Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 2015
Sigurveig Pétursdóttir hefur staðið í ströngu undanfarið sem formaður
samninganefndar Læknafélags Íslands í kjaradeilu lækna við ríkið, sem lauk
með samningum í vikunni. Sigurveig ritaði nafn sitt reyndar fyrst á spjöld
sögunnar þegar hún varð fyrsta konan til að verða Íslandsmeistari í júdó árið
1973. Það ár var í fyrsta skipti keppt í kvennaflokki á Íslandsmeistaramótinu
í júdó og varð Sigurveig hlutskörpust.
Sigurveig hló þegar hún heyrði erindi blaðamanns. Þrátt fyrir að hafa ver-
ið í nær daglegum samskiptum við flesta fjölmiðla landsins undanfarnar vik-
ur hefur hún aldrei verið beðin að ræða afrek sín í júdó. Spurð að því hvort
júdóreynslan forðum daga hafi nýst henni í að leiða samninganefnd í kjara-
viðræðum svarar Sigurveig því til af hógværð að auðvitað „nýtist öll lífs-
reynsla“ í svona samningum. Hvort hún lagði formann samninganefndar rík-
isins á ipponi í lokaviðureign læknadeilunnar liggur þó ekki ljóst fyrir.
Formaður samninganefndar Læknafélags Íslands er ekki óvön átökum því hún á glæstan feril að baki í júdóíþróttinni.
Tímarit.is
SIGURVEIG PÉTURSDÓTTIR LÆKNIR ER BARÁTTUJAXL
Fyrst kvenna Ís-
landsmeistari í júdó
Mynd af Sigurveigu sem birtist í
Þjóðviljanum 8. maí 1973 eftir að
hún var krýnd Íslandsmeistari í júdó,
fyrst kvenna.
Sjálfan (e. selfie) hefur tröllriðið
samskiptamiðlum undanfarin tvö
ár. Enginn er maður með mönnum
nema hann birti að minnsta kosti
eina sjálfu af sér á dag.
Um miðjan níunda áratug síð-
ustu aldar var sjaldgæfara að
menn hlæðu í sjálfsmyndir og því
sætir myndskreytingin með grein
þýska rithöfundarins Günters
Herburgers í Morgunblaðinu í árs-
byrjun 1985 tíðindum. Kappinn
splæsir þar í eina sjálfu og er
myndin tekin sumarið áður meðan
Herburger tók þátt í Reykjavík-
urmaraþoninu.
„Þegar ég hljóp í kjölfar banda-
rísks hlaupara framhjá eftirlætis
kaffihúsi málarans Dieter Roths,
Coca Cola – eða benzíndælustöð
við yzta hafnargarð bæjarins,
hafði mér tekist að smella af mynd
af staðnum með því að halda ljós-
myndavélinni hátt á lofti með upp-
réttum örmum. Þarna höfðum við
áður setið saman og rabbað,“ segir
Herburger í greininni.
Ennfremur segir hann: „Seint
um kvöld, þegar sólin virtist ekk-
ert vera í þeim ham að ganga yf-
irleitt til viðar eða síga í sæ á bak
við létta skýjaflóka vesturhimins-
ins, rakst ég á mann með hund.
Það var Lucy, þrettán ára öldruð
tík í eigu fjármálaráðherra lands-
ins, Alberts Guðmundssonar.“
GAMLA FRÉTTIN
Þrítug
sjálfa
„Höfundurinn í eilífum tómleika – aðeins veitt eftirför af bifreið,“ sagði í
myndatexta við sjálfu Herburgers í Morgunblaðinu í janúarmánuði 1985.
Ljósmynd/Günter Herburger
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Alice Munro
rithöfundur
Elín Pálmadóttir
blaðamaður
Angela Lansbury
leikkona
ILVA.DK
ÚTSALA
YFIR 2500 VÖRULIÐIR Á
LÆKKUÐU VERÐI
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Sófimeðgráupólýesteráklæði oggrind
úr eik. L 130 cm. 109.900kr. Nú69.900kr.
Infinity-sófi
SPARAÐU
40.000
Infinity-sófi
69.900
Rúmföt. 100%bómull.
140 x200/60 x63 cm.
6.995kr. Nú5.195kr.
Nature-rúmfötRúmföt. 100%bómull.
140 x200/60 x63 cm.
6.995kr. Nú5.195kr.
Chili city-rúmföt
SPARAÐU
37.110
200cmhvítur
fataskápur
86.590
200 cm. Hilla og fataslá fylgja. Áður 123.700 kr. Nú 86.590 kr.
Hurðademparar og aðrir aukahlutir seldir sér.
Bianca-fataskápurmeð hvítum rennihurðum
SPARAÐU
30%
af öllum
fataskápum
SPARAÐU
25%
af öllum
rúmfötum
Rúmföt. 100%bómull. Grátt eða
svart tré.140 x200/60 x63 cm.
6.995kr. Nú5.195kr.
Black tree-rúmföt