Bókasafnið - 01.06.2011, Síða 58
58
bókasafnið 35. árg. 2011
Ljúft er mér og skylt að minnast þriggja látinna bókavarða
við Amtsbókasafnið á Akureyri, þeirra Hólmfríðar Jónsdóttur,
Harðar Jóhannssonar og Petrínu Þ. Eldjárn.
Öll störfuðu þau við útlánadeild safnsins á seinni hluta síð-
ustu aldar, á þeim tíma þegar spjaldskráin var í fullu gildi og
helstu hjálpartæki bókavarðarins voru ritvélin, myndavélin,
stimpillinn og lesvélin.
Hólmfríður var þeirra elst, fædd 4. febrúar 1921 á Ystafelli
í Köldukinn. Hún var Þingeyingur í húð og hár, alin upp við
þingeyska bændamenningu og giftist þar að auki sveitunga
sínum, Árna Kristjánssyni frá Finnsstöðum sem var kennari
við Menntaskólann á Akureyri og síðar héraðsskjalavörður
og amtsbókavörður á Akureyri. Hólmfríður lauk prófi frá Hér-
aðsskólanum á Reykjum árið 1938 og síðar Samvinnuskóla-
prófi árið 1941. Hún hóf störf á Amtsbókasafninu árið 1971, í
hlutastarfi hin fyrstu ár en síðar í fullri vinnu þar til hún lét af
störfum fyrir aldurs sakir um áramótin 1991-1992. Hólmfríður
lést 11. október 2008.
Næst í röðinni var Petrína Soff ía Þórarinsdóttir Eldjárn. Hún
fæddist á Tjörn í Svarfaðardal 17. febrúar árið 1922. Hafi Hólm-
fríður verið Þingeyingur var Petrína Svarfdælingur alla tíð, þó
svo að hún hafi búið á Akureyri mestan hluta ævi sinnar. Hún
var alin upp á menningarheimilinu Tjörn og stundaði síðar
nám við gagnfræðadeild MA og Kvennaskólann á Laugalandi
í Eyjafi rði. Árið 1945 giftist Petrína Stefáni Árnasyni og stofn-
aði með honum heimili á Akureyri. Hún kom til starfa á Amts-
bókasafninu árið 1975 og starfaði þar uns hún fór á eftirlaun í
árslok 1992. Petrína lést 19. júlí 2003.
Yngstur þeirra þriggja var svo Hörður Jóhannsson. Hann
var fæddur á Syðra-Laugalandi í Eyjafi rði 13. apríl 1929. Hann
ólst upp í foreldrahúsum og stundaði bústörf á Garðsá til árs-
ins 1966 er hann fl utti til Akureyrar, að undanteknu námsári
við Íþróttaskólann í Haukadal 1954-1955. Árið 1965 kvæntist
hann Sigríði Margréti Hreiðarsdóttur. Árið 1968 réðst hann til
starfa við Amtsbókasafnið á Akureyri og starfaði þar til ársins
1996, fyrst sem almennur bókavörður en sem deildarstjóri
útlánadeildar frá 1971. Hörður lést 22. janúar 2010.
Ásamt Guðrúnu Bjarnadóttur voru þessi þrjú framvarðar-
sveit og fótgönguliðar útlánadeildar Amtsbókasafnsins um
árabil. Þau voru á margan hátt ólík og í því lá styrkur þeirra.
Hólmfríður var örgeðja og eldhugi. Hún tók þátt í félags-
málum, bæði í Kvenfélaginu Hlíf og ekki síður í stjórnmálabar-
áttu Kvennalistans. Það sópaði að henni þar sem hún lét til sín
taka og það átti við um neðri hæðina á Amtsbókasafninu sem
og aðra velli sem hún haslaði sér.
Petrína fór sér hægar. Hún var ábyrgðin og traustið holdi
klætt. Áhugamanneskja um listir og menningu og velferð
og vellíðan starfsmanna og gesta. Hún var söngvin og eyddi
tómstundum sínum í söng með Kór Akureyrarkirkju, Söng-
félaginu Gígjunni og efl aust fl eirum.
Hörður var síðan fremstur meðal jafningja, deildarstjóri
útlánadeildarinnar. Hans áhugamál voru bækurnar. Þær áttu
hug hans allan. Hann þekkti þær allar og hafði lesið þær fl est-
ar. Allavega þær sem fj ölluðu um sögu og þjóðlegan fróðleik.
Helst að hann hefði horn í síðu matreiðslubóka. Hann var
natinn að gera við og laga löskuð eintök og ljósritunarvélin
fannst honum þörf uppfi nning, því þá mátti bæta bilaðar
bækur með ljósritum og til að gera síðurnar blakkar notaði
hann ýmis brögð. Á yngri árum var hann liðtækur frjáls-
íþróttamaður og enn fór hann milli hæða á safninu í þrístökki
án atrennu, eða kannski fi mm skrefum, allavega ekki fl eiri en
sex.
Á þessum árum var þröngt um ýmsa starfsemi á Amts-
bókasafninu. Þannig var kaffi stofa starfsmanna allt í senn:
vinnuherbergi, fl okkunarborð og starfsmannarými. Ævinlega
var heitt á könnunni og svo var sérstakur kaffi tími klukkan
fj ögur. Hörður drakk reyndar te og hafði hunang útí sem var
keypt í lítravís í kaupfélagsbúðinni í Brekkugötu 1. Þá voru
engar takmarkanir á reykingum innandyra og var því stund-
um ansi lágskýjað í kaffi stofunni eða vinnuherberginu.
Herði, Fríðu og Petrínu fylgdu oft gestir í kaffi . Fríða kom
með sitt fólk, sem gátu verið Þingeyingar í kaupstað, brott-
fl uttir Þingeyingar, Kvennalistakonur og aðrir vinir og vanda-
menn. Til Petrínu kom fj ölskylda hennar úr Svarfaðardalnum
og að sunnan og Hörður kom með Steindór frá Hlöðum og
Minning
Minning þriggja bókavarða
Hólmfríður Jónsdóttir 1921-2008
Petrína Soff ía Þórarinsdóttir Eldjárn 1922-2003
Hörður Jóhannsson 1929-2010