Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 Sverrir Einarsson, tannlæknir í Vest- mannaeyjum og Reykjavík, lést á Landspítalanum mið- vikudaginn 7. janúar, 87 ára að aldri. Sverrir fæddist í Reykjavík 20. nóv- ember 1927. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949 og út- skrifaðist sem tann- læknir frá Háskóla Ís- lands 1955. Hann hóf störf í Vestmanna- eyjum. Á árunum 1966 til 1967 var hann við nám í Kaupmannahafnar- háskóla og kynnti sér flúorblöndun drykkjarvatns við Alabamaháskóla. Hann gerði tilraunir með flúor- blöndun drykkjarvatns í Vest- mannaeyjum. Sverrir starfaði sem tannlæknir í Vestmannaeyjum fram að eldgosinu 1973. Þegar upp á land var komið opnaði hann eigin tannlæknastofu í Reykjavík og rak hana til ársloka 2006. Samhliða rekstrinum starfaði Sverrir hjá skólatannlækningadeild Reykjavíkurborgar. Sverrir var ötull í trúnaðar- og fé- lagsstörfum fyrir tannlækna, kylfinga og í Akóges. Hann var formaður stjórnar Fé- lags íslenskra tann- læknanema 1954 og í stjórn Golfklúbbs Vestmannaeyja 1955- 71 og þar af formaður í fimm ár. Þá var hann einnig formaður í félaginu Akóges í Vestmannaeyjum og sinnti þar ýmsum nefndarstörfum. Sverrir var í stjórn Golfsambands Íslands 1973-82, í stjórn Golfklúbbs Ness 1980 og í stjórn Félags skóla- tannlækna í Reykjavík frá stofnun þess 1985 til 1991. Þá var hann í stjórn Landssambands eldri kylf- inga frá 1986, formaður í tvö ár. Honum hlotnuðust ýmsar viðkenn- ingar og heiðursmerki fyrir störf sín. Sverrir ritaði fjölmargar grein- ar um málefni tannlækna í ýmis blöð. Sverrir lætur eftir sig eiginkonu, Margréti Þóroddsdóttur, börn, barnabörn og barnabarnabörn. Andlát Sverrir Einarsson tannlæknir Bæjarlind6, sími5547030 Við erum á facebook Str. 36-56 Útsala 50% afsláttur Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is Opið mánud. - föstud. 11:00-18:00, laugardag 12:00-16:00 Skoðið frien dtex.is Komið og gerið frábær kaup Enn meiri afsláttur Dúndur Útsala Föstudaginn 9. janúar opnar Árni Bartels sýningu í Gallery BAKARÍ kl. 17. Árni sýnir valin verk frá 2010-2013. Verkin eru í neo-expressjónisma stíl. Verkin eru unnin hér heima og í Svíþjóð. Þetta er 6. einkasýning Árna hérna á landi en hann er búsettur í Svíþjóð og starfar þar. Sýningin stendur til 19. janúar. Gallery BAKARÍ, Skólavörðustíg 40, 101 Reykjavík, sími 551 0161 og 690 0931. Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16. arnibartels.com Málverkasýning Árna Bartels Blaðamannaverðlaun 2014 Blaðamannafélag Íslands Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 12. skipti þann 28. febrúar næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er FÖSTUDAGURINN 23. JANÚAR. Eins og áður eru verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir: Besta umfjöllun ársins 2014 Viðtal ársins 2014 Rannsóknarblaðamennska ársins 2014 Blaðamannaverðlaun ársins 2014 Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaða- mannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is . Þegar ísruðningar verða of miklir geta þeir átt það til að tálma för bæði bifreiða og gangandi vegfarenda. Þá getur verið gott að beita snjóblásara á gangstéttirnar, en hann breytir ísklumpunum í fíngerðan snjó. Guðjóna Björk Sigurðardóttir, skrifstofustjóri rekst- urs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, segir að snjóblás- ararnir séu mikið þarfaþing þar sem þeir nái til þar sem önnur og stærri tæki komist ekki að. Morgunblaðið/Golli Ísklumpum breytt í fíngerðan snjó Heildarfjöldi gróðursettra trjá- plantna á svæði Hekluskóga frá árinu 2006 til og með 2014 er nú kominn yfir 2,3 milljónir, á um 1200 hekturum lands sem dreifast á um 850 trjálundi. Árið 2014 var hag- stætt gróðri á Hekluskógasvæðinu, samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu verkefnisins. Í fyrra gróðursettu verktakar tæplega 180 þúsund plöntur, en landeigendur, auk ýmissa sjálf- boðaliða, gróðursettu rúmlega 130 þúsund. Gróðursett var víðsvegar um Hekluskóga með mestri áherslu á norðanvert svæðið á uppgræddum svæðum, en landeigendur sáu um mestan hluta gróðursetningarinnar í eigin lönd á sunnanverðu starfs- svæðinu. Minna gróðursett næstu ár Samstarf er við um 205 þátttak- endur á sunnanverðu svæðinu og hafa þeir gróðursett á eigin kostnað rúmlega 800 þúsund plöntur síðan árið 2008. Búast má við að heldur dragi úr gróðursetningu landeig- enda á næstu árum enda hefur nokk- ur hluti þeirra þegar lokið gróð- ursetningu í lönd sín. Ágætur árangur sáningar frá fyrstu starfs- árum verkefnisins er að koma í ljós þessi árin og má nú finna mikið af fræplöntum sem eru að spretta upp víða um norðanvert starfssvæðið. Hekluskógar eiga í samstarfi við fjölmarga aðila, t.d. Landsvirkjun, Endurvinnsluna hf, ýmsa hópa sjálf- boðaliða og erlenda og innlenda nemendahópa. Hafa gróðursett yfir 2,3 milljónir plantna Breyting Á starfssvæði Hekluskóga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.