Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015                                    !"# !$ $$! % #$%$ "!"$ "#% $!$ "  &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 ! !# ! $%# %! ## $% $ $%# "%"" # !"! !$ $" %! #$ "! " $! "%# !!" Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Launavísitalan hækkaði í febrúar um 0,5% frá fyrri mánuði, samkvæmt mæl- ingum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,4%. Launavísitalan tekur mið af breyt- ingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma, hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Vísitala kaupmáttar launa, sem byggist á launavísitölu og vísitölu neysluverðs, lækkaði hins vegar um 0,1% í febrúar frá fyrri mánuði. Síðastliðna 12 mánuði hef- ur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 5,6%. Hafa ber í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöf- unartekna, þar sem tekið er tillit til heild- arlauna, annarra tekna og tilfærslna, svo sem barna- og vaxtabóta, að frádregn- um sköttum. Launavísitalan hækkaði um 6,4% á 12 mánuðum ● Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte, var endurkjörin formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í fyrradag. Endurkjörin í stjórn SVÞ voru þau Ari Edwald, Árni Stefánsson hjá Húsa- smiðjunni og Margrét G. Flóvenz hjá KPMG. Ný í stjórn koma þau Áslaug Hulda Jónsdóttir hjá Hjallastefnunni, Gestur Hjaltason hjá ELKO og Sigríður Margrét Oddsdóttir hjá Já upplýsingaveitum. Margrét endurkjörin formaður hjá SVÞ STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is „Flestum virðist löngu orðið ljóst að endurútreikningar Lýsingar á geng- istryggðum lánum eru ekki í sam- ræmi við lög. Lýsing hefur þó neitað að viðurkenna þetta og krefur við- skiptavini sína enn um greiðslur í samræmi við hina ólögmætu endur- útreikninga.“ Þetta er meðal fullyrð- inga sem fram koma í skýrslu sem Samtök iðnaðarins létu gera um starfshætti fjármögnunarfyrirtækis- ins Lýsingar en í fyrradag greindi Morgunblaðið frá þeim fjölda mála sem Lýsing á aðild að og hafa verið höfðuð fyrir Héraðsdómi Reykjavík- ur á fimm ára tímabili. Alls eru málin 874 og voru 510 mál enn óleyst 20. janúar síðastliðinn þar sem Lýsing er til varnar í 392 þeirra. Í skýrslunni segir að flest fjármála- fyrirtæki önnur en Lýsing hafi að mestu leyti verið sammála um hvern- ig endurútreikningum skuli háttað á gengistryggðum lánum og ósam- ræmið milli dóma Hæstaréttar og framkvæmdar Lýsingar skýri að nokkru leyti þann fjölda dómsmála sem nú eru rekin gegn Lýsingu. Gerður er samanburður á endur- útreikningi gengistryggðs láns sem í skýrslunni segir að sýni raunveruleg áhrif aðferða Lýsingar ef notast hefði verið við þá aðferð sem önnur fjár- málafyrirtæki beita. Í því tilviki er um bílalán að ræða sem upprunalega var að fjárhæð 2.347.888 krónur. Lántaki hafði fram að dómum Hæstaréttar 16. júní 2010 (sem litið er á sem fordæmisgefandi) greitt 1.740.741 krónu í hreinar afborganir samkvæmt greiðsluseðlum Lýsingar. Eftirstöðvar lánsins hefðu því eftir þær greiðslur átt að vera 607.147 krónur en að viðbættum seðlabanka- vöxtum fram til dagsetningar end- urútreiknings Lýsingar hefðu eftir- stöðvarnar þá átt að vera 625.058 krónur. Niðurstaða endurút- reikninga Lýsingar var hins vegar að eftirstöðvarnar væru 1.343.833 krón- ur eða rúmlega tvöfalt hærri. Mis- munurinn er skýrður af því að Lýsing telur að lántaki hefði átt að greiða 975.498 krónur í vexti á tímabili þar sem lántaki greiddi 343.525 krónur. Innheimtuaðgerðir ekki á bið Í skýrslunni segir að Lýsing hafi að nokkru leyti viðurkennt að mögulega séu endurútreikningar félagsins ólög- mætir en það megi sjá af því að kröf- um lántaka um endurgreiðslu hefur í einhverjum tilfellum ekki verið að öllu leyti hafnað heldur vísað til þess að ákveðin dómsmál séu til meðferðar hjá dómstólum og mögulega verði greitt að þeim loknum. Þrátt fyrir þetta hafi Lýsing ekki sett inn- heimtuaðgerðir sínar á bið og þannig hafi samningum verið rift, krafist af- hendingar á tækjum, ráðist í innsetn- ingargerðir neiti lántaki að skila tækjum og kröfur sendar í löginn- heimtu. Í skýrslunni segir: „Allt er þetta gert þrátt fyrir að til greina komi að viðeigandi lántakar skuldi lít- ið eða ekkert séu lán þeirra endur- reiknuð með þeirri aðferð sem önnur fjármálafyrirtæki beita. Jafnvel get- ur staðan verið sú að lántakar hafi þegar ofgreitt lán sín og Lýsing skuldi í raun lántökunum en ekki öf- ugt.“ Þá segir að það sé sérstakt vanda- mál þegar lántakar taki ekki til varn- ar því þá eigi þeir á hættu að vera úr- skurðaðir til að afhenda bifreiðar sínar og jafnvel dæmdir til greiðslu á grundvelli rangt reiknaðra lána enda ber dómstólum engin skylda til að taka útreikningana til skoðunar að eigin frumkvæði. Þeirri spurningu er varpað fram í skýrslunni hvort ekki væri æskilegra að Lýsing setti inn- heimtuaðgerðir sínar á bið meðan fé- lagið telur óvissu til staðar um hvern- ig endurreikna beri gengistryggð lán. Þá er vísað til þess að í fréttatilkynn- ingu Lýsingar 9. mars 2012 komi fram að innheimtuaðgerðir verði tímabundið stöðvaðar vegna gengis- tryggðra samninga en að sú stöðvun virðist ekki hafa varað lengi því tæpu hálfu ári síðar hóf Lýsing á ný að höfða mál gegn viðskiptavinum. Samtök iðnaðarins ekki hlutlaus Í yfirlýsingu sem Lýsing sendi frá sér þegar leitað var viðbragða við fullyrðingum í skýrslu SI segir að vegna þátttöku Samtaka iðnaðarins í dómsmálum gegn Lýsingu um veru- lega hagsmuni tengda fjármögnunar- leigusamningum félagsmanna þeirra geti þau ekki talist hæf til að veita hlutlaust álit á starfsháttum félags- ins. Skýrsla samtakanna beri öll merki þess að samtökin telji sig eiga harma að hefna gagnvart Lýsingu, en Lýsing hafi undantekningarlaust unnið mál vegna fjármögnunarleigu- samninga fyrir Hæstarétti. „Morgun- blaðið spyr sérstaklega um útreikn- ingsaðferðir, sem um er fjallað í skýrslunni eins og ekki hafi orðið veruleg þróun í því efni með nýlegum dómum Hæstaréttar um fullnaðar- kvittanir. Eftir að dómaframkvæmd varð skýrari hefur verið unnið að sáttum í fjölmörgum málum sem höfðuð voru á hendur Lýsingu. Skýrslan er því í meginatriðum röng, einhliða og villandi,“ segir í yfirlýs- ingu Lýsingar sem birt er í heild á mbl.is. Endurútreikningar sagðir ganga í berhögg við lög Morgunblaðið/Eggert Fjármögnun Lýsing sver af sér harða gagnrýni í skýrslu Samtaka iðnaðar- ins á starfshætti fyrirtækisins og segir skýrsluna ranga, einhliða og villandi.  Lýsing segir öll mál vegna fjármögnunarleigusamninga hafa unnist fyrir Hæstarétti Fimm lífeyrissjóðir stóðust reglu- bundna úttekt Fjármálaeftirlitsins á áhættustýringu þeirra, sem fram fór í lok síðasta árs. Sjóðirnir sem skoð- aðir voru, jafnt með heimsóknum og gagnaöflun, eru Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyr- issjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Sameinaði lífeyrissjóðurinn. Athuganir FME beindust fyrst og fremst að því hvort sjóðirnir færu að leiðbeinandi tilmælum nr. 1/2013 sem sett hafa verið í tengslum við lög og reglur sem kveða á um áhættu- stýringu samtryggingadeilda sjóð- anna. Í kjölfar formlegrar athugunar ritaði FME skýrslur til sjóðanna með ábendingum þar sem forsvars- menn lífeyrissjóðanna fengu færi á að koma sjónarmiðum sínum og frekari upplýsingum á framfæri við eftirlitið. Það var mat FME að áhættustýr- ing sjóðanna fimm væri almennt í góðu horfi og ekki voru sérstaklega gerðar athugasemdir við fram- kvæmd áhættustýringar innan þeirra en þó fylgdu í kjölfar athug- unarinnar ábendingar um þau atriði sem Fjármálaeftirlitið taldi að betur mættu fara hjá hverjum sjóði fyrir sig. Heildareignir sjóðanna fimm nema um 1.200 milljörðum króna en stærstir eru Lífeyrissjóður verslun- armanna með eignasafn upp á 510 milljarða og Gildi með rúman 371 milljarð. Minnstur er Lífeyrissjóður bankamanna en eignir hans nema tæpum 63 milljörðum króna. Morgunblaðið/Styrmir Kári Eftirlit Unnur Gunnarsdóttir er forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Fimm sjóðir stóð- ust úttekt FME  Mat var lagt á áhættustýringu og eftirlitskerfi þeirra Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flottir í fötum Ný sending af Bertoni jakkafötum fyrir töffara á öllum aldri herraskór Oban Tanton Taddley
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.