Morgunblaðið - 09.01.2015, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.01.2015, Qupperneq 4
Neysla fæðubótarefna og stera meðal framhaldsskólanema A: Æfa með íþróttafélagi 4 sinnum eða oftar í viku B: Æfa íþróttir utan íþróttafélaga 4 sinnum eða oftar í viku Hafa notað næringar- og próteinduft: Nota næringar- og próteinduft reglulega: Hafa notað anabólíska stera: Hafa notað brennslutöflur: 20% 39% 41% 56% 4,7% 16% 20% 2,9% 0,7% SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Neysla fæðubótarefna, brennslu- taflna og stera er talsvert algengari meðal þeirra framhaldsskólanema sem æfa íþróttir utan íþróttafélaga en þeirra sem æfa íþróttir með íþróttafélögum. Strákar eru líklegri til að nota slík efni en stelpur, að brennslutöflum undanskildum en notkun þeirra er hlutfallslega meiri á milli stelpna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókninni Ungt fólk sem Rannsóknir og greining gerði fyrir Lyfjaeftirlit ÍSÍ. Um 11.000 fram- haldsskólanemar á aldrinum 16-20 ára víðs vegar um land tóku þátt og verða niðurstöðurnar kynntar í dag. „Gögnin sýna skýrt að notkun fæðubótarefna og stera tengist frek- ar íþróttum sem eru stundaðar utan hefðbundinna íþróttafélaga og það er í samræmi við fyrri rannsóknir á þessu sviði,“ segir Viðar Hall- dórsson, doktor í íþróttafélagsfræði sem er einn aðstandenda rannsókn- arinnar. „Það er lykilatriði í þessu sambandi í hvaða umgjörð íþróttir eru stundaðar. Skilgreiningin á því hvað er íþrótt hefur víkkað og í raun er ekki hægt að fullyrða að allar íþróttir séu heilbrigðar eða hafi for- varnargildi.“ Minni notkun hér á landi Með íþróttum sem stundaðar eru utan íþróttafélaga er m.a. átt við lyft- ingar, vaxtarrækt og líkamsrækt sem er stunduð í líkamsrækt- arstöðvum, en að sögn Viðars eru vísbendingar um að notkun áð- urnefndra efna tengist þeirri iðkun. Í rannsókninni voru bornir saman tveir hópar; þeir sem æfa íþróttir fjórum sinnum í viku eða oftar innan skipulagðs starfs íþróttafélags og þeir sem stunda íþróttir jafnoft í viku en utan íþróttafélaga. Mikill munur kemur fram á notkun þessarra tveggja hópa á fæðubótarefnum og sterum. „Þeir sem æfa fjórum sinn- um eða oftar í viku er hópurinn sem er að æfa af alvöru og ætti því að hafa mestan ávinning og hvata af því að nota þessi efni,“ segir Viðar. Sam- anburður á þessum tveimur hópum er sýndur hér að ofan og er mun- urinn talsverður. Til dæmis má þar sjá að þeir sem æfa utan íþrótta- félaga neyta allra efna í meiri mæli, jafnt löglegra og ólöglegra og mælist steranotkun fjórum sinnum meiri hjá þeim og þá er notkun brennslutaflna meira en þrisvar sinnum algengari en hjá þeim sem æfa íþróttir með íþróttafélögum. Viðar segir að niðurstöðurnar beri að taka með ákveðnum fyrirvara og ekki megi gleyma því að ekki séu all- ir krakkar á þessum aldri í fram- haldsskólum. Notkunin gæti því hugsanlega verið enn meiri ef hún væri könnuð hjá öllum á þessum til- tekna aldri.„En þetta eru tilteknar vísbendingar og sýna aðallega þenn- an mun á milli hópa,“ segir Viðar. Hann segir þessa rannsókn og fyrri rannsóknir sýna að sterar og fæðu- bótarefni séu minna notuð hér á landi en víða annars staðar, en rannsóknir alls staðar sýni að strákar noti stera og fæðubótarefni meira en stelpur. „Hugsanlega liggur það í menning- unni. Strákar virðast oft afreksmið- aðri í sinni íþróttaiðkun en stelpur. Það er líka búið að normalísera það meira meðal stráka að nota stera og próteinduft.“ Gefa fögur fyrirheit Sjá má notkun stráka og stelpna á töflunni hér að ofan og þar sést m.a. að eina efnið sem er meira notað meðal stelpna eru brennslutöflur, annars hafa strákarnir vinninginn. T.d. er mikill munur á notkun stera og varðandi fæðubótarefni, önnur en næringar- og próteinduft, er notkun stráka meira en tvöföld á við stelpna. Spurður hvaða ályktanir megi draga af niðurstöðum rannsókn- arinnar segir Viðar þær margþættar. „Þetta á sér rætur í menningunni og það er margt sem ýtir undir þetta. Það er mikil samkeppni í samfélag- inu, það verður sífellt mikilvægara í íþróttum að komast í afrekshópa og samkeppni í skólum hefur líka auk- ist, allt niður í grunnskóla. Svo er mikil samfélagsleg pressa á ungt fólk að ná árangri, auk útlitsdýrkunar. Fæðubótarefni og ólögleg efni gefa fyrirheit um að ná markmiðum sam- félagsins á fljótvirkari og auðveldari hátt. Starfsemi íþróttafélaganna á aftur á móti að sporna við þessu og ég tel að það hafi tekist ágætlega, eins og rannsóknin sýnir.“ Þeir sem æfa utan íþrótta- félaga nota frekar stera  Mikill munur á notkun fæðubótarefna og stera meðal framhaldsskólanema eftir því hvar þeir stunda íþróttir  Stelpurnar nota frekar brennslutöflur Hlutfall framhaldsskólastráka og -stelpna sem hafa neytt fæðubótarefna og ólöglegra lyfja Strákar Stelpur Önnur fæðubótarefni: Efedrín: Vefaukandi sterar: Brennslutöflur: 20% 8% 35% 23% 6,7% 8,7% 0,3% 2,7% Morgunblaðið/Ernir Rannsókn Viðar Halldórsson íþróttafélagsfræðingur segir notkun fæðu- bótarefna og stera meðal annars tengjast mikilli samkeppni í samfélaginu. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015 Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrr- verandi innanríkisráðherra og vara- formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tilkynnt þingflokki sjálfstæðismanna að hún muni taka sér nokkurra vikna hlé frá þingstörfum, en hún fór í leyfi eftir að hún sagði af sér ráðherra- dómi í lok nóvember. Segir hún í bréfi til kollega sinna að hún þurfi að vinna betur úr þeirri reynslu og því sem hún hafi lært um stjórnmál, stjórnkerfið, íslenskt samfélag og líf- ið sjálft. Það hafi verið sérstök reynsla að standa utan stjórnmál- anna undanfarnar vikur. Í bréfinu segir Hanna Birna meðal annars að hún hafi farið yfir atburði liðins árs og reynt að draga af þeim pólitísku áföllum og átökum fleiri já- kvæða en neikvæða lærdóma. „Ég vildi óska að ég hefði fyrr en ég gerði áttað mig á því hversu erfitt málið yrði; vildi óska að ég hefði gert minna af því að útskýra atburðarás og grípa til varna í máli sem ég gat ekki útskýrt; og vildi óska að ég hefði aldrei rætt málið eða átt nokkur samskipti við fyrrverandi lögreglu- stjóra vegna þess, þrátt fyrir skýr- ingar hans um að hann færi ekki með stjórn málsins. Því hef ég þegar komið til umboðsmanns Alþingis með bréfi í dag.“ Hyggst læra af reynslunni Hanna Birna segist vera ákveðin í að læra af erfiðri reynslu síðasta árs; forgangsraða persónulega með öðr- um hætti en hún hafi gert og fylgja hjartanu meira en hefðunum, hvort sem er í stjórnmálunum eða annars staðar. Málið hafi tekið mjög á sig og sína. „Mér finnst ég þurfa að vinna betur úr þeirri reynslu og því sem ég hef að undanförnu lært um stjórn- mál, stjórnkerfið, íslenskt samfélag og sjálfsagt bara lífið sjálft. Ég mun því, líkt og áður hefur komið fram, taka mér nokkurra vikna hlé frá þingstörfum,“ segir í bréfi Hönnu Birnu. Í leyfi Hanna Birna hyggst fram- lengja leyfi sitt frá þingstörfum. Tekur sér nokkurra vikna hlé  Bréf til umboðs- manns Alþingis í gær Guðni Einarsson gudni@mbl.is Verkefnin Flavour of Iceland, Green Marine Technology og Ocean Excellence fengu í gær sérstaka viðurkenningu Íslenska sjávarklas- ans fyrir framúrskarandi árangur 2014. Flavour of Iceland selur íslenskar mat- vörur til skemmtiferðaskipa sem koma til landsins. Það er samvinnuverkefni TVG- Zimsen og Ekrunnar í samstarfi við Banana, Kjarnafæði, Mjólkursamsöluna, Sjófisk, Sölu- félag garðyrkjumanna og Vífilfell. „Við erum með íslenskt kjöt, fisk, mjólk- urafurðir, grænmeti og drykkjarvörur,“ sagði Björn Einarsson, framkvæmdastjóri TVG- Zimsen. Hann sagði boðið upp á vörur sem væru samkeppnishæfar við erlendar vörur í gæðum og verði. „Það eru mikil tækifæri í þessu og þessi viðskipti við skemmti- ferðaskipin fara hraðvaxandi.“ Verkefnið Flavour of Iceland hófst árið 2013 og salan á matvörum og kosti til skemmtiferðaskipa óx um 70% á fyrsta starfsári frá 2013 til 2014. Björn sagði að hingað til hefðu skemmti- ferðaskipin birgt sig upp af kosti í útlöndum. Markaðssetningin miðaði að því að komast í viðskipti við skip sem ekki hefðu tekið kost hér og eins að auka viðskiptin við þau sem hefðu keypt íslenskar matvörur. „Við erum sannfærðir um að þær vörur sem við bjóðum uppfylli kröfur varðandi gæði og ferskleika auk þess að vera á samkeppn- ishæfu verði. Þessi skip eru í eðli sínu fljót- andi hótel og það eru miklar kröfur til gæða í hótelrekstri,“ sagði Björn. Hann sagði að þeir hefðu fengið þau viðbrögð frá kaupendum að gæði varanna væru mikil. Hins vegar væri mikil samkeppni um verð og innkaupin þyrftu að rúmast innan fjárhagsáætlana út- gerðanna. Tekur tíma að komast á leiðarenda „Við vitum að það mun taka nokkur ár að byggja þetta upp og komast á leiðarenda. Út- gerðirnar sem gera út þessi skip eru risastór- ar og það tekur oft tíma að komast í samband við rétta fólkið. Það eru miklir möguleikar í þessu,“ sagði Björn. Flavour of Iceland hefur kynnt þjónustu sína á vörusýningum erlendis og hyggur á meira markaðsstarf. Björn sagði stefnt að því að Flavour of Iceland gæti fullnægt þörf skipanna fyrir ákveðnar vörutegundir þegar þau kæmu hingað. Selja matvæli til skemmtiferðaskipa Morgunblaðið/Golli Árangur Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra afhenti viðurkenningar Íslenska sjávarklasans.  Íslenski sjávarklasinn veitti í gær þremur verkefnum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.