Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015
Tökum að okkur trjáklippingar,
trjáfellingar og stubbatætingu.
Vandvirk og snögg þjónusta.
Sími 571 2000
www.hreinirgardar.is
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Franska lögreglan leitar nú tveggja
bræðra, Chérifs Kouachis, 32 ára, og
Saïds Kouachis, 34 ára, sem eru grun-
aðir um aðild að hryðjuverkaárásinni
í París á miðvikudaginn. Hinn 18 ára
Hamyd Mourad, sem einnig er grun-
aður um aðild að voðaverkunum, gaf
sig sjálfur fram við lögreglu eftir að
hann sá nafn sitt á samfélagsmiðlum.
Hann var handtekinn og er nú í vörslu
lögreglu. Þremenningarnir eru allir
tengdir fjölskylduböndum. Alls eru
sjö í haldi lögreglu vegna árásarinnar
í París að sögn forsætisráðherra
Frakklands, Manuels Valls. Þar á
meðal eru bæði karlar og konur sem
tengjast bræðrunum sem grunaðir
eru um árásina.
Alls létust tólf í árásinni
Það var að morgni miðvikudags
sem tveir grímuklæddir menn, vopn-
aðir AK-47-byssum, réðust inn í rit-
stjórnarskrifstofu háðsádeilutíma-
ritsins Charlie Hebdo í 11. hverfi
Parísarborgar. Heimildir NBC News
herma að tveir lögreglumenn hafi
verið á vakt fyrir utan skrifstofu tíma-
ritsins en þeirra hlutverk var að gæta
ritstjórans Stephanes Charbonniers.
Hann hefur notið lögregluverndar í
nokkur ár vegna líflátshótana. Hann
lést í árásinni sem og annar lögreglu-
mannanna. Hinn lögreglumaðurinn
særðist í árásinni en alls særðust ell-
efu manns, þar af fjórir alvarlega.
Skotmörk árásarmannanna voru
starfsmenn tímaritsins sem höfðu
teiknað og tekið þátt í birtingu skop-
mynda af Múhameð spámanni.
Spurðu þeir fórnarlömb sín að nafni
áður en þeir tóku þau af lífi. Meðal
þeirra sem voru teknir af lífi voru
Bernard Maris, hagfræðingur hjá
Seðlabanka Frakklands, sem einnig
var dálkahöfundur á tímaritinu, og
þrír teiknarar. Alls létust níu á rit-
stjórn blaðsins, tveir lögreglumenn
og einn starfsmaður byggingarinnar í
árásinni.
Bræðurnir voru undir eftirliti
Bræðurnir sem um ræðir eru vel
þekktir hjá leyniþjónustu Frakklands
vegna skoðana sinna og hafa verið
undir eftirliti í einhvern tíma. Báðir
eru þeir fæddir í París en foreldrar
þeirra, alsírskir innflytjendur, létust
þegar þeir voru ungir. Bræðrunum
var þá komið í fóstur og ólst annar
þeirra til að mynda upp hjá fjölskyldu
á Bretagne-skaga.
Sá yngri, Chérif, var dæmdur í
þriggja ára fangelsi, þar af átján mán-
uði skilorðsbundna, árið 2008 fyrir
brot á hryðjuverkalögum með því að
safna liði til þess að berjast með
skæruliðum í Írak. Á þeim tíma hélt
hann því fram að ástæðan fyrir því
hefði verið reiði vegna mynda sem
birtar voru af pyntingum Bandaríkja-
manna á íröskum föngum í Abu Ghra-
ib-fangelsinu skammt frá Bagdad.
Árið 2010 kom nafn hans fram í lög-
regluskýrslu í tengslum við fyrirhug-
aðan flótta Smains Aits Alis Belka-
cems úr fangelsi en sá er fyrrverandi
liðsmaður íslamskra öfgasamtaka í
Alsír, GIA, sem stóðu á bak við nokk-
ur sprengjutilræði og flugrán í
Frakklandi á tíunda áratugnum.
Bróðir hans, Saïd, bjó í Reims
ásamt eiginkonu sinni en mikill við-
búnaður var þar í fyrradag af hálfu
lögreglu. Nágranni hans þar segir í
samtali við Le Figaro að Saïd hafi
verið hæglátur nágranni og aldrei
nein vandamál komið upp. Hann hafi
iðkað trú sína en aldrei reynt að snúa
neinum til íslam. Þá er Hamyd Mour-
ad tengdur bræðrunum fjölskyldu-
böndum en hann ber sama ættarnafn
og eiginkona Chérifs Kouachi. Hún er
ættuð úr bænum Charle-
ville-Mezieres í Ardennes-héraði þar
sem Mourad gaf sig fram.
Árásin í París dásömuð
Ekki er ljóst hvort bræðurnir
tengjast einhverjum ákveðnum sam-
tökum en ýmsu hefur heyrst fleygt.
Heimildir AFP-fréttastofunnar
herma að þremenningarnir séu með
tengsl við al-Qaeda í Jemen en það
hefur ekki fengist staðfest. Vitni segj-
ast hafa heyrt árásarmennina kalla
„Guð er almáttugur“ og eins „við höf-
um hefnt fyrir spámanninn“.
Einnig velta menn fyrir sér
tengslum þeirra við Ríki íslams. Einn
af fyrrverandi félögum Chérifs í
hryðjuverkasellunni sem tengist 19.
hverfi Parísarborgar, Buttes-Chau-
mont, Boubaker el Hakim, kemur
fram í áróðursmyndskeiði Ríkis ísl-
ams sem var birt í desember í fyrra.
Samkvæmt skýrslu sem samtökin
SITE, sem vakta miðla íslamskra
öfgasamtaka, birti hryðjuverkasíða
sem tengist Ríki íslams, Afriqiyah
Media, einnig yfirlýsingu þar sem
árásin í París í fyrradag var dásömuð.
Taldir hafa rænt bensínstöð
Í gær var sorgardagur í Frakk-
landi og þeirra tólf sem létust í árás-
inni minnst. Mínútuþögn var á hádegi
auk þess sem klukkur Notre Dame
hringdu í tíu mínútur. Þá hafa fjöl-
margar minningarsamkomur verið
haldnar víðs vegar um Frakkland og
heiminn. Mjög margir báru merki
með áletruninni „Je suis Charlie“ eða
„Ég er Charlie“ sem merki um sam-
stöðu með fórnarlömbunum og mál-
stað þeirra.
Hæsta viðbúnaðarstig vegna
hryðjuverkaógnar er í gildi í Frakk-
landi og eru mun fleiri hermenn og
lögreglumenn að störfum en vant er.
Meðal annars er sérstaklega fylgst
með skrifstofum fjölmiðla, bygging-
um tengdum trú, samgöngum og öðr-
um stöðum þar sem líkur eru taldar á
að framin séu hryðjuverk.
Sprengjum varpað á moskur
Bræðurnir eru þar að auki taldir
hafa rænt bensínstöð í gærmorgun.
Eru þeir grunaðir um að hafa stolið
mat og bensíni og hleypt af skotum
skammt frá Villers-Cotterets í L’-
Aisne norðaustur af París. Sam-
kvæmt fréttum fjölmiðla, bæði
enskra og franskra, virðist sem lýsing
starfsmanns á árásarmönnum passi
við lýsingu á bræðrunum, en þeir
voru þungvopnaðir og grímuklæddir.
Lögreglan lokaði öllum helstu leiðum
inn í París þar sem árásamennirnir
eru taldir stefna þangað á nýjan leik.
Ráðist hefur verið á moskur á
nokkrum stöðum í Frakklandi í kjöl-
far árásarinnar á miðvikudaginn.
Þremur handsprengjum var varpað á
mosku í Le Mans í að kvöldi miðviku-
dags og eins eru göt eftir byssukúlur
á rúðum moskunnar. Enginn slasað-
ist í árásinni.
Í Port-la-Nouvelle, skammt frá
Narbonne í Suður-Frakklandi, var
skotið á bænasal múslima skömmu
eftir kvöldbænir. Enginn var í salnum
þegar árásin var gerð. Í gærmorgun
sprakk svo sprengja við kebab-stað,
skammt frá mosku í bænum Ville-
franche-sur-Saone í Austur-Frakk-
landi, en enginn særðist í árásinni.
Lögreglan leitar franskra bræðra
sem grunaðir eru um voðaverkin
Chérif og Saïd Kouachi á flótta undan lögreglunni Voru undir eftirliti leyniþjónustu Frakklands
AFP
Stuðningur Fólk hefur safnast saman víða um heim til að sýna fórnarlömbunum og málstað þeirra stuðning.
Bræðurnir Chérif Kouachi og Saïd Kouachi eru sagðir hafa staðið á bak
við árásirnar í París í fyrradag. Lögreglan leitar þeirra nú en þeir eru
taldir hafa rænt bensínstöð í norðurhluta Frakklands í gærmorgun,
skammt frá Villers-Cotterets í L’Aisne.
Samkvæmt fréttum fjölmiðla, bæði enskra og franskra, virðist sem
lýsing starfsmanns á árásarmönnum passi við lýsingu á bræðrunum.
Þeir voru þungvopnaðir og grímuklæddir.
Taldir hafa rænt bensínstöð
BRÆÐURNIR CHÉRIF OG SAÏD KOUACHI Á FLÓTTA
Tveir lögregluþjónar urðu fyrir
skotárás í gærmorgun í Montrouge
Hauts-de-Seine-hverfinu í París.
Atvikið átti sér stað við 101 Avenue
Pierre Brossolette en lögreglan var
kölluð þangað vegna umferðar-
óhapps. Tveir menn komu aðvíf-
andi, vopnaðir M5-hríðskota-
rifflum, og skutu á lögreglu-
mennina. Kona í umferðar-
lögreglunni var skotin í bakið og
lést skömmu síðar. Hitt fórnar-
lambið særðist alvarlega en er þó
ekki talið í lífshættu.
Að sögn innanríkisráðherra
Frakklands, Bernards Cazeneuves,
sem flýtti sér á vettvang eftir að til-
kynnt var um árásina snemma í
gærmorgun, er árásamannanna
enn leitað.
Árásin í gærmorgun kemur að-
eins degi á eftir árás hryðjuverka-
manna á skrifstofur blaðsins Charl-
ie Hebdo þar sem tólf létu lífið og
tíu særðust en ekki er vitað hvort
árásirnar tengjast.
Óljóst hvort morð á
lögreglukonu teng-
ist hryðjuverkinu