Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 Íslandsmót barna í skák fer fram í Rimaskóla laugardaginn 10. janúar og hefst klukkan 12. Þátttökurétt hafa börn fædd 2004 og síðar og sig- urvegarinn fær sæmdarheitið Ís- landsmeistari barna 2015 og keppn- isrétt á Norðurlandamótinu í skóla- skák sem haldið verður í Færeyjum um miðjan febrúar. Mótið er fjöl- mennt en gert er ráð fyrir um 80- 100 keppendum. Alls verða tefldar níu umferðir með tíu mínútna umhugsunartíma. Eftir fimm umferðir verður kepp- endum fækkað þannig að þeir sem hafa þrjá vinninga eða fleiri halda áfram keppninni um Íslandsmeist- aratitilinn en þeir sem hafa færri en þrjá vinninga hafa lokið þátttöku. Þetta er í 22. sinn sem keppt er um Íslandsmeistaratitil barna. Sig- urður Páll Steindórsson sigraði á fyrsta mótinu árið 1994, en meðal annarra meistara má nefna titilhaf- ana Dag Arngrímsson, Guðmund Kjartansson og Hjörvar Stein Grét- arsson. Núverandi Íslandsmeistari barna er Vignir Vatnar Stefánsson. Peðaskákmót leikskólabarna Peðaskákmót verður haldið sam- hliða mótinu og hefst klukkan 13:00. Það er ætlað fyrir leikskólabörn og þau allra yngstu í grunnskólum sem eru ekki tilbúin fyrir Íslandsmótið. Skákdeild Fjölnis verður með veitingasölu meðan á mótinu stend- ur. Hátt í 100 börn á Ís- landsmóti  Þau yngstu tefla í Rimaskóla Morgunblaðíð/Ómar Að tafli Vignir Vatnar Stefánsson. Enn er talsvert um umsóknir til byggingarfulltrúa Reykjavíkur og umhverfis- og skipulagsráðs um breytingu húsnæðis yfir í gistiþjón- ustu. Í nýjustu fundargerð ráðsins kemur meðal annars fram að óskað sé eftir breytingu á húsnæðinu við Laugaveg 1 og 58b á þennan hátt. Um mitt síðasta ár sagði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykja- víkur, að þessi mikli vöxtur útheimti mjög mikið og Kvosin og miðborg- arkjarninn ættu ekki að verða að einu samfelldu hótelsvæði. Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir í samtali við mbl.is að það sé komið ákveðið stopp hjá borgaryfirvöldum í að samþykkja gististaði á helstu stöð- um í miðborginni. Þetta hafi meðal annars falist í orðum Dags á síðasta ári. Hjálmar tekur aftur á móti fram að þau mál sem þegar hafi verið af- greidd og samþykkt verði ekki dreg- in til baka. Þannig sé gert ráð fyrir uppbyggingu hótels við Hörpu, Ice- landair hótel séu að byggja við Klapparstíg og Center hotels að stækka á Laugavegi. Að lokum hafi Íslandsbankareiturinn árið 2007 verið samþykktur sérstaklega sem hótellóð og erfitt sé að breyta því til baka án samþykkis lóðareiganda. Þá segir hann að ákveðnar götur séu skilgreindar sem aðalgötur á að- alskipulagi. Laugavegur sé þar á meðal og því geti verið að heimilað verði að fjölga gististöðum þar, en ólíklegt að nýjar beiðnir í íbúðar- hverfum þar í kring fái grænt ljós. thorsteinn@mbl.is Enn sótt um gististaðaleyfi Morgunblaðið/Ómar Miðborgin Margir hafa áhuga á að reka hótel í miðborg Reykjavíkur.  Ákveðið stopp í að samþykkja gististaði í miðborginni Gefin hefur ver- ið út reglugerð um veiðar úr út- hafskarfa- stofnum 2015. Samkvæmt henni er leyfi- legur heildarafli almanaksárið 2015 í úthafs- karfa tæplega 2.950 tonn. Á grundvelli aflahlutdeilda hefur verið úthlutað 2.790 tonna afla- marki og hefur það minnkað veru- lega síðustu ár. Snæfell EA fær mest úthlutað eða 485 tonn, Þerney fær 377 tonn og Helga María AK 320 tonn. Aflamarki úthlutað í úthafskarfa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.