Reykjalundur - 01.10.1979, Side 38

Reykjalundur - 01.10.1979, Side 38
dóttir, systir Jóhannesar Kjarval og þeirra bræðra, og Þórðnr Magnússon frá Fágradal í Mýrdal. Hann út- skrifaðist úr Verslunarskóla íslands vorið 1921 og stund- aði verslunarstörf hjá nokkr- um þekktum fyrirtækjum í Reykjavík, síðast hjá Lýsi hf., og hér á Reykjalundi vann hann á skrifstofunni, þegar heilsa hans leyfði. Voru störf hans öll innt af hendi með nákvæmni og af þeirri snyrtimennsku, sem einkenndi Ólaf í hvívetna. í lrrjósti Ólafs mun hafa búið ntikil listhneigð svo sem ætt hans kann að benda til. Dró hann gjarnan rissmynd- ir á paþpírinn, sem lá á borð- inu fyrir framan hann og eitt sinn gerði liann mynd, sem Lýsi hf. lét prenta og sendi viðskiptavinum sínum með jólakveðju. Nefndi Ól- afur mynd þessa „Gamli maðurinn og hafið“. Ólafur var kvæntur Guð- rúnu Jónsdóttur Straum- fjörð. Áttu þau einn son, Jón Þór, þann landskunna íþróttamann, en ltjá honum var hann skrifaður til heim- ilis síðustu árin. Þetta er síðbúin kveðja, en Ólafur Þórðarson er ekki gleymdur félögum og vinum að Reykjalundi. Hafi hann þökk fyrir samstarfið. Sjálfsvörn, Reykjalundi. HALLDÓR ÞÓRHALLSSON Enn kveðjum við einn okkar ágætustu vina og fé- laga, sem um langan tírna var einn af traustustu félög- um samtaka okkar. Halldór var um langt ára- bil í stjórn Berklavarnar í Reykjavík, og lengst af full- trúi síns félags á þingum sambandsins. Það, sem einkenndi Hall- dór framar öðru, var ljúf- mennska hans, glaðværð og leiftrandi skojtskyn, sem einna skýrast spegiaðist í tækifærisvísum hans, en þær voru margar og ávallt mark- vissar. Mörg þing sambandsins báru merki hagyrðinganna okkar, þeirra Egils Jónasson- ar á Húsavík, }óns Rafnsson- ar og Halldórs Þórhallsson- ar, sem allir lögðust á eitt nreð að létta erfið og hefð- bundin þingstörf með gam- anmálum sínum. Því miður hefir skemmti- fundum deilda SÍBS fækk- að verulega að vetri til. 1 hópi traustustu félaga á þeim fundum var Halldór, sem alltaf mætti með miklu liði, þar sem, auk fjölskyldu hans, kom tengdafólkið frá Eiði fylktu liði og Halldór þá gjarnan með harmónikk- una sína, til að spila undir dansi ef því var að skipta og á þurfti að halda. Halldór var einn þessara fágætu manna, sem knnnu að skemmta sér og þá einn- ig skemmta öðrum. Síðustu ár sín átti Halldór við Jrungbær veikindi að stríða, en aldrei breyttist ljúfmennska hans, og þakkir til Jieirra sem á einhvern hátt gátu létt honum hans erl'iða sjúkdóm. Hann var aldrei kröfumaðui', heldur maður ljúfmennsku og Jrakk- lætis. l'il síðustu stundar vildi Halldór fylgjast með mál- efnum SÍBS og Berklavarn- ar í Reykjavík, senr hann hafði tengst traustum lrönd- um, og borið rnjög fyrir brjósti alla tíð, eins og fram kom í öllum hans verkunr fyrir sanrtökin. Á fjársöfnunardegi SlBS, Berklavarnadeginum, var ávallt opið hús hjá Jreinr hjónum Halldóri og Þór- unni, Jrar sem þau sáu um sölu á merkjunr og blöðum 36 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.