Morgunblaðið - 20.02.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2015
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
APÓTEK RESTAURANT BÝÐUR
FERNANDO TROCCA VELKOMINN
Argentíski gestakokkurinn Fernando Trocca er frábær fagmaður
og skemmtilegur karakter. Hann hefur starfað á heitustu stöðum
Argentínu, Evrópu og New York. Fernando opnaði veitingahúsið
SUCRE í Buenos Aires árið 2001 og hefur síðustu þrjú ár starfað
sem yfirmatreiðslumaður á Gaucho Grill.
VELKOMIN Í SKEMMTILEGA UPPLIFUN ÞAR
SEM ARGENTÍSKUR TANGÓMÆTIR FERSKU
ÍSLENSKU HRÁEFNI MEÐ EINSTAKLEGA
BRAGÐGÓÐRI ÚTKOMU.
CEVICHE
Rautt Ceviche með risarækju, tómötum og rauðlauk
TIRADITO
Laxa Tiradito Nikkei með engifer og avocado
SVÍNASÍÐA
Hægelduð svínasíða með nektarínumauki og laukseyði
CACHI
Salfisk “Cachi” með volgu epla og kartöflusalati
LAMBAKÓRÓNA
Lambakóróna með söltu Patagonian eggaldin, brúnuðum
gulrætum og “Chimichurri”sósu
og að lokum..
BALCARCE-KAKA
Balcarce- kaka með Dulce de leche kremi og mjólkur-crumble
25. FEBRÚAR TIL 1. MARS
8.500 kr.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Á annað þúsund hönnuðir, iðnmeistarar og bygginga-
stjórar hafa fengið skráð gæðastjórnunarkerfi hjá Mann-
virkjastofnun. Á fimmta hundrað iðnmeistarar hafa sótt
námskeið um gæðakerfi hjá Iðunni fræðslusetri og marg-
ir leitað aðstoðar annars staðar.
Með mannvirkjalögum var gerð krafa um að iðnmeist-
arar, hönnuðir og byggingastjórar væru með viðurkennd
gæðastjórnunarkerfi. Tilgangurinn er að auka gæði
mannvirkja og draga úr kostnaði sem leiðir af galla í
hönnun eða byggingu. Mannvirkjalögin gengu í gildi 1.
janúar 2011 en gildistöku ákvæða um gæðastjórnunar-
kerfi var frestað til síðustu áramóta.
Ræðst af verkefnastöðu
Þess vegna hafa meistarar og hönnuðir verið að koma
sér upp þessum kerfum á undanförnum mánuðum. Í til-
viki iðnmeistaranna þurfa kerfin að fela í sér staðfestingu
á hæfni iðnmeistara, skrá yfir úttektir og niðurstöður
þeirra og skrá yfir athugasemdir byggingarstjóra, auk
lýsingar á innra eftirliti hjá meistaranum.
Samkvæmt upplýsingum Mannvirkjastofnunar hafa
480 hönnuðir skráð gæðastjórnunarkerfi, 400 iðnmeist-
arar og 330 gæðastjórar. Þess ber að geta að bygginga-
meistarar eru annað hvort hönnuðir eða iðnmeistarar og
eru menn því tvítaldir.
Iðnmeistarar og hönnuðir skipta þúsundum. Meistar-
ar og hönnuðir sem skrifa upp á byggingarleyfisskyld
verkefni þurfa að hafa þessi kerfi. Þeir sem ekki telja sig
þurfa að skrifa upp á verkefni á næstunni geta frestað því
að fara í gegn um þessa vinnu og sumir vinna hjá öðrum
og þurfa ef til vill aldrei á þessu að halda.
Flestir eiga sjálfir að geta komið sér upp möppu með
þeim upplýsingum sem krafist er, en það er grunnur
gæðastjórnunarkerfis, en einnig er hægt að leita aðstoð-
ar fyrirtækja eða samtaka.
Þeir sem eru að koma sér upp kerfum þurfa að fara í
svokallaða skjalaskoðun hjá vottunarstofu og fá síðan
skoðunarskýrslu innan árs um að kerfið virki. Þá eru þeir
komnir með fullgilt gæðastjórnunarkerfi.
Margir skrá gæðastjórnun
Iðnmeistarar og hönnuðir
þurfa að koma upp gæðastjórn-
unarkerfum samkvæmt lögum
Morgunblaðið/Eggert
Uppá þaki Þeir meistarar sem skrifa upp á verk þurfa
kerfi. Mannvirkjalögin gengu í gildi 1. ágúst 2011.
Aukablað alla
þriðjudaga
Ákveðið var á fundi skipulags-
nefndar Rangárþings eystra í gær
að fresta byggingu nýs hótels á
Skógum, en mikil andstaða hefur
verið á meðal íbúa svæðisins við
fyrirhugaða staðsetningu hótelsins.
Bókun skipulagsnefndar um frest-
un og endurskoðun deiliskipulags-
tillögu á hluta jarðarinnar Ytri-
Skóga kvað á um að mikilvægt væri
að skipulagsmál Skóga yrðu skoðuð
í stærra samhengi. Tekið yrði tillit
til fleiri þátta en nú er gert, til
dæmis stækkunar á íbúðarsvæði og
þjónustusvæðum, fyrirkomulags
fráveitu á svæðinu og fleira. „Sveit-
arstjórn þarf svo að samþykkja
fundargerðina,“ segir Anton Kári
Halldórsson, byggingarfulltrúi
Rangárþings eystra. laufey@mbl.is
Hóteli á Skógum frestað í skipulagsnefnd
Hótel Hugmynd að útliti hótels á Skógum.