UTBlaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 14
14
tölvupóstsendingum, leita upplýsinga um vörur og þjónustu, blaðalesturs,
viðskipta í heimabanka og í ferðatengdum tilgangi.
Nær öll fyrirtæki hér á landi höfðu átt í
samskiptum við opinbera aðila um internet
árið 2006. Það ár höfðu að meðaltali
64% fyrirtækja í ESB-löndunum átt í
rafrænum samskiptum við hið opinbera.
Hlutfall einstaklinga á aldrinum 16-74
ára sem notuðu internet til samskipta við
opinbera aðila var hæst hér á landi árið
2006 eða 61% á móti 24% að meðaltali í
aðildarlöndum Evrópusambandsins.
Ítarlegri tölfræði um upplýsingasamfélagið
má finna á vef Hagstofunnar, www.hagstofa.
is, undir efnisliðnum Upplýsingatækni.
Níu af hverjum tíu Íslendingum
nota tölvur
Tölvur og internet eru hluti af daglegu lífi Íslendinga hvort sem er í starfi eða leik. Samkvæmt niðurstöðum
Hagstofu Íslands nota nærri níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16-74 ára tölvu og internet og því
sem næst öll fyrirtæki hér á landi eru nettengd.
Að heita má öll fyrirtæki á Íslandi með tíu
starfsmenn eða fleiri nota tölvur og internet
eða 97-100%. Níu af hverjum tíu nettengdum
fyrirtækjum nota xDSL tengingu og hjá 44%
nettengdra fyrirtækja er niðurhalshraði tengingar
minnst 2 Mb/sek. 95% nettengdra fyrirtækja
nota vírusvörn, 81% nettengdra fyrirtækja nota
eldvegg og 75% flytja afrit af gögnum á öruggan
stað til geymslu.
Fleiri fyrirtæki stunda rafræn viðskipti
Hlutfall fyrirtækja sem selja vörur eða þjónustu
um internet fer hækkandi. Árið 2002 hafði
fimmta hvert fyrirtæki selt vörur eða þjónustu á
þennan máta en árið 2005 var hlutfallið komið í
32%. Sama gildir um kaup á vörum og þjónustu
um internet. Þannig höfðu nærri sex af hverjum
tíu fyrirtækjum keypt vörur og þjónustu til eigin
nota um internet árið 2005 á móti 37% fyrirtækja
árið 2002.
Hátt hlutfall nettengdra heimila á Íslandi
Að meðaltali voru tölvur á 62% heimila í
aðildarlöndum Evrópusambandsins og 51%
þarlendra heimila höfðu tengingu við internet árið
2006. Það ár höfðu 84% íslenskra heimila tölvu
og 83% voru tengd interneti. Nærri níu af hverjum
tíu nettengdum íslenskum heimilum nota hraðvirka internettengingu á
móti 62% nettengdra heimila í aðildarlöndum Evrópusambandsins.
Notkun tölvu og internets er
að sama skapi afar útbreidd
hér á landi en árið 2006
notuðu 90% Íslendinga á
aldrinum 16-74 ára tölvu og
88% þeirra notuðu internet.
Á sama tíma notuðu 61%
íbúa Evrópusambandsins
tölvu og 54% þeirra notuðu
internet. Á þeim árum sem
Hagstofan hefur mælt
notkun einstaklinga á upplýsingatækni og interneti hefur tilgangur
netnotkunar lítið breyst. Einstaklingar nota miðilinn helst til að skiptast á
Höfundur: Guðfinna Harðardóttir, sérfræðingur á Hagstofu Íslands.
Íslenskt upplýsingasamfélag í tölum:
Fyrirtæki og heimili hér á landi nota nær
eingöngu hraðvirkar nettengingar. Árið 006
notuðu níu af hverjum tíu fyrirtækjum hér á
landi hraðvirka tengingu og hið sama gildir
um 87% nettengdra íslenskra heimila.
Guðfinna Harðardóttir.