Morgunblaðið - 12.03.2015, Qupperneq 9
SKÁK
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Þar sem fjöldi þátttakenda á Reykja-
víkurskákmótinu sem hófst í Hörpu á
þriðjudaginn er svo mikill er þess
ekki að vænta að línur taki að skýrast
fyrr en nokkuð er liðið á mótið en
tefldar verða tíu umferðir. Í gær voru
tvær umferðir á dagskrá og þess
vegna gripu nokkrir tækifærið og
skráðu sig fyrir ½ vinnings yfirsetu.
Að sumir af okkar sterkari skák-
mönnum okkar, t.d. Hannes Hlífar
Stefánsson og Stefán Kristjánsson,
skuli kjósa yfirsetu svo snemma móts
verður að telja fremur hæpna ráð-
stöfun því það munar um hvern ½
vinninginn í baráttunni. En fari svo
að ein slík ½ vinnings yfirseta fyr-
irfinnist á „skorkorti“ sigurvegarans
mun ég glaður taka þessi orð aftur.
Héðinn vann í átta leikjum
Eftir fyrri umferðir í gær, þ.e.
tvær umferðir, voru nokkrir íslenskir
skákmenn búnir að vinna báðar skák-
ir sínar og voru í hópi 33 skákmanna
með 2 vinninga, en þetta voru voru
þeir Hjörvar Steinn Grétarsson,
Héðinn Steingrímsson, Guðmundur
Kjartansson, Dagur Arngrímsson,
Henrik Danielsen, Bragi Þorfinns-
son, Halldór Grétar Einarsson, Jón
Viktor Gunnarsson, Einar Hjalti
Jensson og Jón Kristinn Þorgeirs-
son.
Héðinn Steingrímsson vann stystu
skák mótsins þegar hann sigraði
Lenku Ptacnikovu í aðeins átta leikj-
um með svörtu!
Þar sem mótið er öllum opið er oft
gífurlegur stigamunur á keppendum.
Hinn 13 ára gamli Halldór Atli Krist-
jánsson gerði jafntefli í 1. umferð við
Adam Brzezinski en stigamunur á
þeim var um 800 elo-stig. Það er ein-
mitt galdurinn við þetta mót að
óvænt úrslit sjá dagsins ljós í hverri
umferð. Armeninn Sergei Movsesian,
fimmti stigahæsti maður mótsins,
átti sér einskis ills von í fyrri umferð-
inni í gær og tapaði í aðeins 33 leikj-
um fyrir lítt þekktum enskum skák-
manni:
Reykjavíkurskákmótið 2015; 2.
umferð:
Daniel Bisby – Sergei Movsesian
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3
Kóngsindverska uppbyggingin á
alltaf sína fylgismenn.
3. … d5 4. De2 Re7 5. g3 b6 6. Bg2
Bb7 7. O-O Rbc6 8. e5 h6 9. h4 g6 10.
c3 Bg7 11. Ra3 Ba6 12. He1 Dd7 13.
Hb1 Rf5
Hyggst svara 14. b4 með 14. …
cxb4 15. cxb5 Rfd4 o.s.frv.
14. g4! Rfe7 15. b4 Rd8 16. bxc5
bxc5 17. c4!
Stingur upp í biskupinn á a6 sem
opnar á leið fyrir c1-biskupinn til a3.
17. … h5 18. gxh5! Hxh5 19. Rb5
Rf5 20. d4!?
Hvitur tekur nokkra áhættu með
þessum leik en 20. Bg5! kom sterk-
lega til greina.
20. … cxd4?
Betra var 20. … Bxb5 21. Hxb5
Rxd4 22. Rxd4 Hxe5 og samkvæmt
„Houdini“ er svartur ekki í nokkurri
hættu eftir 23. Rxe6! Hxe2 24.
Rxg7+ Kf8 25. Hxe2 Kxg7 26. Bxd5
Hc8 þó biskuparnir séu býsna ógn-
andi eftir 27. Bb2+. Það er ekki
ósennilegt að Movsesian hafi séð
þessa stöðu í útreikningum sínum og
metið hana svo að vinningsmöguleik-
ar svarts væru vart fyrir hendi.
21. cxd5 Kf8?!
Hann gerir sér vonir um að geta
notfært sér leppun riddarans. En
hvítur fær ógnandi peð á d6.
22. d6! Hb8 23. a4 Rxh4 24. Rxh4
Hxh4 25. Bg5! d3 26. Dxd3 Hxa4
Enn er riddarinn á b5 leppur. En
Bisby sér leik á borði.
27. Dh3!
Frábær leikur sem byggist á ein-
faldri hugmynd: 27. … Hxb5 28. Dh7!
og vinnur.
27. … Kg8 28. Rc7 Hxb1 29. Hxb1
Bxe5?
Hann varð að valda drottninguna
með 29. … Bc8.
30. Rd5! Ha5
Eða 30. … Dxd6 31. Rf6+! og mát-
ar.
31. Bf6!
- og Movsesian gafst upp.
Fjölmargir Íslendingar
byrja með tveim sigrum
Nokkrir skráðu sig fyrir ½ vinnings yfirsetu í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa Reykjavíkurskákmótið fer vel af stað hjá íslensku keppendunum.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
VOR 2015
15%
afsláttur
af öllum vörum í dag
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
tískuvika
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Töluverð ásókn er í húsmæðraorlof á
vegum um 20 orlofsnefnda hús-
mæðra vítt og breitt um landið, en
fyrir Alþingi liggur frumvarp um af-
nám laga um húsmæðraorlof.
Lög um orlof húsmæðra voru lög-
fest 1960 og ný heildarlög sett 1972.
Tilgangur þeirra var að viðurkenna
mikilvægi ólaunaðra starfa, en kona
sem veitir eða hefur veitt heimili for-
stöðu án launagreiðslu fyrir starfið,
á rétt til orlofsins. Sveitarfélögum
ber að greiða liðlega 100 krónur á
hvern íbúa sveitarfélagsins til orlofs
húsmæðra, þannig að útgjöldin
nema samtals um 33 milljónum
króna á ári.
Svanhvít Jónsdóttir, formaður or-
lofsnefndar Kvenfélagasambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu, segir að
biðlisti sé í tvær af þremur ferðum,
sem nefndin skipuleggur til útlanda í
ár. Almenna reglan er að konur, sem
ekki hafa farið áður, ganga fyrir.
Mikilvægt samfélagsverkefni
Lögin hafa verið gagnrýnd og
sögð barn síns tíma. „Það er ekki
sanngjörn gagnrýni,“ segir Svan-
hvít. Hún vísar til þess að margar
konurnar séu einar eða eigi veika
eiginmenn, konur sem hafi gott af
því að komast í burtu og finni fyrir
mesta örygginu í hópi með öðrum
konum. „Þetta eru eldri konur sem
hafa aldrei fengið fæðingarorlof,
barnabætur eða niðurgreiddan leik-
skóla,“ segir hún. Svanhvít áréttar
að öll vinna í sambandi við orlofs-
ferðirnar sé unnin í sjálfboðavinnu
og starfið sé mjög mikilvægt. Nið-
urgreiðslan hafi yfirleitt verið um
20-50 þúsund krónur á hverja konu.
„Margar konur borga fullt gjald,“
bætir hún við, en bendir á að aðrar
konur hafi ekki mikið á milli hand-
anna og muni um hverja krónu.
„Flest sveitarfélögin munar ekki um
þessar upphæðir en þær skipta
margar konur máli,“ segir hún. „Það
er svo margt að hjá svo mörgum,
sem við vitum ekki um, en konurnar
fá mikið út úr þessum ferðum og búa
að því.“
Frumvarpið er til umfjöllunar í
allsherjar- og menntamálanefnd
þingsins og rann umsóknarfrestur
um það út í gær. Nokkrar umsóknir
hafa borist. Bæjarráð Vestmanna-
eyja hvetur til dæmis Alþingi „mjög
eindregið til að afnema lög um orlof
húsmæðra“ og formaður Jafnrétt-
isráðs segir að „með lögum og sjóð-
um sem þessum er verið að viðhalda
gömlum gildum sem við viljum upp-
ræta og passsa ekki inn í raunheima
dagsins í dag“.
Morgunblaðið/Eggert
Húsmæður Kvennaferðir henta þeim frekar en fljótandi hótel.
Orlofið mikilvægt
fyrir konurnar
Ásókn í ferðir um 20 orlofsnefnda