Morgunblaðið - 09.01.2015, Blaðsíða 35
sumartímann, fyrst einkum með fé-
lögum mínum en svo hefur eigin-
konan komið sterk inn nú seinni ár-
in og sýnt golfinu mikinn áhuga.
Árangurinn hjá mér hefur verið
þokkalegur, forgjöfin komin vel nið-
ur í eins stafs tölu. Eftirminnileg-
asti golfhringurinn var á hinum
heimsfræga Old Course-golfvelli í
St. Andrews í Skotlandi. Þar náði
ég holu í höggi á 11. braut, en ég
held að ég sé eini Íslendingurinn
sem hefur náð því. Ef ekki er við-
komandi vinsamlegast beðinn um
að gefa sig fram.
Á veturna er vikunni skipt upp í
líkamsrækt, box og innanhúss-
fótbolta. Bumbuboltinn er spilaður
af kappi með æskufélögum úr Eyj-
um sem hafa leikið knattspyrnu
saman a.m.k. einu sinni í viku í
aldarfjórðung. Ég tilheyri þó ennþá
yngra liði hópsins.
Fjölskyldan fer svo saman á skíði
þegar færi gefst, hér heima og í
Ölpunum en flest okkar hófu skíða-
ferilinn í Þýskalandi.
Annars eru ferðalög ríkur þáttur í
mínu lífi, ferðir vegna starfsins og
fjölskylduferðir að ógleymdum golf-
ferðum með góðum vinahópi. Þýska-
land er uppáhaldsáfangastaðurinn
en þar á fjölskyldan marga vini.“
Gunnar Már hefur ekki áhyggjur
af aldrinum. Fyrir nokkrum vikum
var hann beðinn um að sýna skilríki
við mikla kátínu samferðafólks við
inngang á einum af vinsælustu
skemmtistöðum borgarinnar þar
sem aldurstakmark var 25 ár.
Fjölskylda
Gunnar Már kvæntist 18.5. 1996
Lindu Hængsdóttur, f. 8.2. 1966,
framhaldsskólakennara. Foreldrar
hennar eru Hængur Þorsteinsson, f.
3.2. 1938, tannlæknir í Reykjavík, og
Hannelore Köhler, f. 31.7. 1943,
heildsali.
Börn Gunnars Más og Lindu eru
Andri Steinn Gunnarsson, f. 16.12.
1996, framhaldsskólanemi í Reykja-
vik; Silja Gunnarsdóttir, f. 21.10.
1999, grunnskólanemi í Reykjavík.
Systkini Gunnars Más eru Nanna
Dröfn Sigurfinnsdóttir, f. 28.12.
1966, leikskólakennari í Vestmanna-
eyjum, og Sigurfinnur Viðar Sigur-
finnsson, f. 9.4. 1975, sjómaður í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar Gunnars Más eru
Sigurfinnur Sigurfinnsson, f. 18.6.
1944, kennari og myndlistarmaður í
Vestmannaeyjum, og Þorbjörg Júl-
íusdóttir, f. 2.2. 1948, móttökuritari í
Vestmannaeyjum.
Úr frændgarði Gunnars Más Sigurfinnssonar
Gunnar Már
Sigurfinnsson
Einar Sigurfinnsson
b. á Iðu í Biskupstungum
Sigurfinnur Einarsson
verkam. í Vestmannaeyjum
Anna Ester Sigurðardóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Sigurfinnur Sigurfinnsson
kennari og myndlistarm. í
Vestmannaeyjum
Sigurður Bjarnason
sjóm. í Vestmannaeyjum
Þorbjörg Sigurðardóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Kristófer
Þorgeirsson
verkstj. hjá
Vegagerðinni
Gísli
Kristófersson
húsasmíða-
meistari
Rúrik Gíslason
knattspyrnu-
maður
Guðrún
Júlíusdóttir
Sveinbjörn Grétarsson
tónlistarmaður
Þorgeir Kristinn Jónsson
b., sjóm. og verslunarm. í
Breiðafjarðareyjum, síðar á Laugarlandi
Björg Kristófersdóttir
húsfr. á Laugarlandi í
Borgarfirði
Júlíus Gunnar Þorgeirsson
vélstj. í Rvík
Svandís Nanna Pétursdóttir
húsfr. í Rvík
Þorbjörg Júlíusdóttir
móttökuritari í
Vestmannaeyjum
Pétur Sveinsson
sjóm. á Vatnsleysuströnd
Ástríður Jónsdóttir
húsfr. á Vatnsleysuströnd
Karl Sigurbjörnsson
biskup
Guðjón
Karlsson leikari
Rannveig Sigurbjörnsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Magnús Þorkell
Bernharðsson
prófessor í
Bandaríkjunum
Einar Sigurbjörnsson
prófessor í guðfræði við HÍ
Árni Bergur Sigurbjörnsson
prestur í Áskirkju
Sigurbjörn Einarsson
biskup
Þorkell Sigurbjörnsson
tónskáld
Mist Barbara
tónskáld og
deildarstj. við LHÍ
Gíslrún Sigurbergsdóttir
húsfr. á Efri-Steinsmýri í Meðallandi
Ingibjörg
Sigurbergsdóttir
húsfr. á Efri-Steinsmýri
Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir
alþm. og form. Sóknar
Magnús Bjarnfreðsson
sjónvarpsfréttamaður
Árni Magnússon
fyrrv. ráðherra
Páll Magnússon
bæjarritari í Kópavogi
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2015
Haraldur fæddist á Svínárnesivið austanverðan Eyjafjörð9.1. 1921 en ólst upp á
Akureyri frá 1923. Foreldrar hans
voru Jóhann Þorsteinsson Kröyer,
deildarstjóri á Akureyri, og Eva
Pálsdóttir húsfreyja.
Föðursystir Haraldar var Ing-
veldur, móðir Jóhanns Axelssonar
prófessors en meðal móðursystkina
Haraldar voru Bjarni, faðir Jónasar
verkfræðings; Gunnar, faðir Gunn-
ars Snorra sendiherra; Hreinn, for-
stjóri Olíuverslunar Íslands, og
Gestur leikari. Afi Evu var „Há-
karla-Jörundur“ í Hrísey.
Fyrri kona Haraldar var Ragn-
heiður Hallgrímsdóttir Kröyer sem
lést 1959 og eignuðust þau tvö börn,
Evu og Jóhann, en seinni kona Har-
aldar var Unni Börde Kröyer sem
lést 1991 og eignuðust þau tvö börn,
Ara og Katrínu. Haraldur bjó síð-
ustu æviár sín með Auði Rútsdóttur.
Haraldur lauk stúdentsprófi frá
MA 1940, BA-prófi í ensku frá Kal-
forníuháskóla 1943 og MA-prófi í
stjórnfræði þaðan 1945.
Haraldur hóf störf í utanríkis-
ráðuneytinu 1945, var sendiráðsrit-
ari í Stokkhólmi, Ósló og París,
sendiráðunautur í París 1954, deild-
arstjóri í utanríkisráðuneytinu og
forsetaritari 1956-62, sendiráðu-
nautur í Moskvu 1962, var við fasta-
nefnd Sameinuðu þjóðanna og ræð-
ismaður við aðalræðisskrifstofu í
New York 1966, fulltrúi í hafsbotns-
nefnd Sameinuðu þjóðanna, var
skipaður sendiherra í Svíþjóð, Finn-
landi og Austurríki 1970, í Wash-
ington 1973, fastafulltrúi hjá al-
þjóðastofnunum í Genf frá 1976 og
sendiherra í Egyptalandi, Kenýa og
Tansaníu, sendiherra í Moskvu 1980,
í Frakklandi og víðar 1985, fasta-
fulltrúi hjá OECD og sendiherra í
Noregi, Póllandi og Tékkóslóvakíu
1989-92 er hann lét af störfum.
Haraldur var formaður í dóm-
nefnd GATT í deilumáli milli Banda-
ríkjanna og EBE 1979 og í deilumáli
Bandaríkjanna og Japans 1980-81.
Hann hlaut fjölda viðurkenninga og
var heiðursborgari Winnipeg og Los
Angeles.
Haraldur lést 17.10. 1995.
Merkir Íslendingar
Haraldur
Kröyer
90 ára
Anna Valmundardóttir
Jón A. Jónsson
Málfríður Bjarnadóttir
85 ára
Friðrik Árnason
Rannveig Magnúsdóttir
Svavar Hjörleifsson
80 ára
Ásthildur
Sigurðardóttir
Bjarni Ólafsson
Brynjar Júlíusson
Gróa Aradóttir
Jóna Gunnlaugsdóttir
Páll Jónsson
Stefanía Árnadóttir
75 ára
Ágúst M. Haraldsson
Edda Einarsdóttir
Gunnar Halldórsson
70 ára
Ásdís Hartmanns
Bæring Jón B.
Guðmundsson
Einar Halldórsson
Friðrik Ö. Weisshappel
Gísli Rúnar Guðmundsson
Greta Jansen
Hafsteinn Jónsson
Margrét Marinósdóttir
60 ára
Agnar Mar Sigurbjartur
Hauksson
Ásta Bjarney
Pétursdóttir
Björn Valdimarsson
Brynhildur
Kristjánsdóttir
Franciszek Piotr Pazdur
Gísli Baldursson
Hildur Steinþórsdóttir
Óskar Gunnar Hansson
50 ára
Aðalheiður Þ.
Guðjónsdóttir
Dagbjört R. Valdimarsdóttir
Einar Sigurðsson
Gunnar Már Ásgeirsson
Haraldur Pétursson
Irina Trusevica
Jón Björgvinsson
Klara Guðrún
Hafsteinsdóttir
Sólveig Pétursdóttir
Súsanna Þorvaldsdóttir
Tryggvi Ólafur Tryggvason
40 ára
Áslaug Helga
Jóhannsdóttir
Björn Guðmundsson
Gunnar Ingvarsson
Leó Fossberg Júlíusson
Sara Guðmundsdóttir
Sigríður Júlíusdóttir
Vilborg Þórunn
Jóhannsdóttir
30 ára
Aðalsteinn Ólafsson
Agnieszka Malgorzata
Knop
Ásgeir Þór
Guðmundsson
David Palet Gutierrez
Hlín Guðnadóttir
Íris Hrund Jóhannsdóttir
Jóhannes Ingi Valgeirsson
Jón Ólafur Gunnarsson
Lilja Dís Ragnarsdóttir
Lilja Dögg Magnúsdóttir
Lukasz Malec
Mahran M.B. Shweiki
María Kristín Valgeirsdóttir
Óskar Þór Þórðarson
Unnur Lilja Þórisdóttir
Unnur Perla
Ragnheiðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þorlákur ólst upp í
Hafnarfirði, býr þar, lauk
prófum í iðnhönnun og
starfar hjá Poulsen ehf.
Maki: Arna Björg Arnar-
dóttir, f. 1985, ljósmynd-
ari og flugfreyja.
Börn: Sunna Björg Harð-
ardóttir, f. 2006, og Arnar
Breki Þór Þorláksson, f.
2011.
Foreldrar: Erla María
Kjartansdóttir, f. 1946, og
Guðmundur Þór Sigur-
björnsson, f. 1944.
Þorlákur Þór
Guðmundsson
30 ára Ágúst ólst upp í
Reykjavík og í Hveragerði,
býr í Hveragerði, lauk
sveinsprófi í húsasmíði og
stundar húsasmíðar.
Maki: Álfhildur Þorsteins-
dóttir, f. 1985, talmeina-
fræðingur hjá sveitarfé-
laginu Árborg.
Dóttir: Þóranna Ágústs-
dóttir, f. 2013.
Foreldrar: Ingvar Jóel
Ingvarsson, f. 1963, og
Sveinbjörg Guðnadóttir, f.
1964.
Ágúst Örn
Ingvarsson
30 ára Kristófer býr á
Akranesi og er sjómaður.
Maki: Anna Ósk Sigur-
geirsdóttir, f. 1986, starfs-
maður við leikskóla.
Dætur: Dagný Líf, f.
2005; Rakel Sara, f.
2009, og Aldís Ýr, f. 2011.
Foreldrar: Guðrún Krist-
ófersdóttir, f. 1967, sál-
fræðingur, og Jón Hákon
Vilbergs, f. 1960. Fóst-
urfaðir: Anton Emil
Bragason, f. 1958, vél-
fræðingur.
Kristófer
Jónsson