Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Qupperneq 12
* Í samræmi við efnið og aðstæður var ræða[Sigurðar Arnar Ágústssonar] sniðin að fólkimeð lága meðalgreind. A.m.k. skildi ég hana vel. Össur Skarphéðinsson, alþingismaður Landið og miðin SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.2. 2015 UM ALLT LAND HAFNARFJÖRÐUR Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði eru áhugasöm um að hótel verði reist í miðbænum. Skv. tilkynningu frá bænum má gera ráð fyrir að gistinætur á nýju hóteli þ g gj p g jverði 65 úsund á ári o að út öld viðski tavina nálæ t 2 mill örðum. Þar af fari um 1,2 milljarðar í gegnum gististaðinn en um 300 milljónir í útgjöld annars staðar í Hafnarfirði og 500 milljónir víðar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. „Kannanir sýna að 15% erlendra ferðamanna sem komu til Íslands sumarið 2014 höfðu einhverja viðdvöl í Hafnarfirði. Þar af gistu rúmlega 3%, í að jafnaði m áttuum 12% komu í dagsferð. Það3,1 nótt, en þýðir að aðeins 20% þeirra se viðdvöl í bænum gistu þar og þarna er klárlega sóknarfæri,“ segir aldur L.Har Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar. GRUNDARFJÖRÐUR Íbúum Grundarfjarðar hefur fjölgað um liðlega 3% frá upphafi ársins 2014. Þeir v sember 2013, en í upphafi árs 201 900. Sá skemmtilegi siður í upphafi hvers bæjarstjórnarfundar m nýfæddum firðingi er fagnað ófataki. Sigurborg Hannesdóttir, sem settist í bæjarstjórn eftir kosningarnar 2010 lagði það til og þetta hefur SAUÐÁRKRÓKUR Dýpkun Sauðárkrókshafnar er að ljúka en alls hefur um 20.000 rúmmetrum verið d l ú höf i i ð þ í i á f S i fél i Sk fj ð Dý ið ive tar ar hluta efnisins dælt í lan EGILSSTAÐIR Ritsmiðja Austurlands var stofnu Austfirðingum til að koma út frá. Sigríður Lára bókmenntafræ miklum áhuga vö r voru að skri a r ega var auglýst laust til umsók á heimasíðu stofnunarinnar. yfirmaður mannauðsmála framkvæmd og eftirfylgni Mannauðsstjóri mun sitja heyrir beint undir forstjór Á hugi dansks bókaútgefandaá bandarískum slökkvibílumsem fluttir voru til landsins leiddi til þess að komið var upp slökkviliðsminjasafni fyrir nokkrum misserum. Safnið er í Reykjanesbæ. Vorið 2011 tók Sigurður Lárus Fossberg Sigurðsson, hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS), að sér að aðstoða Danann Søren Rislund við að taka myndir og safna upplýs- ingum um slökkvibíla sem komu til Íslands frá Bandaríkjunum á ár- unum 1940-1980. Beiðni þar um barst frá slökkvi- liðsstjóranum í Kaupmannahöfn til Jóns Viðars Matthíassonar slökkvi- liðsstjóra SHS. „Verkefnið var kostnaðarsamt og tímafrekt en með styrkjum frá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna, SHS, Mannvirkjastofnun og fleirum var þetta mögulegt. Verkið gekk vel og bókin, Our Yankee Fire Rigs, kom út í lok árs 2013. Í henni eru 47 myndir af slökkviliðsbílum sem notaðir hafa verið á Íslandi og er forsíðumyndin af Mack slökkvibíl á Akranesi,“ segir Sigurður. Á ferðalagi um landið, við gagna- öflun, áttaði Sigurður sig á því hve mikið var til af bílum og öðrum búnaði sem hafði tilheyrt slökkvilið- um. „Hluti af búnaðinum var í slæmu ásigkomulagi og í lélegum geymslum sem héldu varla vatni og vindi. Þá datt mér í hug hvort hægt væri að setja upp sýningu eða safn þar sem ýmsir munir yrðu varð- veittir og saga slökkviliðsmanna í gegnum tíðina sögð.“ Eftir að hafa skoðað nokkra staði var húsnæði í Reykjanesbæ talið álitlegasti kosturinn. Sumarið 2012 fékk Sigurður vin sinn, Ingvar Georg Georgsson, slökkviliðsmann hjá Brunavörnum Suðurnesja (BS), til liðs við sig og saman lögðust þeir í þá vinnu að gera safnið að veru- leika. „Í fyrstu leist mönnum ekkert sérstaklega vel á þetta, höfðu ekki trú á því að tveir slökkviliðsmenn með engan safnagrunn gætu látið þetta verða að veruleika en við urð- um bara enn ákveðnari við það.“ Þeir kynntu hugmyndina fyrir þá- verandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ, Árna Sigfússyni, sem tók þeim vel. Í framhaldinu skoðuðu Sigurður og Ingvar slökkviliðssöfn í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. „Bókaútgef- andinn Søren Rislund er einmitt upphafsmaður slökkviliðs- og her- minjasafns sem er í Oxböl í Dan- mörku. Við heimsóttum hann og fengum mjög góðar upplýsingar.“ Áhugamannasamtök um sögu slökkviliða á Íslandi voru stofnuð og samið við Byggðasafn Reykjanes- bæjar í janúar 2013. Þá var töluverð vinna eftir við að laga húsið. „Við hefðum aldrei getað staðið í öllu tveir og fengum mikla aðstoð frá slökkviliðsmönnum og öðrum vel- unnurum.“ Safnið var opnað 13. apríl 2013, sama dag og haldið var upp á 100 ára afmæli Brunavarna Suðurnesja (áður Slökkviliðs Keflavíkur). Sigurður segir safnið hafa fengið mjög góðar viðtökur. „Það er sér- staklega ánægjulegt þegar „heldri“ slökkviliðsmenn koma í heimsókn og segja reynslusögur ásamt því að fræða menn um þann gamla búnað sem er á safninu. Með stofnun safnsins reynum við að sýna þeim sem mörkuðu starfið, með þeim fá- tæklega búnaði sem í boði var, virð- ingu og þakklæti fyrir að hafa verið brautryðjendur fyrir komandi kyn- slóðir,“ segir Sigurður Lárus Foss- berg Sigurðsson. SUÐURNES Strigafötur og handdælur SVO MIKIÐ VAR TIL AF BÚNAÐI SEM SLÖKKVILIÐ HÖFÐU NOTAÐ Í GEGNUM TÍÐINA AÐ SIGURÐI LÁRUSI FOSSBERG FANNST EKKI ANNAÐ HÆGT EN KOMA Á FÓT SAFNI. Ingvar Georgsson, til vinstri, Gunnlaugur Búi Sveinsson, fyrsti heiðursfélagi safnsins, og Sigurður Lárus Fossberg. Gunnlaugur Búi Sveinsson bjarg- aði lífi Sigurðar, móður hans og tveggja systkina í eldsvoða í jan- úar 1968, þegar Sigurður var fjögurra ára. Eldur kviknaði á miðhæð þriggja hæða húss við Hafnarstræti á Akureyri snemma morguns, ekki var hægt að bjarga konu og tveimur ungum börnum á miðhæðinni en fjölskylda Sig- urðar bjó á efstu hæð. „Gulli Búi var einn á vakt, kom því bara einn á staðinn og átta manns fastir í húsinu. Ég efast um að nokkur slökkviliðsmaður á Ís- landi hafi staðið frammi fyrir ann- ari eins áskorun. Hann reisti stig- ann og bjargaði okkur, mömmu og þremur börnum.“ Eftir að fjölskyldan fluttist í grennd við slökkvistöðina kynnti faðir Sigurðar drenginn fyrir Gunnlaugi Búa og strax þá kvikn- aði áhugi á starfinu. „Ég varð strax heillaður af manninum og hef alltaf borið óendanlega virð- ingu fyrir honum. Ég fór að venja komur mínar á stöðina. Fór í sendiferðir, skúraði gólfið með körlunum og fékk stundum að fara með í lítil útköll, ef kveikt hafði verið í rusli.“ Þegar Sigurður hafði aldur til skráði hann sig í varaliðið og 25 ára, 1988, var hann lausráðinn hjá slökkviliðinu. „Þá var ég sett- ur á vaktina hjá Gulla Búa sem var orðinn varðstjóri.“ Bjargaði fjölskyldu Sigurðar úr eldsvoða
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.