Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.03.2015, Blaðsíða 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2015 sögu Akraness. Hún var konan sem bæði þorði, vildi og gat. Við Haraldur þökkum tryggð og góða vináttu og óskum öllum hennar stóra og glæsilega afkom- endahópi alls hins besta á kom- andi tíð. Ingibjörg Pálmadóttir, Akranesi. Hin mæta kona, Bjarnfríður Leósdóttir, hefur kvatt þessa jarðvist. Þeirra forréttinda naut ég allt frá bernsku að eiga Bíu, eins og hún var jafnan kölluð, að næsta nágranna og njóta síðan vináttu hennar og velvilja alla tíð. Það hreif mig strax sem barn hvað Bía var einlæg og sönn í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Það var auðvelt að hrífast með áhug- anum og kraftinum hjá þessari einstöku konu, því hugur fylgdi jafnan máli í öllum viðfangsefnum, jafnt í leik sem starfi. Hún tók t.d. virkan þátt í starfsemi Leikfélags Akraness og sýndi mikla hæfileika á leiksviði og mörgum er hún eft- irminnileg sem hin glæsilega Snæfríður Íslandssól í uppsetn- ingu félagsins á Íslandsklukkunni árið 1962. Það var í anda Bíu að vera líf- æðin í Bókmenntaklúbbnum á Akranesi, þar sem fræðaþulurinn Þórleifur Bjarnason og fleira gott fólk las saman það helsta sem var að gerast í íslenskum bókmennt- um, og hefur hún séð til þess að út- gáfubækur Máls og menningar hafi þar fengið sína athygli. Hugmynd mín um íslensku fjallkonuna mótaðist snemma af þeim eðliskostum sem ég kynntist sem ungur drengur hjá húsfreyj- unni á Stillholti 13, kærleikanum, vitsmunum hennar, lífsköllun og sannfæringarkrafti. Maður fékk nefnilega að vita á þeim bænum að ýmislegt væri til sem skipti máli í lífinu. Þegar hún síðan í glæsileika sínum klæddist upphlutnum var myndin fullkomnuð. Bía hreifst ung að kvenfrelsisbaráttunni og tók áfram kyndilinn sem frum- kvöðlar hennar hér á landi, Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Theodóra Thoroddsen höfðu tendrað skömmu eftir aldamótin 1900. Baráttunni var alls ekki lokið og beitti Bjarnfríður sér af krafti í hvers kyns réttindabaráttu. Hún þekkti vel sögu íslenskra kvenna og var áhrifaríkt að hlusta á frá- sagnir hennar af raunverulegum atburðum um örlög kvenna, kúg- un alþýðunnar og ýmsu óréttlæti sem var ótrúlega nálægt okkur í tíma. Hún dáðist að kvenskörung- um úr alþýðustétt sem börðust fyrir sig og sína og létu ekki bug- ast í andstreyminu og voru sögur hennar af Kristrúnu á Bjargi á Akranesi miklar hetjusögur. Bía var einlæg og staðföst í öllum bar- áttumálum. Hún stóð vaktina með Herdísi vinkonu sinni í Verka- kvennafélagi Akranesi, og hvar sem hún kom að stjórnmálabar- áttu, í bæjarstjórn Akraness, í „órólegu deildinni“ í Alþýðu- bandalaginu eða í landsmálum á Alþingi var hún ætíð sjálfri sér samkvæm og trú sinni sannfær- ingu. Ævisaga hennar sem Elísa- bet Þorgeirsdóttir skráði árið 1986 er opinská og heiðarleg lesn- ing um baráttukonu með ríka rétt- lætiskennd og um hugsjónakonu sem þorði. Á síðastliðnu ári hélt fjölskylda Bíu henni glæsilega veislu í tilefni níræðisafmælis hennar. Fjallkon- an fríða hélt enn sínum glæsileik og naut stundarinnar. Örfáum dögum fyrir andlátið leit ég inn hjá henni og hélt kannski að minn- inu hefði eitthvað hrakað, en mér til mikillar ánægju fagnaði hún strax gamla nágrannanum frá Stillholtinu og áttum við góða stund saman, en ég fann að senn væri komið að kveðjustund. Blessuð sé minning góðrar og eftirminnilegrar konu. Þorsteinn Jónsson frá Stillholti. Bjarnfríður Leósdóttir var ná- granni okkar á Heiðarbrautinni í hartnær tvo áratugi. Að leiðarlok- um er ljúft að minnast óvenju- heillandi og heilsteyptrar mann- eskju sem gaf þeim sem í kringum hana voru ávallt meira en hún þáði. Okkur sýndi hún mikla rækt- arsemi og fylgdist af einlægum áhuga með sonum okkar Jóhönnu í leik og námi. Auðvitað voru mestu átakaár Bíu að baki þegar kynni okkar hófust fyrir alvöru og pólitíska valkyrjan nokkurn veginn sest á friðarstól. Reyndar áttaði ég mig fljótlega á því að þessi kona var ekki mikið gefin fyrir það að sitja lengi kyrr. Hún lét mjög til sín taka í félagsstarfi eldri borgara hér á Akranesi og ferðaðist einnig vítt og breitt um landið. Eitt sum- arið höfðum við orð á því að Bía hefði verið samfleytt heima í einar tvær vikur og þótti því vissara að athuga hvort hún væri ekki heil heilsu sem hún auðvitað var. Minnisstæð er ræða sem hún hélt óumbeðin af pallinum við hús okkar í grillveislu fyrir nokkrum árum. Ræðan var snjöll eins og Bíu var von og vísa en myndin af konu í kvöldsólinni sem hreyfði sig og talaði eins og það hefði alveg gleymst að segja henni hvað hún væri gömul er þó enn hugstæðari. Lengi vel var ekki að sjá að Elli kerling hefði roð við henni á hlaupunum en eðlilega kom að því að fylgikona sú varð ekki lengur flúin. Söm var þó sinnan hjá Bíu og fórum við því að hafa vökult auga með nágrannakonu okkar, sér- staklega ef hún brá sér af bæ síðla kvölds. Eitt sinn er ég kom heim undir miðnætti sumarið í hittið- fyrra rakst ég á Bíu sem hafði einu sinni sem oftar brugðið sér niður í fjöru að horfa á sólarlagið sem var með allra fegursta móti þetta kvöld. Hún kvaðst vera þakklát fyrir hvern slíkan dag sem hún fengi að lifa, meira bæði hún ekki um. Hún lét líka að því liggja að fleiri mættu huga að fegurð hlut- anna, ekki síst þeirra sem innan seilingar væru. Fleira sagði vin- kona okkar í samtalinu og allt var það merkilegt. Hér fór því sem oftar að ég fór glaður í sinni af hennar fundi. Fyrir það og ótal- margt fleira verð ég ævinlega þakklátur. Ari Jóhannesson. Bjarnfríður Leósdóttir tengd- ist á margan hátt sögu og starf- semi Verkalýðsfélags Akraness. Hún var fædd árið 1924, sama ár og félagið var stofnað, og sjálf var Bjarnfríður mikill verkalýðsfröm- uður. Hún tók fyrst þátt í verkalýðs- baráttu tengdri félaginu árið 1959 þegar hún vann ásamt öðrum kon- um við síldarsöltun en þær voru ekki ánægðar með laun sín og lögðu niður störf. Í kjölfar þess- arar óánægju fóru þær Bjarnfríð- ur og Herdís Ólafsdóttir, formað- ur kvennadeildar Verkalýðsfélags Akraness, til fundar við atvinnu- rekendur til að semja og náðu fram betri kjörum. Þarna sást vel sá baráttuandi sem Bjarnfríður bjó yfir og átti eftir að nýtast vel á komandi áratugum í starfi hennar fyrir félagið. Þetta var einnig upp- hafið að farsælu samstarfi Bjarn- fríðar og Herdísar sem unnu lengi saman að ýmsum málefnum á veg- um félagsins. Í gegnum tíðina gegndi Bjarn- fríður ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Verkalýðsfélag Akraness og leysti hún þau öll vel af hendi. Hún var fyrst kjörin í aðalstjórn félags- ins árið 1960 og sinnti þá starfi varagjaldkera. Hún lagði einnig mikið af mörkum til baráttu kvennadeildarinnar en þar var hún fyrst kjörin í stjórn árið 1966 og vann þá eins og áður sagði náið með Herdísi. Síðar var Bjarnfríð- ur gerð að heiðursfélaga Verka- lýðsfélags Akraness og var hún vel að þeim titli komin. Það leikur enginn vafi á því að það starf sem unnið var á þessum árum og ára- tugum skipti gríðarlega miklu máli og með því náðust ýmis rétt- indi sem verkafólk býr að í dag. Eftir að formlegu starfi Bjarn- fríðar lauk fyrir félagið var hún þó hvergi nærri hætt að taka þátt í starfsemi þess. Hún lét sig aldrei vanta í kröfugönguna 1. maí og jafnframt mætti hún alltaf í árlega ferð sem félagið býður eldri fé- lagsmönnum sínum í og naut þess vel að ferðast um landið í góðra vina hópi. Bjarnfríður missti aldrei sjónar á því hvað skiptir máli þegar kem- ur að baráttu verkafólks og hvað forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar þurfa að hafa í huga þegar kemur að því að ná fram mann- sæmandi kjörum. Það er dýrmætt fyrir þá sem að Verkalýðsfélagi Akraness hafa staðið að hafa feng- ið að hafa slíka manneskju með sér í gegnum árin og áratugina. Stjórn og starfsfólk Verkalýðs- félags Akraness minnist Bjarn- fríðar Leósdóttur með mikilli hlýju og þakklæti fyrir vel unnin störf hennar í þágu félagsins. Það er morgunljóst að hin ýmsu kjör verkamanna og -kvenna væru lak- ari en þau eru í dag ef hennar bar- áttuanda hefði ekki notið við. Fyrir hönd Verkalýðsfélags Akraness sendi ég fjölskyldu og vinum Bjarnfríðar innilegar samúðarkveðjur. Vilhjálmur Birgisson. Kveðja frá FEBAN Fyrir hönd okkar í Félagi eldri borgara á Akranesi og nágrenni langar mig að færa þakkir til Bjarnfríðar Leósdóttur sem við kveðjum í dag 20. mars 2015. Í huga okkar er bæði virðing og þakklæti. Virðing og þakklæti fyr- ir það mikla starf sem hún vann fyrir félagið okkar. Hún var alla tíð með hugann við að gera félagið að lyftistöng fyrir eldri borgara á Akranesi og að skapa fólki aðstöðu til tómstunda, menningar og fé- lagsstarfs. Það var aldrei spurn- ing hjá henni um hvað félagið gæti gert fyrir hana heldur hvað hún gæti gert fyrir félagið. Félagið var stofnað 1989. Bjarnfríður var kos- in í stjórn félagsins 1991 og var rit- ari félagsins þar til hún tók við for- mennsku 1995. Því starfi gegndi hún til ársins 2004. Eftir að Bjarn- fríður tók við sem formaður vann hún af miklum krafti að því að fé- lagið fengi góða aðstöðu fyrir starf sitt og þessi vinna hennar bar þann árangur að árið 2002 fékk fé- lagið til umráða núverandi hús- næði á Kirkjubraut 40. Það er hægt að segja að eftir það fór fé- lagsstarfsemin fyrst að blómstra. Menningarmálin voru henni alltaf hugleikin í félagsstarfinu. Frá stofnun félagsins hefur verið starfandi menningar- og fræðslu- nefnd og lét hún þau málefni sig miklu varða. Á vegum þeirrar nefndar eru leikhúsferðir og ferðalög innanlands. Oft skipu- lagði hún þessar ferðir og var jafn- framt leiðsögumaður. Í Bók- menntaklúbbnum Fífunni sem heyrir undir menningar- og fræðslunefnd naut hún sín afar vel. Þar er lesið upp úr bókum sem nefndarmenn hafa valið og enginn las betur en Bjarnfríður. Sagan fékk líf af vörum hennar. Kór- starfið var eitt af hennar stóru málum og fáum dögum fyrir and- lát sitt var hún með okkur á kór- æfingu. Það var í raun og veru enginn þáttur í starfsemi félagsins sem hún hafði ekki skoðun á og öll hennar tillegg og ráð hafa verið fé- laginu til góðs. Með þökk og virð- ingu kveðjum við í Félagi eldri borgara á Akranesi og nágrenni Bjarnfríði Leósdóttur. Við vottum aðstandendum hennar okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Félags eldri borg- ara á Akranesi og nágrenni, Ingimar Magnússon formaður. Mikil baráttukona fyrir réttlæti í heiminum hefur kvatt. Og góður vinur. Að ýmsu leyti var Bjarn- fríður Leósdóttir brautryðjandi í jafnréttisbaráttu kynja á tímum sem voru karllægir úr hófi fram. Þannig voru til dæmis framboðs- listar allra flokka í framboði til þings nær hreinir karlalistar þeg- ar Bjarnfríður og stöllur hennar ruddu sér þar til rúms á sjöunda áratug liðinnar aldar. Hún var ein- lægur og róttækur jafnaðarmað- ur, sósíalisti sem óhrædd lagði í orrustur þegar þörf krafði. Samt var hún aldrei steypt í mót flokks- hollustu eða harðrar flokkslínu – hún varð að hafa marga heima undir – var fróð og vel lesin á ýms- um sviðum, og naut fyrir vikið aðdáunar okkar félaga sinna. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir samfylgd góðs félaga á vett- vangi stjórnmálanna. En þess ut- an vildi ég minnast góðrar vináttu við mig og mína. Áratugum saman var Akranes viðkomustaður okkar Jöklara á leiðinni til og frá höf- uðborginni. Oftar en ekki kom ég við hjá Bjarnfríði og þáði þar vel- gjörning – og gisti stundum. Æv- inlega var í hennar húsi opinn faðmur, alúð, hlýja og auðgandi fé- lagsskapur. Hún hætti aldrei að vera hún sjálf – og átti það til að láta mann heyra það. En aldrei var það öðruvísi gert en af velvild og væntumþykju, svo maður gat aldrei tekið athugasemdum henn- ar öðruvísi en vel. Ég kveð minn forna félaga og góðu vinkonu, Bjarnfríði Leósdóttur, með sökn- uði. Skúli Alexandersson, Hellissandi. Þegar Fjölbrautaskólinn á Akranesi var að slíta barnsskón- um starfaði þar á skrifstofu reyndur verkalýðsskörungur og fyrrverandi varaþingmaður af Skaganum, Bjarnfríður Leósdótt- ir. Hún var alltaf nefnd Bía af þeim sem þekktu hana og hafði lengi sett svip á menningu og fé- lagslíf í bænum. Þegar hinn nýja skóla vantaði vélritunarkennara tók hún það verk að sér og sótti sér jafnframt viðbótarmenntun til kennslurétt- inda. Til slíkrar kennslu voru á þessum árum hafðar rafmagnsrit- vélar af fullkomnustu gerð en þeg- ar líða fór á níunda áratuginn varð ljóst að sú tækni var á undanhaldi; tölvur voru sem óðast að taka við. Bía var þá komin yfir sextugt en hér lagði hún ekki árar í bát held- ur tileinkaði sér nýja tækni og sneri sér nú að því að kenna ung- lingunum ritvinnslu á tölvur. Þannig var hún jafnan óhrædd við að ráðast í þau verkefni sem biðu úrlausnar þar sem margur jafn- aldri hennar myndi hafa hörfað frá. Hún lét sig ekki heldur muna um það, eftir að hún var farin á eftirlaun, að taka að sér stunda- kennslu til að leysa úr vandræðum fyrir sinn gamla skóla þó að hún væri sjálf komin á áttræðisaldur. Bjarnfríður hafði sterka réttlætiskennd, lét sig varða hlut- skipti annarra; var eindreginn vinstrimaður og lá ekki á skoðun- um sínum. Hún var náttúru- nnandi, víðlesin og hafði miklar mætur á góðum skáldskap. Hún var alls ófeimin við að segja vinnu- félögum til syndanna ef henni þóttu þeir sinnulausir um það sem miður fór eða áhugalausir um feg- urðina í kringum sig. Þeir voru flestir ungir, hefðu margir getað verið börn hennar, og fannst vafa- laust oft sem Bía væri fulltrúi ann- ars tíma og eldri kynslóðar. En undan því hlutverki skoraðist hún ekki; hún var einmitt glæsilegur fulltrúi sinnar kynslóðar og sýndi hinu yngra fólki að mannleg reisn er ekki síst fólgin í því að vera sjálfum sér samkvæmur og hafa einurð til að hlýða rödd eigin sam- visku og skoðana. Þess vegna naut hún líka almennrar virðingar og væntumþykju. Bjarnfríði lá jafnan margt á hjarta; hún var gædd vakandi skarpskyggni og fádæma kjarki og einurð. Það var mikils virði fyr- ir ungt skólasamfélag að fá til liðs við sig svo litríkan persónuleika á mótunarárum sínum. Skólinn minnist hennar nú með þakklæti og vottar aðstandendum samúð við fráfall hennar. Jón Árni Friðjónsson. ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 Ástkær móðir okkar, GRÓA FRÍMANNSDÓTTIR, áður til heimilis að Austurgötu 19, Hafnarfirði, andaðist á Hrafnistu miðvikudaginn 11. mars. Hún verður kvödd frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 24. mars kl. 13. Fyrir hönd ástvina, . Guðrún, Guðmundur, Dórothea og Ólafur Sigurjónsbörn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Núpum í Ölfusi, síðar að Baldursgötu 7a, sem lést föstudaginn 13. mars, verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 25. mars kl. 13. . Þórhildur Sæmundsdótttir, Jón Gunnar Sæmundsson, Smári Sæmundsson, Guðríður Gísladóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN JÓNSDÓTTIR frá Flateyri, lést mánudaginn 16. mars. Útför hennar fer fram frá Flateyrarkirkju föstudaginn 27. mars kl. 14. . Guðrún Nanna Guðmundsd., Hilmar Baldursson, Jón Guðmundsson, Erna Jónsdóttir, Ágústa Guðmundsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson, Margrét Jóhannesdóttir, Greta S. Guðmundsdóttir, Hafliði Vilhelmsson, Svanhildur Guðmundsdóttir, Sigurður Skagfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR, Sléttuvegi 13, Reykjavík, lést miðvikudaginn 18. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. mars kl. 11. . Gunnar Sveinbjörn Óskarsson, Guðfinna Finnsdóttir, Kristjana Óskarsdóttir, Magnús Tryggvason, Ingi Óskarsson, Þóranna Tryggvadóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANHILDUR MARTA BJÖRNSDÓTTIR geislafræðingur, Barðavogi 13, Reykjavík, lést þriðjudaginn 17. mars á Landspítalanum Hringbraut. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. mars kl. 15. . Valgerður Ólafsdóttir, Kári Stefánsson, Björn Davíð Kristjánsson, Jórunn Þórey Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.