Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir er að undirbúa tónleika á Myrkummúsíkdögum í lok janúar en hún er í Kammerkór Suðurlandssem Hilmar Örn Agnarsson stjórnar. Kórinn ætlar að frum- flytja verkið Níu nætur eftir sænska tónskáldið Emil Råberg sem hann samdi við ljóð eftir Gerði Kristnýju. „Þetta er norrænt sam- starfsverkefni, við kynntumst honum þegar við vorum á tónleika- ferðalagi í Umeå í Svíþjóð. Hann hefur komið hingað að æfa með okkur og mun koma aftur fyrir tónleikana. Við höfum tekið þátt í nokkrum svona fjölþjóðlegum verkefnum og mikið ferðast til ann- arra landa undanfarið vegna þess. Í sumar vorum við á alþjóðlegu kóramóti í Umeå og þar á undan í Salisbury á Englandi á stórum tónleikum sem við héldum í dómkirkjunni þar og í nóvember 2013 vorum við í London með tónleika. Við fórum því í þrjár tónleikaferð- ir á innan við ári og það var svolítil törn.“ Kórinn hefur annars verið duglegur að flytja ný íslensk verk og einnig tónsmíðar eftir enska tónskáldið John Tavener og m.a. frumflutt verk eftir hann. Svanhvít vinnur á þýðingastofunni Skopos á Klapparstíg. „Við þýðum alls konar hugbúnaðartexta, markaðstexta og fleira, meðal annars úr ensku, dönsku og sænsku.“ Svanhvít lærði einnig spænsku og bjó í Síle og á Spáni. „Það er samt lítið um þýðingar úr spænsku hjá okkur.“ Svanhvít býst við að fara með vinnufélögunum á krána Skúla eftir vinnu og jafnvel fara svo út að borða í tilefni dagsins, en kærasti hennar, Ólafur Sindri Ólafsson, vinnur líka á þýðingastofunni. For- eldrar Svanhvítar eru Sigrún Elfa Reynisdóttir og Ingólfur Guðna- son, garðyrkjubændur á Engi í Laugarási í Biskupstungum. Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir er 32 ára í dag Afslöppun á jólum Svanhvít kíkir í bók í foreldrahúsum í Laugarási. Í æfingum fyrir Myrka músíkdaga Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Selfossi Ásgeir Örn Björgvinsson fæddist 27. desember 2013 kl. 08.06. Hann vó 4.520 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Björgvin H. Ámundason og Stefanía G. Sigurbjörnsdóttir. Nýir borgarar Hafnarfirði Elía Nótt Gunnarsdóttir Waage fæddist 19. janúar 2014 kl. 16.05. Hún vó 2.588 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Gunnar Þór Þorsteinsson og Silja Rut Sigurjónsdóttir Waage. G unnar Már fæddist í Reykjavík 9.1. 1965 en ólst upp í Vestmanna- eyjum. Hann æfði og keppti í knattspyrnu með ÍBV og ÍR á sínum yngri árum. Hann var í Barnaskóla Vestmanna- eyja, lauk stúdentsprófi frá VÍ, við- skipafræðiprófi frá HÍ, AMP-gráðu frá HR og prófum frá IESE Business School í Barcelona. Gunnar Már var umboðsmaður dægurlagahljómsveitarinnar Greif- anna 1987-89 og vann þá við dag- skrárgerð hjá RÚV. Auk þess sinnti hann knattspyrnuþjálfun um skeið hjá ÍBV og HK. Gunnar Már starfaði hjá Flug- leiðum á Vestmannaeyjaflugvelli 1986-94, með hléum, samhliða námi og vann á Endurskoðunarskrifstofu Sigurðar Stefánssonar í Eyjum um skeið. Í apríl 1994 var hann ráðinn sölu- og markaðsstjóri Flugleiða inn- anlands, varð sölustjóri Icelandair í Þýskalandi í ársbyrjun 1997 og síðar svæðisstjóri Icelandair í Mið-Evrópu, með aðsetur í Frankfurt. Í mars 2005 varð Gunnar Már framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair en hefur verið framkvæmdastjóri Ice- landair Cargo frá því í maí 2008. Gunnar Már hefur setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðustu sjö ár og er varaformaður hlaupa- klúbbsins JB run. Liverpool - AC Milan 2005 Áhugamál Gunnars Más snúast flest um íþróttir, ekki síst knatt- spyrnu: „Ég hef haft sérstakt dálæti á þýskri knattspyrnu eftir að hafa búið þar í næstum níu ár. Eins og aðrir Íslendingar á ég samt lið í enska boltanum og hafa síðustu ár verið erfið fyrir mitt lið, Liverpool. Ég náði þó að upplifa það að vera á vellinum í Istanbul þegar Liverpool varð Evrópumeistari árið 2005 svo eftirminnilega eftir að vera 0-3 undir í hálfleik á móti AC Milan. Það er ein af stóru stundunum sem aldrei gleymast.“ Einhver með holu í höggi? „Golfið er áhugamál númer eitt í dag og ég stunda það af kappi yfir Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri – 50 ára Í hellaleiðangri á Reykjanesi Gunnar Már og Linda með börnunum, Silju og Andra Steini, í ónefndum hellismunna. Kappsamur Eyjapeyi hjá Icelandair Cargo Glæsisalir Gunnar Már og Linda í kvöldverðarboði í Kastalanum í Prag. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is sem gleður Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur, fjölklippur, sandblásturstæki og margt fleira. Sýningarvélar á staðnum og rekstrarvörur að auki - fyrir fagfólk í léttum iðnaði og lítil verkstæði IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.