Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 Fyrstu tónleikar ársins í tónleika- röðinni Föstudagsfreistingar, sem er á vegum Tónlistarfélags Akur- eyrar, fara fram í dag kl. 12 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi. Á þeim leikur píanóleikarinn Stein- unn Halldórsdóttir prelúdíur eftir Claude Debussy sem hann samdi veturinn 1909-1910. Steinunn starfar við Tónlistar- skóla Húsavíkur og hóf píanónám sjö ára, lærði hjá Kristni Gestssyni og Önnu Málfríði Sigurðardóttur í Reykjavík og fór í framhaldsnám í Carl Nielsen-akademíuna í Óðins- véum þar sem hún lærði hjá Christinu Bjøerkøe og lauk þaðan mastersnámi. Einnig var hún í pí- anónámi í eitt ár hjá Katariina Li- imatainen í Finnlandi og hefur sótt meistaranámskeið í Frakklandi og Póllandi. Freistingar Steinunn Halldórsdóttir píanóleikari leikur prelúdíur Debussy. Prelúdíur Debussy í hádeginu í Hömrum Árni Bartels opnar sýningu í Gall- ery Bakarí kl. 17 í dag. Árni sýnir valin verk frá árunum 2010-13 og eru þau í neo-expressjónisma-stíl, skv. tilkynningu. Verkin vann Árna bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Þetta er sjötta einkasýning Árna hér á landi en hann er búsettur í Svíþjóð og starfar þar. Sýningin stendur til 19. janúar og galleríið er opið virka daga kl. 11- 18 og laugardaga kl. 12-16. Árni opnar sjöttu einkasýninguna Neo-expressjónismi Verk eftir Árna. Sýningar á írska verðlaunaleikrit- inu Lísa og Lísa eftir Amy Conroy í þýðingu Karls Ágúst Úlfssonar hefjast í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. Leikstjóri sýningarinnar er Jón Gunnar, en í hlutverkum nafnanna eru Sunna Borg og Saga Geirdal Jónsdóttir. Sýningin var upphaflega frum- sýnd í febrúar á sl. ári í Rýminu á vegum Leikfélags Akureyrar. Leikritið fjallar um tvær konur á sjötugsaldri sem báðar nefnast Lísa og hafa búið saman, hálfvegis í felum, í þrjátíu ár. Fyrir atbeina ungs leikskálds hafa þær nú tekið ákvörðun um að koma út úr skápnum og segja sögu sína á leiksviði. Athygli er vakin á því að tak- markaður sýningafjöldi er í boði, en sýnt verður í kvöld og annað kvöld sem og næstu tvær helgar, bæði föstudag og laugardag. Lísa og Lísa í Tjarnarbíói Ljósmynd/Auðunn Níelsson Þor Saga Geirdal Jónsdóttir og Sunna Borg í hlutverkum Lísu og Lísu. Bandaríski leikarinn Sylvester Stallone sendi á dögunum frá sér orðsendingu á Twitter sem ekki var hægt að lesa á annan veg en að hann muni leika hasarhetjuna John Rambo enn og aftur í fimmtu kvik- myndinni. Það var staðfest og mun hún nefnast Rambo: Last Blood. Stallone er orðinn 68 ára gamall og sagði í tístinu að fyrst léki hann í gangsteramynd en þá kæmi röðin aftur að Rambo en fyrsta myndin, First Blood, sló í gegn árið 1982. Fjórða myndin, sem Stallone sagði þá að yrði sú síðasta sem hann léki í, kom í kvikmyndahús ár- ið 2008. En Rambo er greinilega ekki búinn að vera – enn. Stallone hnyklar vöðvana aftur sem John Rambo Hasarhetjan Stallone hefur rakað saman fé á kvikmyndunum um Rambo. Frásögnin í Ljónatemj-aranum eftir CamilluLäckberg er ein sú við-bjóðslegasta sem um getur í nýútkomnum spennu- og glæpasögum, en óhugnaðurinn heldur lesandanum við efnið og til þess er leikurinn gerður. Þegar ung stúlka, illa á sig komin, verður fyrir bíl hefst rannsókn þar sem lög- reglumaðurinn Patrik Hedström er í stóru hlut- verki. Á sama tíma vinnur Erica Falck, eig- inkona hans, að ritun bókar um gamalt sakamál. Leiðir þeirra liggja saman í magnaðri spennu- sögu sem nær hámarki í lokin. Mikil grimmd er í þessari sögu, mannvonska, illska og hatur. Sort- inn í sálinni hefur yfirleitt betur í harðri baráttu við góðmennsku, en rómantíkin er engu að síður til staðar. Það illa í fólki er dregið fram á áhrifaríkan hátt og ekki sér fyrir endann á ofbeldinu og áhrifum geðveikinnar. Mannlýsingar Camillu Läckberg eru góðar. Hún lýsir til dæmis vel mismunandi einstaklingum innan lögreglunnar og nær að fanga andrúmsloftið í hópnum á skemmtilegan hátt. Sama á við um sköpun á öðrum helstu persónum. Illfyglin leyna sér ekki og kuldinn skín úr hverju andliti þeirra. Kon- ur eru áberandi og þar takast sér- staklega á hið góða og hið illa. Margar góða sænskar glæpa- sögur hafa verið skrifaðar og Ljónatemjarinn er í betri kant- inum auk þess sem textinn í þýð- ingu Sigurðar Þórs Salvarssonar „rennur“ mjög vel. Camilla Läck- berg minnir í mörgu á Arnald Indriðason og ekki er leiðum að líkjast. Sorti í sálinni, illska og hatur Glæpasaga Ljónatemjarinn bbbbn Eftir Camillu Läckberg. Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Sögur, 2014. Kilja, 465 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Fær „Mannlýsingar Camillu Läckberg eru góðar. Hún lýsir til dæmis vel mismunandi einstaklingum innan lögreglunnar og nær að fanga andrúms- loftið í hópnum á skemmtilegan hátt,“ segir m.a. í dómi um Ljónatemjarann. 48 RAMMA STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI! E.F.I -MBL www.laugarasbio.isSími: 553-2075 SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.