Morgunblaðið - 03.02.2015, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hringvegur 1 í gegnum Selfossbæ,
Austurvegur, verður lokaður vegna
framkvæmda og umferð beint um
aðrar götur í
bænum frá síð-
ustu dögum þessa
mánaðar og fram
til 15. apríl nk.
Skipta á um jarð-
veg og lagnir og
útbúa nýjar stétt-
ir og miðstæði við
ofanverða
Tryggvagötu sem
liggur þvert á
Austurveginn í
miðbæ Selfoss.
Umferðin fer um Fossheiði
Framkvæmdirnar á Selfossi, sem
verktakafyrirtækið Borgarverk hf.
hefur með höndum, hefjast í næstu
viku og lokun Austurvegar er fyrsti
áfangi verksins. „Við verðum með
tíu starfsmenn í þessu og eigum að
skila verkinu í ágúst. Lokun Austur-
vegar er það sem fólk verður mest
vart við,“ segir Óskar Sigvaldason,
framkvæmdastjóri Borgarverks, í
samtali við Morgunblaðið.
Merkingar sem settar verða upp á
næstunni gera ráð fyrir að umferð í
gegnum Selfoss verði að mestu um
götuna Fossheiði. Leiðin verður þá
sú að sé komið inn í bæinn af Ölfus-
árbrú er beygt til hægri, ekið til suð-
urs fram Eyraveg og svo beygt þar
inn á Fossheiði, sem liggur þvert í
gegnum byggðina. Sú gata verður
Langholt þegar austar er komið og
af henni er beygt til austurs á Suður-
landsveg á móts við verslun Bónuss
og mjólkurbú MS. Einnig verður
hægt að aka í gegnum bæinn um
göturnar Árveg, Engjaveg og Suð-
urhóla – og aðliggjandi tengingar
þar. Ljóst er því að umferðar-
mynstrið í bænum breytist nokkuð
og nokkrar verslanir og þjónustu-
fyrirtæki verða úrleiðis um stund-
arsakir.
Vegurinn um Selfoss færist tímabundið
Hringvegurinn tekinn í sundur Gatnaframkvæmdir í miðbænum og Austurvegi lokað í nokkrar
vikur Umferð gegnum bæinn verður beint í úthverfin frá í febrúar og alveg fram í miðjan apríl
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Gatnamót Hér skerast Austurvegur og Tryggvagata á Selfossi. Gatnafram-
kvæmdir hefjast innan tíðar en lýkur áður en sumarumferðin fer af stað.
Hjáleið á hringvegi
©samsýn/ja.is
Tr
yg
gv
ag
at
a
Austurvegur
Fossheiði
La
ng
ho
lt
Aðalleið til bráðabirgða
Austurvegi lokað við Tryggvagötu
Óskar
Sigvaldason
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bygging Hótels Húsafells er nokk-
urn veginn á áætlun þrátt fyrir erf-
iðan vetur til útivinnu. Bergþór
Kristleifsson, eigandi fyrirtækisins,
segir enn stefnt að opnun aðstöð-
unnar 17. júní næstkomandi en tek-
ur fram að til öryggis sé enn ekki
farið að bóka gesti fyrr en í júlí.
Nýja hótelið er fellt inn í landslag
og skóg í hjarta Húsafells, á milli
þjónustumiðstöðvar og sundlaugar.
Það er hannað sem miðstöð útivistar
og náttúruskoðunar í uppsveitum
Borgarfjaðrar og tekið tillit til þarfa
göngufólks og annars áhugafólks um
náttúruna.
Þrjátíu manns vinna við hótel-
bygginguna um þessar mundir og á
eftir að fjölga í fimmtíu þegar nær
líður opnun.
Búið að steypa allt
Bergþór segir að glíman við lægð-
irnar í vetur hafi tafið framkvæmdir
eitthvað. Á móti hafi komið að haust-
ið var gott til framkvæmda. Nú sé
hins vegar búið að steypa allt og
hægt að vinna inni í gistiálmunum.
Öll byggingin verði komin undir þak
um miðjan febrúar. „Það þarf að
halda vel áfram til þess að náist að
klára á tilsettum tíma,“ segir hann.
Hótelið skiptist í þjónustubygg-
ingu með veitinga- og ráðstefnusöl-
um og fjórar gistiálmur. Í þessum
áfanga eru 36 vel búin tveggja
manna herbergi. Miðast skipulagið
við að hægt verði að fá flokkun sem
fjögurra stjörnu hótel.
Samhliða framkvæmdum er unnið
að markaðssetningu hótelsins og
segir Bergþór að hún gangi vel.
Unnar, sonur Bergþórs, verður hót-
elstjóri og vinnur hann að þeim
þætti ásamt Eddu Arinbjarnar í
Húsafelli, mágkonu Bergþórs.
Bergþór segir að tilkoma íshell-
isins sem verið er að gera í Lang-
jökli muni skapa tækifæri í Húsa-
felli. Framkvæmdin í jöklinum hafi
vakið athygli erlendis og muni draga
að ferðafólk.
Veitingamaður á Akranesi hefur
tekið að sér að annast allar veitingar
í nýja hótelinu og þjónustumiðstöð-
inni.
Hugað að næstu skrefum
Bergþór er þegar farinn að huga
að næstu skrefum í uppbyggingunni.
Hann nefnir þá hugmynd að semja
við einstaklinga sem hefðu hug á að
byggja vönduð sumarhús á lausum
lóðum í skóginum um að fá húsin
leigð fyrir ráðstefnugesti. Það gæti
aukið fjölbreytni í gistiframboði og
um leið hjálpað eigendum húsanna
að greiða niður fjárfestinguna.
Morgunblaðið/Ómar
Hleðsla Grjótið úr grunninum nýtist við hleðslur veggja. Hleðslumaðurinn er Unnsteinn Elíasson.
Vetrarveðrin töfðu
Stefnt að opnun nýs hótels í Húsafelli í júní Eigandinn
bindur vonir við að íshellirinn í Langjökli dragi að gesti
Hótel Húsafell Bergþór Kristleifsson stendur í ströngu þessa dagana.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, hafnar því alfar-
ið að hann hafi reynt að afvegaleiða
Morgunblaðið sl. föstudag þegar
hann svaraði spurningu blaðamanns
um hvort sá starfsmaður Sam-
keppniseftirlitsins sem hefur stöðu
grunaðs manns hefði verið sendur í
leyfi með setningunni: „Enginn
þeirra sem starfa hjá Samkeppnis-
eftirlitinu núna er með réttarstöðu
grunaðs manns.“
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að fyrrverandi vefstjóri Sam-
keppniseftirlitsins hætti störfum hjá
Samkeppniseftirlitinu um mánaða-
mótin nóvember-desember í fyrra,
eða fyrir tveimur mánuðum.
„Ég hef bara vísað í fréttina á
heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.
Hún skýrir sig sjálf og þar kemur
fram að Samkeppniseftirlitið kom
þessari miðlun trúnaðarupplýsinga í
þann farveg að hún færi til opin-
berrar rannsóknar,“ sagði Páll
Gunnar í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Það setur Samkeppniseftirlit-
inu auðvitað skorður um það hvern-
ig það tjáir sig um málið á meðan
það er til rannsóknar. Eftirlitið
verður að gæta þess að það sé ekki
verið að skaða rannsóknarhags-
muni. Og ég hafna því alfarið að
reynt hafi verið að afvegaleiða
Morgunblaðið. Það er bara verið að
segja frá málinu eins og hægt er á
þessu stigi.“
Skaðlegt fyrir stofnunina?
Páll Gunnar var spurður hvort
fleiri lekamál hefðu komið upp í
Samkeppniseftirlitinu í hans forstjó-
ratíð: „Í fyrsta lagi liggur ekkert
fyrir um það hvort hér hafi komið
upp lekamál. Það er til rannsóknar.
Ég kannast ekki við nein dæmi um
það að Samkeppniseftirlitið hafi áð-
ur verið sakað um að hafa miðlað
upplýsingum,“ sagði Páll Gunnar.
Páll Gunnar var spurður hvenær
yfirmenn Samkeppniseftirlitsins
hefðu fengið upplýsingar um að
starfsmaður stofnunarinnar hefði
fengið réttarstöðu grunaðs manns:
„Ég vil ekki tjá mig um það,“ sagði
Páll Gunnar.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
var spurður hvort þetta lekamál
hefði ekki skaðleg áhrif á trúverð-
ugleika stofnunarinnar, sem hefur
ríkulegar heimildir til þess að afla
gagna þegar rannsóknir standa yfir,
og hvort það væri ekki reiðarslag
fyrir stofnun eins og Samkeppnis-
eftirlitið að trúnaðargögnum hefði
verið lekið til fjölmiðils:
„Eins og ég hef þegar sagt liggur
það ekkert fyrir að lekinn sé frá
Samkeppniseftirlitinu, það er ennþá
til rannsóknar. Ég tjái mig ekki
frekar um málið umfram það sem
fram hefur komið í fréttatilkynning-
um frá Samkeppniseftirlitinu 15.
október sl., 17. október og loks í síð-
ustu viku,“ sagði Páll Gunnnar Páls-
son.
Hætti störfum
fyrir tveimur
mánuðum
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins tjáir
sig ekki um rannsókn lekamáls
Morgunblaðið/Ómar
Eimskip Eimskip kærði leka á trún-
aðargögnum í október sl.
Rannsókn LRH
» Fram kom í Morgunblaðinu
sl. föstudag að einn ein-
staklingur hefði réttarstöðu
grunaðs manns.
» Fyrrverandi vefstjóri Sam-
keppniseftirlitsins hætti störf-
um hjá stofnuninni um mán-
aðamótin nóvember-desember
2014.