Morgunblaðið - 12.02.2015, Side 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2015
Undanfarið hafa
ýmsir hagsmunaaðilar
í viðtölum eða blaða-
greinum gagnrýnt
verslun og þá starf-
semi sem þessum að-
ilum er ekki þókn-
anleg. Má í því
samhengi benda á
fullyrðingar þing-
manns Norðvestur-
kjördæmis um inn-
flutning á „sýktu“ svínakjöti til
landsins. Sama boðskap má lesa í
grein fulltrúa Bændasamtaka Ís-
lands sem gerir lítið úr kröfum er-
lendra eftirlitsaðila á sviði mat-
vælaöryggis. Þessi upptalning gæti
verið lengri en það væri einungis
til að æra óstöðugan að endurflytja
þau harmkvæli. Af málflutningi
þessara aðila má draga þá ályktun
að sé varan ekki íslensk þá sé hún
skaðleg til neyslu og beri að forð-
ast. En hvað með innlenda fram-
leiðslu – er hún gallalaus? Í þess-
ari umræðu er mikilvægt að halda
til haga öllum staðreyndum máls-
ins.
Innlendar kröfur = erlendar
kröfur = gagnkvæmt traust
„Verulega skortir á opinbert
eftirlit hér á landi með hlutum og
efnum sem komast í snertingu við
matvæli. Þetta kemur fram í
skýrslu Eftirlitsstofnunar EFTA.“
„Skortur á eftirliti með efni og
hlutum sem komast í snertingu við
matvæli.“ „Herða þarf opinbert
eftirlit á Íslandi til að tryggja að
kjöt og mjólk innihaldi ekki efna-
leifar af dýralyfjum. Þetta er meg-
inniðurstaða skýrslu
Eftirlitsstofnunar
EFTA sem gefin var
út í dag.“ „Eftirliti og
eftirfylgni heilbrigð-
iseftirlits sveitarfélaga
var ábótavant í nokkr-
um tilvikum. Þetta er
meginniðurstaða
skýrslu Eftirlits-
stofnunar EFTA sem
gefin var út í dag.“
„Bæta þarf eftirlit
með auðkenningu og
skráningu nautgripa á
Íslandi.“
Framangreindar tilvísanir eru
valdar af handahófi úr úrvali frétta
um þá ágalla sem hafa verið á hinu
íslenska eftirlitskerfi að mati Eftir-
litsstofnunar EFTA. Hafa skal
hugfast að innlenda eftirlitskerfið
er hluti af samræmdu eftirlitskerfi
í Evrópu sem felur í sér að sömu
kröfur eru gerðar hér til öryggis
matvæla eins og t.d. í Þýskalandi.
Íslensk stjórnvöld hafa þar af leið-
andi viðurkennt hið samevrópska
eftirlitskerfi – þ.e. að sömu kröfur
gilda um heilbrigt kjöt á Íslandi og
í Þýskalandi. Að sama skapi er
sýkt þýskt kjöt ekki viðurkennt til
sölu eða neyslu frekar en sýkt ís-
lenskt kjöt – hvort sem það er á
þýskum eða íslenskum markaði.
Svo mikið traust bera íslensk
stjórnvöld til evrópska regluverks-
ins að þau hafa innleitt þær reglur
á grundvelli EES-samningsins eins
og enginn sé morgundagurinn og
grundvallast íslenskt eftirlit á
þessum erlendu kröfum. Þá hafa
innlend stjórnvöld m.a. leitað eftir
samstarfi á sviði matvælaöryggis
við t.d. þýska aðila. Ferskar kjöt-
vörur innan EES lúta því ná-
kvæmum reglum um heilbrigðiseft-
irlit í útflutningsríki sem byggjast
á gagnkvæmu trausti milli EES-
ríkja og eiga að stuðla að óheftum
flutningum vöru á innri mark-
aðinum eins og samningurinn gerir
ráð fyrir. Þá má benda á að jafnvel
stífari kröfur eru gerðar til erlends
kjöts en innlends enda ber við inn-
flutning á kjöti til landsins að af-
henda opinbert vottorð sem m.a.
staðfestir að varan sé af dýrum
sem ekki hafa verið gefin vaxt-
arhvetjandi efni og laus við
salmonellusýkingu. Ekki er að sjá
að innlendir aðilar þurfi að af-
henda sambærilegt vottorð um
sína framleiðslu.
Hafa skal það sem
sannara reynist
Allar upphrópanir um innflutn-
ing á sýktu kjöti eru því ekki í
samræmi við þann veruleika og
regluverk sem við búum við. Slíkar
tilvísanir eru þá annaðhvort
byggðar á vanþekkingu um reglu-
verkið eða öðrum undirliggjandi
ásetningi. Uppbyggileg umræða
um samanburð á innlendri og er-
lendri framleiðslu er ávallt af hinu
góða sem og skilvirkt eftirlit. Gera
verður hins vegar þá kröfu að slík
umræða grundvallist á stað-
reyndum en ekki villandi málflutn-
ingi eða sleggjudómum. Ábyrgð
manna, þingmanna sem annarra,
er því mikil í slíkri umræðu og
mikilvægt er að taka umræðu um
þetta kerfi á uppbyggilegum nót-
um.
Óður til eftirlits
með innfluttu kjöti
Eftir Lárus M.K.
Ólafsson »Hafa skal hugfast að
innlenda eftirlits-
kerfið er hluti af sam-
ræmdu eftirlitskerfi í
Evrópu sem felur í sér
að sömu kröfur eru
gerðar hér
Lárus M.K. Ólafsson
Höfundur er lögmaður SVÞ.
Þetta var árið 2013.
Ég hafði verið veik um
tíma og frá vinnumark-
aði en ný lyf og end-
urhæfing á Heilsustofn-
uninni í Hveragerði
gerðu kraftaverk fyrir
heilsuna og ég fann
hvernig mér óx ásmeg-
in á ný og langaði aftur
út á hinn alvöru vinnu-
markað. Mér var nokk-
uð sama um hvers konar vinnu ég
fengi, svo framarlega sem um væri
að ræða um 50% hlutastarf.
Ég sótti um nokkur störf og fékk
eitt í verslun í Kringlunni. Ég hafði
áður unnið í verslun, á mennta-
skólaárunum, og þótti það bara
skemmtilegt. Ég var svo ánægð að
fá vinnu að ég kærði mig kollótta um
kaup og kjör og spurði ekki einu
sinni um þau. Þegar ég fékk fyrsta
launaseðilinn runnu hins vegar á
mig tvær grímur. Voru þetta virki-
lega laun fyrir mánaðardagvinnu?
Ég hringdi samstundis í verka-
lýðsfélagið mitt, VR, og spurðist fyr-
ir um þessa krónutölu sem komin
var inn á reikninginn minn. Þetta
hlyti að vera misskilningur. Hafði ég
reynslu af verslunarstörfum, spurði
konan. Aðeins frá unglingsárum,
svaraði ég. En ég væri
43 ára, með fjögur há-
skólapróf og 30 ára
fjölbreytta reynslu á
vinnumarkaði. Það
skiptir engu máli,
sagði konan hjá Virð-
ingu Réttlæti, þú ferð
í byrjunarflokk.
196.000 kr. fyrir dag-
vinnu á mánuði voru
staðreynd, fyrir
skatta. Það væru laun-
in mín ef ég hefði ver-
ið í 100% starfi. Mér
fannst lítil virðing og enn minna
réttlæti í því. Þetta var fyrir 2,8%
samningana í lok ársins 2013. En ég
ákvað að halda áfram í starfinu þar
sem mér fannst svo gaman að fá að
vera memm í samfélaginu, að fá að
vera á vinnumarkaði – og tókst það í
nokkra mánuði þar til veikindi
kipptu mér aftur af honum.
Hvernig ætli þessum gangi
að safna fyrir íbúð?
En heimssýn mín breyttist þarna
á gólfinu í Kringlunni. Mér hafði
bara aldrei dottið í hug að fólki væru
í raun og veru borguð slík skítalaun
– ég hélt svona almennt að markaðs-
laun væru stefnan og þessir svoköll-
uðu láglaunataxtar væru bara til
viðmiðunar. Svona geta háskóla-
gráðurnar nú villt manni sýn. En ég
Til varnar verkafólki
Eftir Unni H.
Jóhannsdóttur
Unnur H. Jóhannsdóttir
Breytingar hafa
verið gerðar á rétt-
indum öryrkja í nýjum
reglum Starfs-
menntasjóðs versl-
unar- og skrif-
stofufólks (SVS).
Öryrkjar hafa ekki
lengur rétt á styrk úr
starfsmenntasjóði.
Þeir halda rétti sínum
í 12 mánuði. Öryrkjar
sem eiga uppsöfnuð
stig sem safnað var samkvæmt
eldri reglum Starfsmenntasjóðsins
(SVS) hafa möguleika á því að
nota þau til 31. desember 2015.
Réttindi mín í starfsmennta-
sjóði, samkvæmt eldri reglu, voru
þann 19.1. 2015 251 stig, sem er í
krónum upp á 251.000. Til að nota
þessi 251 stig verð ég að að borga
251.000 kr. Tvöhundruð fimmtíu
og eitt þúsund krónur í minni eign
verða gerðar upptækar með reglu-
gerðarbreytingu í boði VR, LÍV
og SA vegna þess að ég á ekki til
250.000 kr. til að fara á námskeið.
Ég tel að breytingar sem gerðar
hafa verið á réttindum öryrkja í
nýjum reglum Starfsmenntasjóðs
verslunar- og skrifstofufólks vera
eigna-upptöku og
brot á Stjórnarskrá
Íslands. Þessi árás á
öryrkja frá VR er
framhald á taumlaus-
um árásum þeirra á
okkur, sem hófust
fyrir nokkrum árum.
Þetta stríð þeirra
hófst þegar áralöng
réttindi okkar ör-
yrkja sem voru í lög-
um VR voru þurrkuð
út. Réttur okkar til
að vera í trún-
aðarráði og að vera í
framboði til stjórnar VR var fót-
um troðinn og af okkur tekinn og
okkur vísað í okkar bás.
Ekki var stjórninni bara illa við
öryrkja, því að á sama tíma voru
sett lög um að bannað væri að
ræða lífeyrissjóðsmál á aðalfundi
VR.
En ástæðan er sú að stjórn VR
vill ekki umræðu um það að lífeyr-
issjóðsgreiðslur öryrkja og eldri-
borgara eru gerðar upptækar með
sköttum og skerðingum af ríkinu
og það með þeirra samþykki.
Þetta plott hefur gengið full-
komlega upp hjá þeim og því þá
ekki að taka einnig menntasjóðinn
núna?
Skattur og skerðingar á lífeyr-
Er þetta ekki
eignaupptaka ?
Eftir Guðmund Inga
Kristinsson
Guðmundur Ingi
Kristinsson
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
www.gilbert.is