Reykjalundur - 01.10.1979, Síða 32

Reykjalundur - 01.10.1979, Síða 32
tryggjii að skjólstæðingarnir ættu vísa atvinnu og þar með traustan fjárhagsgrundvöll. Með SIBS fékk hann einnig rniklu áorkað um hús- næðisútvegun til öryrkja sem bjuggu í lélegu luisnæði. Frá hendi Odds var þannig ekki ein- ungis um venjulega læknismeðferð að ræða fyrir skjólstæðinga lians, heldur réðu þau sjón- armið að lækning er til lítils ef lienni fylgir ekki félagslegt sjálfstæði. Að sjálfsögðu urðu ýmsar breytingar á starfsháttum Reykjalundar á þessu 27 ára tímabili. Á þessum árum var líka unninn mikill sigur á berklaveikinni í landinu, svo mikill að berklasjúklingar þurftu ekki lengur á að halda öllu rými Reykjalundar þegar komið var fram á árið 1958. Reykjalundur var þá opnaður fyrir öðrum sjúklingum í þörf fyrir læknisfræðilega, félagslega og atvinnu- lega endurhæfingu, og var það gert að fyrir- lagi Odds og annarra stjórnenda þar. Á þessum árum var Oddur tíðum staðgöngu- maður héraðslæknisins í Álafosslæknishéraði. Búseta Iians í Mosfellshreppi og afskipti af opinberum málum þar gerði það að verkum að hann var kosinn fulltrúi hreppsins í sýslu- nefnd 1953 og hefur verið það síðan. 1 gegnum störfin í stjórn SÍBS hefur Oddur haft afskipti af fjölmörgum málum sambands- ins. Má þar nefna starfsemi Múlalundar, vinnustofu SÍBS í Reykjavík. Árið 1959 var hann fulltrúi SÍBS í samstarfsnefnd öryrkja- félaganna á íslandi, sem lagði grunninn að stofnun Öryrkjabandalags íslands 1961. Hann var fyrsti formaður þess og var það allt til 19G7. Öryrkjabandalagið hefur staðið fyrir byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir öryrkja síðan 1966 og rekur nú þrjú íbúðarháhýsi í Reykja- vík og eitt í Kópavogi. Húseignirnar mynda sjálfseignarstofnun og hefur Oddur verið for- maður hússtjórnar frá upphafi og driffjöður byggingarstarfsins. Oddur var í stjórn Rauða Kross íslands á sjötta áratugnum og um tíma formaður fram- kvæmdanefndar hans. Hann hefur setið í mörgum nefndum stjórnvalda til að sinna ýms- um málefnum öryrkja, m. a. um 15 ára skeið í nefnd sem úthlutar fötluðum eftirgjöf að- flutningsgjalda af bifreiðum og var formaður hennar í 9 ár. Hann helur verið í stjórn læknahússins Domus Medica frá 1967, í stjórn DNTC (norræna berklasambandsins) nærfellt frá stofnun þess 1948, í stjórn NFR (norræna endurhæfingarsambandsins) síðan 1962 og þannig mætti lengi rekja trúnaðarstörf hans. Á árunum 1967—1969 beitti Oddur sér mjög fyrir samningu laga um endurhæfingu sem voru samjjykkt á Aljsingi 1970. Hann var for- maður endurhæfingarráðs 1970—1974, skipað samkvæmt jjeim lögum. Þegar Oddur hafði látið af störfum yfir- læknis að Reykjalundi féllst hann á að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- neskjördæmi 1971. Hann naut góðs fylgis í prófkjörinu, tók sæti á lista flokksins í kjör- dæminu við kosningarnar 1971 og hefur setið á Aljiingi síðan haustið 1971. Þingstörfum hans verða ekki gerð skil hér en ætla má að fáir þingmenn liafi fyrr eða síðar haft að baki jafnmikla reynslu og hann í heilbrigðis- og félagsmálum. Ýmis virðingarvottur hefur Ocldi verið sýnd- ur á liðnum árum og að verðleikum. Þar eð undirritaður veit fullvel að honum er síst að skapi að slíkt væri tíundað á sjötugsafmælinu verður jjað ekki gert hér, með jjeirri undan- tekningu jjó, að láta jjess getið að I.æknafélag Islands gerði hann að heiðursfélaga sem í því félagi er fremur lagætur virðingarvottur. Oddi, Ragnheiði, börnum þeirra sex og tengdabörnum eru lærðar árnaðaróskir frá Reykjalundi, jafnt starfsfólki sem vistfólki. Haukur Þórðarson (Endurpr. úr Morgunbl. 1979.) 30 RF.VKJALUNIHIR

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.