Reykjalundur - 01.10.1979, Side 47
1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 12 þjálfunar-
6, 7, 8, 11, 2 það, sem þú hugsar með. 11, 10, 9
trjágreinar. 7, 3, 4, 12 efsti hluti andlitsins.
Það var reikningstími hjá þeim yngstu.
„Pétur,“ sagði kennslukonan. „Geturðu
sagt mér, hvað 2 og 4 eru?“
Pétur svarar ekki, en virðist hugsa mjög
djúpt.
„Jæja, Pétur,“ segir kennslukonan, dálítið
óþolinmóð. „Þú veizt líklega, að 2 og 4 eru 6.“
Pétur hugsar sig um, en segir svo: „1 gær
sagðirðu að 3 og 3 væru 6, og í dag segirðu
að 2 og 4 séu 6. Ég veit ekki, hverju ég á að
trúa.“
Bóndi nokkur, sem ekki var að hlífa krökk-
unum sínum, var að höggva skóg með yngsta
syninum, sem var óvanur slíku. Þá tókst svo
illa til, að drengur hjó flugbeiltri öxinni í
fótinn á sér. „Pabbi! Ég hjó mig í fótinn!“
æpti hann. Faðirinn kom og leit á og sagði:
„Nei, strákur, lijóstu líka í sundur skóinn."
Það var sögutími í skólanum. Hans liafði
skrópað í nokkra daga og var smeykur urn
að vera spurður út úr. Kennarinn, sem var
að skoða nafnaskrána, sagði allt í einu: „Þú
hefir verið lengi í burtu, Hans.“
„Já, alveg frá Örlygsstaðabardaga,“ sagði
Hans.
Tvær borgarstúlkur fóru upp í sveit í Nor-
egi. Húsrými var fremur lítið á bænurn, svo
að þær voru látnar sofa í herbergi lijá gömlu
bóndakonunni.
Um kvöldið, þegar þær fóru að hátta,
klæddi önnur stúlkan sig úr hverri spjör og
teygði hendurnar út og upp í loftið. Garnla
konan horfði undrandi á þetta urn stund, en
spurði svo hina stúlkuna, hvað væri að henni.
„Það er leikfimi," sagði hin.
„Ó, veslingurinn, hefir hún liaft j^etta
lengi?“
Sama-stúlka kom til læknisins og kvartaði
um lasleika. Já, læknirinn sagðist þurfa að
athuga púlsinn. I sama bili var kallað á lækn-
inn úr næsta herbergi og hann fór þangað inn.
Þegar hann kom aftur, kom Sama-stúlkan
framundan lilífðartjaldi, allsnakin. Læknirinn
spurði, hvað það ætti að þýða. „Nú, ekki veit
ég, hvar þessi púls er,“ svaraði stúlkan.
ELDSPÝTNAÞRAUTIR
□
Hér eru tveir ferningar. Færðu nú 8 eldspýtur
svo út konii 5 ferningar.
I
U U
Hér eru 5 ferningar. Færðu nú 3 spýtur, svo
út komi 7 ferningar.
Geturðu tekið helminginn af 12, svo að eftir
verði 7? Svör á bls. 38.
GÁTUR
1. Hvað er inni í miðri Reykjavík?
2. Hversu langt kemst björninn inn í skóginn?
3. Hvers konar hár hafði Adam?
4. Óli, Pési og Siggi fóru saman að fiska. Þeg-
ar þeir hættu, höfðu þeir veitt samtals 24 fiska.
Þá sagði Óli: „Siggi, ef þú gefur mér þrjá
fiska og Pésa einn, þá eigurn við allir jafn
marga.“ Hvað veiddu þeir mikið hver um sig?
Svör á bls. 38.
Reykjalundur
45