Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 18
VIÐTAL Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Alþjóðlegar reglur um milliverðlagn- ingu verða innleiddar með töluvert meira íþyngjandi hætti en í mörgum öðrum ríkjum, en reglugerð um út- færslu þeirra var birt fyrir skömmu. Haraldur Ingi Birgisson, lögfræðing- ur á skatta- og lögfræðisviði Deloitte, segir reglugerðina valda nokkrum vonbrigðum og geta dregið úr sam- keppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Árið 2013 voru leiðbeiningarreglur OCED um milli- verðlagningu inn- leiddar í íslensk lög. Þeim er ætlað að koma í veg fyr- ir að vara eða þjónusta sé seld á milli tengdra aðila á óeðlilega háu eða lágu verði, í því skyni að hafa áhrif á skatt- stofna aðilanna. Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi fyrir rúmu ári var reglugerð til út- færslu á þeim ekki birt fyrr en 23. desember síðastliðinn. „Við höfum þurft að bíða ansi lengi eftir setningu reglugerðar sem útfærir þessar regl- ur nánar. Reglugerðin ber með sér að íslensk yfirvöld ætla að ganga töluvert lengra í þessum málum en mörg önnur ríki,“ segir Haraldur. Nefnir hann tvö dæmi. Annars vegar sé lögð skylda á herðar þeim fyrirtækjum sem falla undir reglurn- ar, það er fyrirtækjum sem hafa yfir milljarð í árlegri veltu eða heildar- eignir, að verðmeta allar óefnislegar eignir sem nýttar eru í viðskiptum. Hins vegar falli viðskipti á milli tveggja innlendra aðila undir reglu- gerðina. Hvort tveggja tíðkist alla jafna ekki í mörgum öðrum ríkjum. „Með sanni má segja segja að höggvið sé í samkeppnishæfni ís- lenskra fyrirtækja í samanburði við fyrirtæki annars staðar,“ segir Har- aldur. „Maður veltir því fyrir sé hvort ákjósanlegt sé að taka svona stórt stökk í upphafi, sér í lagi í ljósi þess að við erum með síðustu OECD-lönd- um til að innleiða reglurnar. Danir, sem hafa 15 ára reynslu af því að vinna með leiðbeiningarnar, ganga ekki svona langt í framkvæmd. Vilj- um við ekki byrja örlítið hægar og skapa einhverja framkvæmd um beitingu reglnanna, áður en við tök- um stærri skref?“ Hann segir reglurnar skapa aukið flækjustig og reglubyrði, sérstaklega fyrir fyrirtæki í alþjóðlegum rekstri, sem séu vön reglum um milliverð- lagningu annars staðar. „Við teljum réttara að stíga varlega til jarðar. Núna þurfa fyrirtæki sem falla undir reglurnar að undirbúa svokallaða milliverðlagsskjölun, samkvæmt for- skrift OECD. Þau þurfa þannig að halda viðamiklu magni af upplýsing- um til haga.“ Haraldur furðar sig á því að við- skipti á milli fyrirtækja sem aðeins eru starfrækt á Íslandi séu látin falla undir reglur um milliverðlagningu. „Þau fyrirtæki eru þarna undir, þó svo að þau séu ekki í aðstöðu til að flytja skattstofna á milli landa. Fyr- irtækin eru jafnvel samsköttuð og skattlagning þeirra á sér stað á Ís- landi. Þess vegna veltum við fyrir okkur nauðsyn þess að þessi fyrirtæki þurfi að undirbúa ítarlega milliverðlags- skjölun og undirgangast ríkar kröf- ur, með tilheyrandi kostnaði.“ Fordæmi fyrir undanþágum Fordæmi eru fyrir því að undan- þiggja innlenda aðila frá reglum um milliverðlagningu, að sögn Haraldar. „Lönd í kringum okkur, til dæmis Þýskaland og Finnland, eru ekki með innlenda aðila þarna undir. Í Dan- mörku er ekki fylgst með innlendum aðilum í framkvæmd. Þó svo að regl- urnar taki til þeirra er áherslan öll á fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum.“ Þá bendir hann á að fordæmi frá dómstóli ESB styðji að það teljist ekki mismunun að undanskilja inn- lenda aðila frá reglum um milliverð- lagningu, þar sem ekki sé um sam- bærilegar aðstæður að ræða. ,,Þörfin á þessum viðbótarupplýsingum um viðskipti innlendra aðila er vart til staðar, því skattyfirvöld hér heima eru með allar helstu upplýsingar. Löggjöfin og reglugerðin ollu okkur því nokkrum vonbrigðum.“ Viðhorfskönnun sem alþjóðafyrir- tækið Deloitte framkvæmdi, með því að spyrja 1.700 stjórnendur víða um heim, leiddi í ljós að tæpur helmingur aðspurðra taldi reglur um milliverð- lagningu fela í sér miðlungs eða mikla áhættu fyrir sinn rekstur. Aðeins tæpur fimmtungur var nokkuð sáttur með hæfni sína til að takast á við áhættuna. ,,Áhættan felst í því að skattyfir- völd geta farið í úttekt á viðskiptum tengdra aðila til að athuga hvort fyrirtæki hafi hagað sínum viðskipt- um í samræmi við leiðbeiningarnar. Ef svo er ekki, geta skattayfirvöld endurákvarðað skattstofna þess,“ út- skýrir Haraldur. ,,Félag sem hefur átt í miklum viðskiptum við tengda aðila getur þannig lent í úttekt og skattyfirvöld endurákvarðað hagnað þess upp eða niður, um verulegar fjárhæðir.“ Haraldur segir Dani tiltölulega að- gangsharða í þessum efnum. Á árun- um 2008-2013 hafa skattyfirvöld hækkað skattstofna þar í landi um 75 milljarða danskra króna, eða um 1.560 milljarða íslenskra króna, í kjöl- far úttektar á viðskiptum tengdra að- ila. Stór fyrirtæki geti vænst þess að vera tekin út á þriggja ára fresti. Reglur um viðskipti tengdra aðila draga úr samkeppnishæfni  Lögfræðingur hjá Deloitte telur reglur um milliverðlagningu óþarflega íþyngjandi Morgunblaðið/ÞÖK OECD-reglur Auknar kröfur um skjölun verða gerðar til fyrirtækja. Haraldur Ingi Birgisson 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 ● Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur nú staðfest 350.000 króna stjórn- valdssekt sem Neytendastofa lagði á Plúsmarkaðinn vegna verðmerkinga á síðasta ári. Í úrskurðinum segir að það hafi verið í fullu samræmi við meðalhófsreglu að beita sektum fyrir brot Plúsmarkaðar- ins. Þá sé sektarfjárhæðin innan hóf- legra marka. Sektar Plúsmarkaðinn ● Englandsbanki tilkynnti í gær óbreytta stýrivexti og verða þeir áfram 0,5%. Þrátt fyrir aukinn hagvöxt og vísbend- ingar um að laun kunni að hækka hraðar en verðbólga í Bretlandi áttu greinendur á markaði almennt ekki von á tíðindum á þessum fyrsta vaxtaákvörðunarfundi ársins. Er því almennt spáð að vextir muni ekki hækka aftur fyrr en á síðari helmingi ársins og jafnvel ekki fyrr en á næsta ári. Verðbólga er lítil um þessar mundir en hún fór niður í 1,0% í nóv- ember, sitt lægsta gildi í 12 ár. Óbreyttir vextir í Bretlandi Stuttar fréttir…                                    !"  "! !#$ $" " #$ #  $ %#" &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 $ $"! $ "$ $#$ $"$ "!!#  !!  %  %#" $! $!% $ "$! $$ $## "    $$ % % "! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Árið 2012 var heimsaflinn 92,5 milljónir tonna, sem er tæpum 2,4 milljónum tonna minna en árið áður. Norðmenn veiddu mest allra Evrópuþjóða og eru í 12. sæti yfir mestu veiðiþjóðir. Íslendingar veiddu næstmest allra Evrópuþjóða og eru í 18. sæti heimslistans. Tæpar 1,3 milljónir tonna veiddust við Ísland árið 2012, eða um 1,4% af heimsaflanum. Þetta kem- ur fram á heimasíðu Hagstofunnar. Ísland í 18. sæti yfir mestu veiðiþjóðir Rekstrarafkoma Samsung á fjórða ársfjórðungi féll um 37,4% miðað við sama tímabil 2013. Afkoman var samt sem áður betri en markaðs- greinendur höfðu búist við og bætti kröftug sala á minnisflögum upp samdrátt í sölu á farsímum. Rekstr- arhagnaður nam 4,7 milljörðum dollara á fjórða ársfjórðungi, eða sem svarar til liðlega 615 milljarða íslenskra króna. Markaðshlutdeild Samsung í sölu farsíma í heiminum hefur fallið úr 35% niður í 25% á einu ári. AFP Snjallúr Afkoma Samsung dalar. Lakari afkoma Samsung Nýjar reglur um milliverðlagn- ingu (e. Transfer Pricing) hafa gilt á Íslandi frá lokum 2013. Reglugerð um útfærslu þeirra var svo birt skömmu fyrir ára- mótin. Um er að ræða innleið- ingu á OECD-reglum. Milliverð- lagning er verðlagning á vöru og þjónustu milli tengdra aðila. Reglunum er ætlað að koma í veg fyrir að verð fyrir vöru eða þjónustu í viðskiptum tengdra aðila sé óeðlilega hátt eða lágt, í því skyni að hafa áhrif á skattstofn félaganna. Þannig er komið í veg fyrir að móður- og dótturfélag hagræði viðskiptum sínum þannig að annað félaganna verði fyrir rekstrartapi eða að hagnaður sé skattlagður í landi þar sem skattur er lægri. OECD-reglur innleiddar MILLIVERÐLAGNING Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Margar gerðir af innihurðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.