur ver-
ið stopult. Hefur það valdið erfið-
leikum í Eyjum. »16
Kemur ekki vörum
til viðskiptavina
Fiskur Maturinn
kemst ekki í land.
BURT ÚR BÆNUM MEÐ HÓPINN
FRÁBÆR FERÐATILBOÐ TIL ALLRA ÁFANGASTAÐA OKKAR INNANLANDS OG LÍKA TIL FÆREYJA Nánari upplýsingar á hopadeild@flugfelag.is eða í síma 570 3075