Morgunblaðið - 09.02.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2015
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdómslögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttarlögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Jörðin Dagverðarnes í Skorradal
hefur verið auglýst til sölu hjá fast-
eignasölunni Eignamiðlun. Með
jörðinni fylgir nýlega uppgert
íbúðarhús auk útihúsa. Ásett verð
er 130 milljónir kr.
Jörðin Dagverðarnes er fyrir
miðju Skorradalsvatni þar sem
mikil sumarhúsabyggð er. Stór
sumarhúsasvæði hafa verið seld út
úr jörðinni.
Með þeim eignarhluta sem nú er
auglýstur til sölu er veglegt íbúð-
arhús ásamt fjárhúsum sem notuð
eru sem geymslur og refahús í
frekar slöku ásigkomulagi. Bygg-
ingarnar eru fyrir ofan Skorra-
dalsveg. Fyrir neðan veg og að
Skorradalsvatni eru 20 sum-
arhúsalóðir og hafa 17 þeirra verið
leigðar út.
„Ég hef mikla trú á þessu svæði.
Það er fágætt að til sölu séu jarðir
á þessu vinsæla sumardval-
arsvæði,“ segir Þorleifur St. Guð-
mundsson, löggiltur fasteignasali
hjá Eignamiðlun. Hann bendir á að
jörðin gæti verið áhugaverður fjár-
festingarkostur. Þá sé íbúðarhúsið
glæsilegt og með góðu útsýni, ef
kaupandi vilji nýta sér mannvirkin.
Í auglýsingu er vísað til að-
alskipulags um hugsanlega mögu-
leika til frekari uppbyggingar ofan
vegar. Gert er ráð fyrir óbyggðum
svæðum sem ætluð eru til almennr-
ar útiveru eða takmarkaðrar um-
ferðar fólks. Annars staðar kemur
fram að heimilt er að reisa íbúðar-
hús á 7 ha lóðum enda tengist það
varðveislu og viðhaldi skógrækt-
arsvæðisins. helgi@mbl.is
Til sölu jörð á eftirsóttu sumar-
húsasvæði við Skorradalsvatn
Ljósmynd/Eignamiðlun
Skorradalur Íbúðarhúsið í Dagverðarnesi er nýlega uppgert.
Vilhjálmur Eg-
ilsson, rektor Há-
skólans á Bifröst,
útskrifaði rúm-
lega 70 nem-
endur úr öllum
deildum skólans
laugardaginn 7.
febrúar við há-
tíðlega athöfn.
Í ræðu sinni
vék hann m.a. að
sókn Háskólans á Bifröst en sóknin
hófst með breyttu viðskiptalíkani
fyrir Háskólagáttina haustið 2013.
Síðastliðið haust voru 618 nem-
endur við nám í skólanum og fjölg-
aði um 20% á milli ára. Stefnt er að
því að nemendafjöldi við skólann
verði yfir 700 næsta haust en 45 ný-
ir nemendur hófu nám við skólann í
vor. Munu þrjár nýjar námslínur
verða frá og með hausti 2015 á fé-
lagsvísindasviði, m.a. stjórnmála-
hagfræði. ash@mbl.is
Rúmlega 70 nemar
útskrifaðir frá Há-
skólanum á Bifröst
Vilhjálmur
Egilsson
Umsóknarfresti í Snorraverkefnið í
Vesturheimi, Snorri West, lýkur 20.
febrúar nk. Fólki á aldrinum 18-28
ára stendur til boða að sækja um að
taka þátt í 4 vikna ferð til N-
Ameríku um Íslendingabyggðir í
gegnum Snorri West. Kynning-
arfundur verður haldinn í Sendi-
ráði Kanada, Túngötu 14, hinn 12.
febrúar kl. 20. Þeir sem verða vald-
ir til þess að fara í ferðina fá hana
niðurgreidda en hægt er að nálgast
upplýsingar um ferðina og umsókn-
areyðublöð á snorri.is. Fjölmargir
staðir í N-Ameríku verða heimsótt-
ir í ferðinni.
Sumarferðalag um
Íslendingabyggðir
Morgunblaðið/Ómar
Kynning Farið verður vítt um N-Ameríku.
Kjaramálanefnd Landssambands
eldri borgara lýsir yfir undrun
sinni á ummælum forsætisráðherra
í nýársávarpi sínu um að búið væri
að leiðrétta skerðingar eldri borg-
ara. Þetta kemur fram í ályktun
nefndarinnar. Segir í ályktuninni
að enn sé ólokið við að meta og lag-
færa skerðingar á tímabilinu 2009-
2014 sem talið er að nemi 17-18
milljörðum. „Lítið hefur spurst til
byggingar hjúkrunarheimila sér-
staklega á suðvesturhorninu en þar
er vandinn mestur. Notkun á fjár-
munum í rekstur úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra er óásættanleg. Hér
er um nefskatt að ræða sem ætl-
aður er til að byggja upp hjúkr-
unarheimili.“ ash@mbl.is
Ekki er búið að leið-
rétta skerðingar