Morgunblaðið - 09.01.2015, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 9. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Lögreglukonan látin
2. Brjóstaskora Ritu gerði allt vitlaust
3. Gengur 370 km eftir ranga spá
4. Keypti lóð á 240 milljónir að óþörfu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Norska tríóið Splashgirl er statt í
Reykjavík í þeim tilgangi að taka upp
plötu með upptökustjóranum Randall
Dunn sem búsettur er í Seattle. Tríóið
mun taka sér hlé frá upptökum í kvöld
og halda tónleika í menningarhúsinu
Mengi kl. 21, flytja á þeim nýtt efni af
plötunni væntanlegu sem tekin er upp
í Hljóðrita sem og eldri lög. Splashgirl
er „drone-jazz“-tríó skipað Andreas
Stensland Løwe, Jo Berger Myhre og
Andreas Lønmo Knudsrød. Tríóið hef-
ur spilað víða um heim; í Evrópu,
Bandaríkjunum og Japan og unnið
með tónlistarfólki á borð við Sidsel
Endresen, Jan Bang, Erik Honoré, Ey-
vind Kang, Mari Kvien Brunvoll, Ran-
dall Dunn og Timothy Mason.
Upptökur í Hljóðrita
og tónleikar í Mengi
Kvikmynd leikstjórans Ólafs de
Fleur Jóhannessonar, Borgríki 2 –
Blóð hraustra manna, hefur verið
valin til þátttöku á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Rotterdam í Hol-
landi sem hefst 21. janúar og lýkur
1. febrúar. Sýning myndarinnar verð-
ur jafnframt frumsýning hennar á
erlendri grundu en myndin var frum-
sýnd á Íslandi 17. október í fyrra.
Í tilkynningu segir að valið á há-
tíðina í Rotterdam sé mikill heiður
þar sem hún sé ein sk. A-kvik-
myndahátíða í heiminum, meðal
þeirra virtustu. Myndin verður sýnd
í þeim hluta hátíðarinnar sem kall-
ast Spectrum en í honum eru sýnd-
ar nýjar kvikmyndir í fullri lengd eft-
ir kvikmyndagerðarmenn sem
stjórnendur hátíðarinnar telja að
hafi lagt
mikið af
mörkum til
alþjóðlegrar
kvikmynda-
menningar.
Borgríki 2 á virta
hátíð í Rotterdam
Á laugardag Norðlæg eða breytileg átt, 5-10 og stöku él, en bjart-
viðri eystra. Frost víða 3-10 stig. Á sunnudag Hæg austlæg átt og
stöku él, en 10-15 m/s og snjókoma um kvöldið. Talsvert frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, víða 8-15 m/s og él, en úrkomu-
lítið norðaustantil. Frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars 0 til
5 stig.
VEÐUR
Íslandsmeistarar KR-inga
eru óstöðvandi í Dominos-
deild karla í körfuknattleik
en þeir lögðu Njarðvíkinga
að velli í gærkvöld og hafa
þar með unnið alla 12 leiki
sína í deildinni. Tindastóll
styrkti stöðu sína í öðru
sæti deildarinnar með því
að vinna Stjörnuna á
heimavelli og Grindvík-
ingar unnu mikilvægan
sigur á Haukum á heima-
velli. »2
KR-ingar eru
óstöðvandi
Mikill hausverkur bíður landsliðs-
þjálfara karla í körfuknattleik, Craigs
Pedersens, þegar að því kemur að
velja endanlegan hóp fyrir Evr-
ópukeppnina í Berlín síðar á þessu
ári. Morgunblaðið er
búið að taka saman
tölfræði þeirra 22
leikmanna sem
líklegastir eru
til að berjast
um sæti í lið-
inu. Flestir
þeirra eru í
stórum hlut-
verkum hjá
sínum liðum
og enginn hef-
ur átt við alvarleg
meiðsli að stríða. »1
Hausverkur sem bíður
landsliðsþjálfarans
Eyjamaðurinn Eiður Aron Sigur-
björnsson er kominn aftur til
sænska knattspyrnuliðsins Örebro
eftir lánsdvöl í Vestmannaeyjum og
Noregi. Eiður segir að hann sé annar
og betri leikmaður í dag en þegar
hann var áður hjá félaginu og nú sé
ekki annað í stöðunni hjá sér en að
vera byrjunarliðsmaður í sænsku úr-
valsdeildinni á komandi tímabili. »1
Eiður er kominn aftur
til liðs við Örebro
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Ég fer oft mínar eigin leiðir. Ég
lærði myndlist í grunnskóla og hef
einnig farið á listanámskeið fyrir
blind og sjónskert börn. Ég hef alveg
glögga hugmynd um hvað ég er að
gera og hvernig ég fer að því,“ segir
Áslaug Ýr Hjartardóttir, 18 ára, sem
er farin að selja heimagerðar myndir
af heiminum á netinu þrátt fyrir að
vera lögblind en myndlist og sjón-
skerðing hafa ekki beint verið þekktir
vinir.
Áslaug segist hafa verið að fikta í
myndvinnsluforritinu Paint í tölvunni
heima hjá sér einn daginn og dottið í
hug að prófa að teikna heimsálfurnar
því sig hafi dreymt móður jörð nótt-
ina áður. „Þar sem ég er frekar kjaft-
for varð ég auðvitað að segja vinum
mínum frá þessari klikkuðu hug-
mynd. Þá stakk ein vinkona mín upp
á að ég færi alla leið með verkefnið.
Ég ákvað að teikna ekki bara heims-
álfurnar heldur líka landamæri landa.
Svo bætti ég fánunum inn á þar sem
mér finnst gaman að skoða þá.
Þetta tók sinn tíma og kostaði heil-
mikla þolinmæði. Hefðu vinir mínir
og ættingjar ekki hvatt mig áfram
hefði ég ábyggilega alveg guggnað á
því,“ segir hún þakklát.
Þörfin fyrir að skapa
Myndirnar hennar Áslaugar fást
annars vegar á striga og kosta þá tíu
þúsund krónur en á álplötu kosta þær
fimmtán þúsund. „Þarna eru öll sjálf-
stæðu ríkin. Ég sleppti pínulitlu lönd-
unum eins og Færeyjum og Sval-
barða, þar sem þau sjást varla, þótt
ég setti einn punkt í kortið.“
Hún segist stundum gripin mikilli
þörf fyrir að skapa og skipti þá engu í
hvaða formi sköpunin kemur fram.
„Af og til klæjar mig í fingurna og
langar að gera eitthvað eins og að
teikna, mála, skrifa ljóð eða annað.
Auk þess að vera stundum að leika
mér í Paint hef ég gaman af að mála
myndir og leika mér með vaxliti.
Þegar ég mála nota ég alltaf svart-
an tússpenna til að teikna myndina
fyrst svo ég sjái hana vel. Svo læt ég
aðstoðarfólkið mitt blanda saman lit-
um og fæ þannig lánuð augun hjá því.
Svo mála ég sjálf myndina en af og til
spyr ég aðstoðarfólkið hvort mér hafi
yfirsést eitthvað. Einnig bið ég það að
hjálpa mér ef svæðið sem þarf að
mála er of þröngt fyrir mig til að sjá.
Þegar ég er með vaxliti er ég meira
að leika mér og er sama hvernig út-
koman verður en þegar ég geri
myndir í tölvunni nota ég sérstakt
stækkunarforrit og get þannig gert
allt sjálf.“
Blind en sér allan heiminn
Áslaug Ýr
Hjartardóttir
málar þrátt fyrir
að vera lögblind
Morgunblaðið/Ómar
Glæsilegt Áslaug með heimskortið sem hægt er að panta á netfangi hennar, aslaugyrhjartar@gmail.com.
Aðspurð hvað taki næst við hjá henni segir hún það góða spurningu. „Það á allt eftir að koma í ljós.“
Áslaug hefur alltaf haft mikinn áhuga á landafræði. „Ég man þegar
ég var rúmlega átta ára og fylgdist með HM karla í knattspyrnu en
ekki til að horfa á leikina heldur til að skoða fánana. Ég þekki marga
en ekki alla og þurfti að nota Google oft þegar ég gerði heims-
kortið.“
Foreldrar Áslaugar, Bryndís og Hjörtur, komu ekki nálægt verkinu.
„Ég fór til Parísar í haust með pabba og við rákumst á nokkur sendi-
ráð. Faðir minn hélt auðvitað að ég þekkti alla fána heimsins út af
kortinu en svo einu sinni komum við að sendiráði Burkina Faso og ég
vissi ekkert hvaða landi fáninn tilheyrði því að ég var búin að skoða
svo marga síðustu vikurnar og þeir virðast hafa runnið í eitt í hausn-
um á mér,“ segir hún og skellir uppúr.
Þekkir marga fána en ekki alla
ÁSLAUG FÉKK HJÁLP FRÁ GOOGLE