Reykjalundur - 01.10.1979, Page 29

Reykjalundur - 01.10.1979, Page 29
framleiðslu á samkeppnishæfum vörum íneð þeim vinnukrafti, sem á verkstæðum Reykja- lundar situr. Viljann og áhugann vantar ekki, en vinnugetan er skert. Ennfremur má það vera ljóst, að ef Reykjalundur nær því mark- rniði að vera virk endurhæfingarstofnun verð- ur dvalartími vistfólks hér stuttur og fer það saman, að þegar vinnuhæfni næst er komið að útskrift sjtiklings. 50—60 vistmenn eru dag- lega við störf í plastverksmiðjunni, einkum í steypu- og samsetningardeild. Vinnutími er ákvarðaður af læknum í samráði við verkstjóra frá 2—6 klst. á dag. Vinnulaun vistfólks eru u. Jr. 1). 60% af launataxta í iðnaði en launa- tengd gjöld lúta eðlilega öðrum lögmálum en ella gilda í atvinnulífinu. Framleiðsluvör- ur Jjeirrar deildar er öryrkjar starfa í, eru fjöl- breyttar s. s. umbúðafötur og dósir, búsáhöld, lyfjaumbúðir, herðatré, sauðfjármerki, raf- tengi og margt fleira. Framleiðsla plaströra og plastfilmu til pokagerðar er í sérstöku hús- næði á svæðinu og starfa nú orðið einkum fastráðnir starfsmenn í Jressari verksmiðju en fáir vistmenn, enda eru skilyrði hér óhentug fólki með skerta vinnugetu. Plaströra- og filmuframleiðslan er kannske Jjað, sem mest lætur yfir sér og örastri þróun hefur tekið, en Jjað er orðið hlutverk Jressarar framleiðslu að mynda fjárhagslegan bakhjarl við öryrkja- vinnu hér á staðnum og vil ég ftillyrða að engri slíkri starfsemi yrði haldið hér uppi án slíks stuðnings. Fastráðnir starfsmenn framleiðslti- og sölu- deilda eru nú 25 etl auk Jjess starfa á tré- smíðaverkstæði 5—6 manns við byggingafram- kvæmdir, viðhald og nýsmíði. Framleiðslu- vörur Reykjalundar eru landsjjekktar og skert vinnugeta þeirra sem að framleiðslunni standa kemur aldrei niður á gæðum vörunnar, fyrr verður dregið í land en gefið eftir á Jjcssu sviði. Auk þeirra vistmanna er starfa að fram- leiðslunni vinna allmargir á saumastofu, Jjvottahúsi, skrifstofu og við ýmis störf á heimilinu. í árslok 1978 voru 56 vistmenn við störf en 127 manns höfðu á árinu notið vinnulegrar endurhæfingar eða verið í vernd- aðri vinnu. VI NIÐURLAG Hér lief ég reynt að varpa nokkru ljósi á Jjað sem hér hefur gerzt og er að gerast, en lítið látið ujjjjí um framtíðaráform enda ekki mitt að marka stefnuna heldur aðeins fylgja henni. Við heimamenn liöfum okkar skoðanir og eigum okkar óskir um framvindu mála og hljótum að halda Jjeim á lofti. Eitt brýnasta verkefnið að okkar mati er bygging nýrrar sjúkraþjálfunardeildar. SjúkraJjjálfun fer nú fram í kjallara aðalhússins í þröngum, gluggalausum og óhentugum salarkynnum. Á árinti 1978 konui Jjar alls 531 sjúklingur til meðferðar og voru nteðferðir alls 16.436. Á endurhæfingarstofnun hlýtur góð og virk sjúkraþjálfun að vera eitt aðalverkefnið, og enda Jjótt deildin okkar hafi verið sú bezta á árum áður, stöndum við nú orðið langt að baki. Hér eru uppi áform um að auka við endurhæfingarþjónustuna með Jjví að taka upp heilsusport, en notkun íþrótta í Jjessu skyni hefur verið að ryðja sér til rúms í ná- grannalöndum okkar, einkum í Noregi. Vísir að slíkri starfsemi hefur verið hér á Reykja- lundi í formi hestamennsku undanfarin sum- ur og Jjykir hafa gefizt vel. Starfsmenn Reykjalundar hafa kynnt sér Jjessa starfsemi í Noregi og íslenzkur læknir, er starfað hefur á slíkri stofnun er væntanleg- ur til starfa hér á næstunni. Ég læt öðrum eftir að skilgreina nánar inntak og eðli heilsu- sports enda því aðeins minnzt á Jjetta hér til að sýna fram á að þróunin verðtir ekki stöðv- uð og Reykjalundur verður að fylgjast með öllum Jjeim nýjungum er að notum mega koma. Þannig og aðeins Jjannig kemur stofn- unin skjólstæðingum sínum að gagni. Reykjalundi,14.08.1979. REYKJALUNDUR 27

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.