Morgunblaðið - 12.02.2015, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mig hefur lengi langað til að skoða
nánar og spila verk skrifuð fyrir
þessa samsetningu, þ.e. víólu,
mezzósópran og píanó, því þessar
miðraddir hljóma svo fallega saman
í sínum dökka og melankólíska tón.
Þetta verður mjúk og falleg efnis-
skrá,“ segir Margrét Th. Hjaltested
víóluleikari, sem kemur fram á há-
degistónleikum í Laugarneskirkju á
morgun, föstudag, kl. 12 ásamt
Ingveldi Ýri Jónsdóttur mezzó-
sópran og Guðríði St. Sigurðar-
dóttur píanóleikara.
„Það er ekki til mikið af verkum
fyrir þessa samsetningu, en samt ef-
laust meira en maður heldur þegar
farið er að grúska. Þessi verk eru
ekki mikið leikin og sum verkanna á
tónleikunum hafa aldrei hljómað
hérlendis áður,“ segir Margrét, en á
efnisskránni í dag eru m.a. Evening
Song eftir Charles Gounod, Dans-
ons la gigue eftir Charles Loeffler,
Zwei Gesange op. 91 eftir Johannes
Brahms og Dream with me eftir
Leonard Bernstein úr söngleiknum
Pétri Pan.
„Mér finnst afar ánægjulegt að
sjá hversu flóran í hádegistón-
leikum hérlendis er mikil og fagna
því að fá tækifæri til að taka þátt í
henni. Þetta er kjörið tækifæri fyrir
vinnandi fólk til að næra andann í
hádeginu,“ segir Margrét en tón-
leikarnir í dag taka um hálftíma.
Margrét býr og starfar í New
York sem víóluleikari og kennari.
Leið hennar lá til Bandaríkjanna í
nám fyrir 26 árum. „Við Ingveldur
kynntumst í New York á námsárum
okkar fyrir rúmum aldarfjórðungi
og höfum starfað saman í gegnum
árin. Þær Gurrý hafa starfað mikið
saman, þannig að við tengjumst all-
ar þótt við höfum aldrei allar þrjár
spilað saman áður.“
Tónlistarkennsla grunnur alls
Aðspurð segist Margrét hafa nóg
að gera við spilamennsku og
kennslu vestanhafs, en hún hefur á
síðustu árum m.a. kennt á sumar-
námskeiðum undir merkjum Sum-
merKeys þar sem fólk á öllum aldri
getur einbeitt sér að tónlistarnámi.
„Tónlistarkennslan er grunnurinn
að öllu tónlistarlífi samfélagsins,“
segir Margrét og bendir á að sú
kynslóð sem ekki naut góðs af al-
mennri tónlistarkennslu í opinbera
skólakerfinu vestanhafs sé nú vaxin
úr grasi og þess sjái áþreifanlega
merki í dvínandi aðsóknartölum á
tónlistarviðburði í Bandaríkjunum.
„Þar er allt að dragast saman.
Gamla konsertformið er að víkja
fyrir nýjum áherslum. Það eru
breyttir tímar,“ segir Margrét og
leggur áherslu á að almenn tónlist-
arkennsla skili ekki aðeins afburða
tónlistarfólki í framtíðinni heldur
einnig áheyrendum. „Ef listum er
ekki haldið að fólki í æsku þá veit
það ekki hvers það fer á mis og leit-
ar ekki í listviðburði á fullorðins-
árum. Það gleður mig hins vegar að
sjá hvað gróskan í tónlistarlífinu
hérlendis er mikil, sem er bein af-
leiðing af því hversu frábær tónlist-
arkennslan hér á landi hefur verið.
Ég vona að haldið verði áfram því
góða starfi hérlendis.“
Morgunblaðið/Ómar
Flauelsraddir Guðríður Steinunn Sigurðardóttir, Margrét Th. Hjaltested og
Ingveldur Ýr Jónsdóttir koma fram á hádegistónleikum í Laugarneskirkju.
„Mjúk og falleg“
Verk fyrir víólu, mezzósópran og pí-
anó flutt í Laugarneskirkju á morgun
Ákveðið hefur verið að leyfa Ástr-
ölum að keppa í Eurovision í Vín
laugardaginn 23. maí nk. Jon Ola
Sand, sem hefur yfirumsjón með
Eurovision fyrir hönd EBU, telur
ákvörðunina bæði spennandi og
djarfa. „Þetta er okkar leið til að
bjóða öðrum í veisluna með okkur,“
segir Sand, en keppnin fagnar 60
ára afmæli sínu í vor.
Alls munu 40 lönd taka þátt í
keppninni í ár. Ástralar þurfa ekki
að taka þátt í undankeppnunum
tveimur vikunni fyrir aðalkeppnina
heldur er þeim gulltryggt sæti á
lokakvöldinu. Ástralar fá hins veg-
ar að greiða atkvæði um lögin öll
þrjú keppniskvöldin, en verið er að
skoða hvort símakosning fái að
gilda til helmings á móti atkvæði
ástralskrar dómnefndar.
Þetta verður í fyrsta og eina
skiptið sem Áströlum gefst kostur á
að taka þátt í Eurovision, en keppn-
in hefur verið sýnd í ástralska sjón-
varpinu sl. 30 ár og notið stigvax-
andi vinsælda á síðustu árum. Fari
svo að Ástralar vinni fá þeir hins
vegar ekki að hýsa sjálfa keppnina.
Ástralar fá að keppa í Eurovision
Ástin Bresk-ástralska söngkonan Olivia
Newton-John keppti fyrir hönd Breta með
lagið Long Live Love 1974 en laut í lægra
haldi fyrir ABBA með Waterloo.
Síðustu tilnefn-
ingar til Íslensku
tónlistarverð-
launanna 2014
voru opinber-
aðar í gær. Um
er að ræða til-
nefningar í
flokkunum
nýliðaplata árs-
ins, tónlistar-
myndband árs-
ins, plötuumslag og bjartasta von
ársins í poppi og rokki, en í síðast-
nefnda flokknum eru tilnefnd þau
Júníus Meyvant, Amabadama, Máni
Orrason og Vio. Aðrar tilnefningar
má nálgast á vefnum iston.is.
Verðlaunin verða veitt í Hörpu
föstudaginn 20. febrúar og sýnt
beint frá afhendingunni í Ríkissjón-
varpinu. Almenningur getur tekið
þátt í valinu á nýliðaplötu ársins og
björtustu voninni á vef RÚV.
Síðustu tilnefn-
ingar kynntar
Von Magnús
Thorlacius úr Vio.
Sýning á verkum danska lista-
mannsins Poul Gernes (1925-1996)
verður opnuð í i8 í dag. Á sýning-
unni gefur að líta abstraktverk frá
árunum 1965 til 1967 úr seríum sem
Gernes vann ötullega að á þeim ár-
um. „Verkin grundvallast á end-
urtekningunni og reglum sem lista-
maðurinn setti sér og einkennast af
einföldum formum hringja, randa
og bókstafa í ólíkum litasamsetn-
ingum,“ segir m.a. í tilkynningu.
Þar kemur fram að Gernes trúði
því að einföld og milliliðalaus tján-
ing hefði mest samfélagsleg áhrif.
„Litir áttu að vera skýrir og sterkir
en þó fyrst og fremst glaðlegir fyrir
augað. Formin sem sköpuðust
vegna samspils litanna áttu að vera
skýr tákn og auðþekkjanleg. Hann
trúði því að einföld form og litir
hefðu jákvæð áhrif á lífsgæði
manna. Gernes barðist gegn valda-
kerfi listheimsins og leit á listina í
samfélagslegu samhengi, frekar en
einstaklingsbundna tjáningu. Hann
efaðist um viðtekin gildi listhefð-
arinnar og gróf undan þeim bæði
með efnisvali sínu, hversdagslegum
athöfnum í listsköpun sinni og með
því að draga úr skilunum milli
myndlistar og fjöldaframleiðslu.“
Verk Pouls Gernes sýnd í i8
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Litadýrð Yfirlitsmynd frá sýningu Ger-
nes í i8 sem opnuð verður í dag.
48
RAMMA STÆRSTA OPNUNAR-
HELGI ALLRA TÍMA Á
ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
2 VIKUR
Á TOPPNUM!
Spenna, hasar og ótrúlegar tæknibrellur í
frábærri ævintýramynd með stórleikurunum
Jeff Bridges og Julianne Moore
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus
í Háholt 13-15
Mosfellsbæ eða
Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík.
Opið í dag til kl. 18.00
www.mosfellsbakari.is
sími 566 6145
MOSFELLSBAKARÍ
Langar þig í rjómabollu?
Vertu
velkomin
til okkar