Reykjalundur - 01.10.1979, Síða 11

Reykjalundur - 01.10.1979, Síða 11
2) Langvarandi og rólega upphitun (10—15 mínútur). Þetta er bráðnauðsynlegt fyrir fólk með áreynsluastma, til þess að forðast að fá þyngsli. Það er t. d. mjög óheppilegt að byrja með hlaupum. Slíkt mun í flestum tilvikum koma af stað hindrun. Það getur oft verið heppilegt að leggja fyrir verkefni, þar sem börnin geta sjálf ákveðið áreynsluna. Á þann hátt munu þau smárn saman læra sín eigin takmörk og vita, hve mikið álag þau þola í upphituninni. Það er einnig rétt að beita ,sprett‘þjálfun við upphitunina. 3) Þjálfun í stuttum ,sprettum‘. Það er al- mennt viðurkennt, að „sprett'Jjjáliun er sér- lega hagkvæm til uppbyggingar. Þetta þýðir að léttari og þyngri athafnir eru látnar skipt- ast á en ekki stöðugt tilbúin hlé á þjálfunar- tímanum. Einnig má nota starfsemi með eðli- legum hléum, eins og boltaleiki eða boðhlaup. Sund er mjög góð hreyfing, sem hæfir næstum öllum börnum með astma. 4) Þjállun með álagi undir hámarki. Með þessu er átt við, að við sækjumst eftir púls- tíðni ca. 160—170 meðan á þjálfuninni stend- ur, dálítið hærri fyrir yngstu börnin. Aukist álagið fram yfir þetta, aukast líkurnar á áreynsluastma verulega. Börnum á að líða vel, þjálfun barna er leik- ur, og þetta verður alltaf að liafa í huga og stefna að. Venjtdega er orðið þjálfun tengt þrældómsáreynslu og keppnisstarfi. Okkar verkefni verður að leiðrétta þessa hugmynd og stefna að því, að LEIKURINN verði viður- kenndur sem þjálfunaraðferð fyrir astmasjúka. Þetta kann að vera sérstaklega nauðsynlegt með astmabörn, sem áður hafa hlotið nei- kvæða reynslu af líkamlegri áreynslu. Einnig reynum við að útiloka keppnisárangur, án þess þó að útiloka allar kröfur. T. d. er það forsenda fyrir að hafa sem mest gaman af að vera á skíðum, að læra tæknina fyrst. VOKSENTOPPEN ALLERGI-INSTITUTT Aðalverkefni Voksentoppen er að stunda læknisfræðilegt starf innan sérsviðsins: ofnæm- issjúkdómar hjá börnum, með aðaláherzlu á astmasjúkdómum. Sjúkrahúsið liefir rýrni fyrir 24 börn á aldrinum 1 — 15 ára. Að auki er fjöldi barna tekinn til meðferðar á göngu- deild, og daglega koma 12 börn og unglingar með astma til Voksentoppen-skóla, sem auka- nemendur eða dagsjúklingar. Stofnunin starf- ar einnig sem miðstöð fyrir allergologiska kennslu og rannsóknir, og til menntunar sér- þjálfaðs fólks á þessum sviðum. Frum-sjúkdómsgreiningin og mat á oliiæni- isviðbrögðum og astmasjúkdómum hjá sjúkl- ingunum, verður að framkvæmast af almenn- um læknum (primærlæger), sem einnig verða að taka á sig alla ábyrgð á allt að 80% allra sjúklinga í þessuni flokki. Þeir sjúklingar, sem þarfnast sérhæfðari hjálpar, verða að fara til sérfræðinga á viðkomandi sviðuni — lungna- sérfræðinga, háls- nef- og eyrna sérfræðinga, barnalækna o. s. frv. Þeim, sem þarfnast enn séríræðilegri aðstoðar, verður að vísa til of- næmisfræðinga á héraðsstöðvum. Þar verður síðan að velja þá, sem þarfnast enn frekari sérfræðiaðstoðar. Fyrir barnaastma er vitan- lega samvinna á hverju ,síu‘stigi og á milli ,síu‘stiganna sjálfra. Á Voksentoppen tökum við á móti börnum úr öllu landinu eftir slíku ,síu‘kerfi — en því miður er stöðugt alltol' langur biðlisti, þann- ig að sumir verða að bíða all lengi eftir að geta notað möguleikana á frekari rannsókn- um og meðferð. Til þess höfum við yfir að ráða sérhæfðu liði, sem í eru auk lækna og hjúkrunarliðs, sérhæft rannsóknarstofulið, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar og félagsfræðing- ur. Að auki höfum við bæði forskóla og skóla sem eðljlega samstarfsaðila og til aðstoðar við sjúkdómsgreiningu og meðferð. Fyrsta dvöl á Voksentoppen stendur venju- lega í 4—6 vikur. Tilgangurinn með dvölinni kkykjalundur 9

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.