Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 1. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 68. tölublað 103. árgangur
ÞÁTTUR
ÍBÚANNA
SKIPTIR MÁLI
VÆNLEGAST
TIL ÁRANGURS
AÐ ÆFA EKKERT
ASK HASSELBALCH 55BÓKABÆIR 10
Benedikt Bóas
Benedikt@mbl.is
Árni Páll Árnason sigraði Sigríði
Ingibjörgu Ingadóttur í formanns-
kjöri Samfylkingarinnar á lands-
fundi flokksins í gærkvöldi. Árni
Páll hlaut 49,49% atkvæða eða 241
atkvæði en Sigríður Ingibjörg
49,28% eða 240 atkvæði. Munaði því
aðeins einu atkvæði. Anna Pála
Sverrisdóttir, sem ekki hafði boðið
sig fram, fékk eitt atkvæði. Árni
verður því áfram formaður Sam-
fylkingarinnar. Fimm atkvæði voru
auð.
„Þetta er ekki óskaniðurstaða,“
sagði Árni Páll eftir að úrslitin
höfðu verið tilkynnt. „Ég þarf að
vanda mig mjög vel í framhaldinu.
Ég hef enga sérstaka gagnrýni
heyrt á mín störf frá því að þetta
mótframboð kom fram. Ég hef
heyrt almenn orð en ég hef enga
beina gagnrýni heyrt, hvað ég hefði
átt að gera öðruvísi eða eitthvað
slíkt. En ég tek auðvitað allri slíkri
gagnrýni ef hún kemur fram.“
Sigríður Ingibjörg var hrærð yfir
úrslitunum. „Ég er þeim þakklát
sem ýttu á mig og það er augljóst að
krafan um breytingar innan flokks-
ins er mikil. Ég sé ekki annað en að
við munum vinna öll saman að því
og það er enginn óvinafögnuður í
Samfylkingunni. Óvinurinn er
hægristjórnin.“ Kristján Möller
sagðist aldrei hafa kynnst öðru eins.
„Ég var íþróttafulltrúi til margra
ára og framkvæmdi skíðamót og
annað slíkt. Ég hef oft séð menn
sigra með einu sekúndubroti eða
marki á síðustu stundu. En að sjá
það gerast í formannskjöri í flokkn-
um, það hefði ég aldrei getað
ímyndað mér.“
Munaði einu atkvæði
Morgunblaðið/Eggert
Að lokinni baráttu Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Árni Páll Árnason fallast í faðma skömmu eftir að úrslitin voru kunngjörð í gærkvöldi.
Árni Páll Árnason endurkjörinn með minnihluta atkvæða „Ekki óskaniður-
staða,“ segir Árni Páll „Enginn óvinafögnuður,“ segir Sigríður I. Ingadóttir
MLandsfundurinn »12, 14 og 30.
Sólmyrkvinn í gærmorgun fór ekki
framhjá nokkrum Íslendingi en
slíkt gerist þegar tunglið gengur
milli sólar og jarðar og myrkvar
sólina að hluta til eða í heild frá
jörðu séð. Formaður Stjörnuskoð-
unarfélags Seltjarnarness, Sævar
Helgi Bragason, segir að bestu skil-
yrðin til að fylgjast með sólmyrkv-
anum hafi verið hér á landi en hann
náði hámarki klukkan 9:37 í gær-
morgun. Gríðarleg stemning mynd-
aðist víða á landinu og brutust með-
al annars út fagnaðarlæti hjá þeim
þúsundum sem safnast höfðu sam-
an fyrir framan aðalbyggingu Há-
skóla Íslands en þar var haldin sól-
myrkvahátíð í tilefni dagsins.
Dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjörnufræðingur, segir tunglið
hafa hulið 97,5% af skífu sólar í
Reykjavík en 99,4% á Norðfirði.
Mörgum þótti kólna nokkuð þegar
tunglið skyggði á sólina að mestu
en Veðurstofan segir að hitinn hafi
lækkað um 0,7 gráður þegar
myrkvinn var sem mestur.
Á Stjörnufræðivefnum kemur
fram að almyrkvi verði árið 2026
og mun hann sjást frá vesturhluta
Íslands, meðal annars frá Reykja-
vík. » 20 og 22
Morgunblaðið/Kristinn
Áhorfendur Fólk horfði á sólmyrkvann í gegnum sérstök gleraugu.
Sólmyrkvinn átti hug
og hjörtu landsmanna
Aðstæður til að sjá sólmyrkvann í gærmorgun voru hvergi betri í heiminum en á Íslandi
Fjárfestar eru nú að ganga frá fjár-
mögnun vegna kaupa á Setbergs-
landinu í Garðabæ.
Samkvæmt þeim hugmyndum
sem kynntar hafa verið er horft til
þess að byggja 630 íbúðaeiningar á
svæðinu. Gangi það eftir verður
söluverð lóða undir íbúðirnar á
fjórða milljarð króna.
Dótturfélag Landsbankans,
Hömlur, á byggingarlóðirnar.
Golfklúbburinn Setberg rekur nú
golfvöll á svæðinu og segir Hannes
F. Sigurðsson, verkefnastjóri hjá
Hömlum, ekki víst að völlurinn fari.
„Við höfum unnið með þá hugmynd
að golfvöllurinn fengi að halda sér
við vatnið og hraunjaðarinn. Það
yrði þá 9 holu völlur. Það er hins
vegar ekki ljóst hvaða hugmyndir
nýir fjárfestar hafa.“ »4
Morgunblaðið/Sverrir
Vinsælt Margir spila golf á Íslandi.
Óvíst að
golfvöllur
muni víkja
Eftirlíking
miðaldadóm-
kirkju og timbur-
hús í anda þess
sem var um alda-
mótin 1900 verða
áberandi í nýjum
miðbæ á Selfossi.
Bæjarráð Ár-
borgar hefur samþykkt áform Sig-
túns þróunarfélags ehf. sem ætlar
sér að reisa allt að 30 hús á svæð-
inu, andspænis Ölfusárbrú. Áform
um uppbyggingu fyrir um þrjá
milljarða króna eru komin vel á veg
og verða kynnt í dag í Tryggva-
skála á Selfossi. »16
Miðbær í gömlum
stíl fyrir 3 milljarða
Selfoss Gamalt
verður nú nýtt.
Viðskipta-
félagarnir Jónas
Hagan og Ed-
ward Mac Gilliv-
ray Schmidt
keyptu þrjár
efstu hæðirnar í
íbúðaturni á
Lindargötu 37 og
herma heimildir
blaðsins að kaup-
verðið hafi ekki verið undir 570
milljónum króna.
Ekkert var til sparað við hönnun
og húsbúnað í íbúðunum fjórum og
er heildarkostnaður við þær um
700 milljónir.
Félagarnir nota íbúðirnar annað
slagið en þeir búa í Genf. »4
Tveir vinir setja 700
milljónir í íbúðir
Lindargata 37.