Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Side 51
Eyþór Atli Scott, skipstjóri á Vigra og Hjörtur Gíslason, framkvæmdastjóri Ögurvíkur.
M
akríll fannst svo vitað sé
fyrst við Ísland árið 1895.
Fáum sögum fer þó af
þessum veiðum fyrr en hin
síðari ár. Makrílafli var
fyrst skráður af Fiskistofu árið 1996 en fram
til 2005 var aflinn oftast veiddur utan ís-
lenskrar lögsögu. Árið 2005 bárust Hafrann-
sóknastofnun margar tilkynningar um makríl
og á fáum árum hefur makríll orðið ein verð-
mætasta fisktegundin fyrir íslenskan sjávar-
útveg. Á tiltölulega skömmum tíma fór ársafli
íslenskra skipa úr 3.996 tonna meðafla á síld-
veiðum fyrir austan land í rúm 150 þúsund
tonn. Heildarafli íslenskra skipa á síðasta fisk-
veiðiári var rúm 154 þúsund tonn.
Íslendingar ákvörðuðu einhliða í desember
2010 að auka kvótann fyrir makrílveiði. Þetta
kom sér vel fyrir útgerðarfélagið Ögurvík í
Reykjavík sem bjó við verkefnaskort á þeim
tíma. „Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs-
ráðherra, opnaði fyrir þessar veiðar og við
ákváðum að prófa þetta sumarið eftir,“ segir
Hjörtur Gíslason, framkvæmdastjóri Ögurvík-
ur.
Frystitogari útgerðarinnar, Vigri, hafði ekki
stundað uppsjávarveiðar áður og var fjárfest
til að mæta þessari nýju áskorun. Viðeigandi
veiðarfæri keypt og lagað til á millidekki og
frystingu. Eyþór Atli Scott, skipstjóri á Vigra,
segir það tvímælalaust hafa aukið gæðin í
veiðunum að fá þennan búnað inn. „Framfarir
hafa fylgt þessum breytingum. Það á við um
allan frystitogaraflotann. Við höfum farið
hærra í kælingu út af makrílnum og það skil-
ar sér varðandi annan afla líka,“ segir Eyþór.
Stekkur nánast upp á þilfarið
Skipstjórinn viðurkennir að áhöfnin hafi verið
græn þegar hún hóf makrílveiðarnar. Menn
komust hins vegar fljótt upp á lagið. „Það hef-
ur verið gaman að sjá þetta virka og það er
rosalega skemmtilegt að veiða svona upp við
yfirborðið, fiskurinn stekkur nánast upp á þil-
farið. Það hefur líka verið mjög mikið af fiski
– sem er alltaf skemmtilegra,“ segir Eyþór.
Fyrsta sumarið var heildarafli Vigra 100
tonn en á síðasta ári var hann kominn upp í
rúm 2.000 tonn sem var fullnýting á kvóta.
Að sögn Eyþórs er Vigri rúma tvo mánuði
að ná þessum kvóta. Það eru fjórir og hálfur
túr, að millilöndunum meðtöldum.
Tvær 26 manna áhafnir eru til skiptis á
Vigra. Hinn skipstjórinn er Sigurbjörn Ernst
Kristjánsson. Starfsmenn Ögurvíkur eru alls
um sjötíu talsins og segir Hjörtur starfs-
mannaveltu litla.
Að sögn Hjartar hefur makríllinn verið
kærkomin viðbót við útgerð Vigra og mjög
ánægjulegt hversu vel hafi gengið að veiða og
vinna aflann.
„Síðasta sumar var mjög gott. Menn stóðu
á haus allt sumarið og fullfiskuðu sig,“ rifjar
Hjörtur upp.
Eyþór segir að makríllinn sé bestur eftir að
hann losar sig við átuna síðari hluta sumars.
„Þá snýr hann líklega við, af einhverjum
ástæðum, og er sprettharður og styggur. Sagt
er að hann sé alltaf á ferðinni og það er rosa-
legur kraftur í honum. Maður getur nánast
setið á torfu en samt misst af henni.“
Kemst ótrúlega langt
Hjörtur bætir við að makríllinn sé ekki með
sundmaga og fyrir vikið þurfi hann sífellt að
vera á ferðinni. „Og hann kemst ótrúlega
langt, ekki stærri fiskur,“ segir Hjörtur.
Að sögn Eyþórs kemur makríllinn 12-16%
feitur inn í lögsöguna, líklega sunnan úr höf-
um, en fer 26-31% feitur, samkvæmt mæl-
ingum Hafró. „Eitthvað er hann því að éta
hérna,“ segir Eyþór.
Spurðir hvers vegna gengdin sé orðin
meiri í grennd við Ísland hin síðari ár nefna
þeir hitastig sjávar sem mögulega skýringu.
„Alla vega treysta Norðmenn á það,“ segir
Hjörtur. „Þeir treysta á að sjórinn kólni aft-
ur hér upp frá og makríllinn skili sé í aukn-
um mæli aftur til þeirra. Það er taktík hjá
þeim og á þeim forsendum reyna þeir að
Borðum ekki
peningana
okkar!
VIGRI RE 71, FRYSTITOGARI ÖGURVÍKUR Í REYKJAVÍK, HEFUR STUNDAÐ MAKR-
ÍLVEIÐAR AF MIKLU KAPPI UNDANFARIN SUMUR MEÐ GÓÐUM ÁRANGRI.
ÁRNI SÆBERG, LJÓSMYNDARI MORGUNBLAÐSINS, VAR MEÐ Í FÖR HLUTA ÚR
TÚR OG MYNDAÐI VEIÐARNAR, VINNSLUNA OG LÍFIÐ UM BORÐ Í VIGRA.
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Trollið tekið. Fjárfest var til að mæta nýrri áskorun, uppsjávarveiðum.
Múkkinn bíður átekta í blóðvatninu. Ekkert fyrir hann að hafa hér.
1.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51