Húnavaka - 01.05.1965, Síða 32
ÞORSTEINN MATTHÍASSON:
— Svo mælist Vigclísi —
Þau húa á jarðhæð í litlu lu'isi vestan árinnar á IJlönduósi, hún
Vigdís Björnsdóttir og hann Eiríkur Halldórsson. F.kki eru þess
ófá dæmi að Blanda haíi dunið fast við dyr þeirra og jafnvel gaegzt
inn, þegar mildur þeyr sunnan um heiðar hefur gefið henni mátt
til að brjóta af sér klakaböndin. Þessum miður notalegu heimsókn-
um hafa þau tekið með jafnaðargeði eins og flestu því öðru sem
þeim hefur mætt á leiðinni gegnum árin.
Þau ár, sem ég er búinn að dvelja á Blönduósi, hef ég átt marga
ánægjustund á hlýlega heimilinu þeirra. Þar hefur oftast verið minn
áningarstaður hafi ég átt leið vestur um ána.
Þá hefur hún Vigdís stundum reynzt mér betri en engin í sam-
bandi við skólastarfið hér. Til hennar er mér því orðið tamt að
leita, þegar styðja þarf nemanda umfram það, sem skólinn getur
í té látið. Þetta samstarf okkar hefur frá fyrstu tíð verið ánægjulegt
og árekstralaust og væntanlega komið ýmsum að góðu.
Vigdís er fædd 21. ágúst 1896 að Skárastöðum í Miðfirði. Faðir
hennar var Björn Eysteinsson, er lengst af bjó í Grímstungu í Vatns-
dal og andaðist Jrar háaldraður maður. Móðir hennar var Helga
Sigurgeirsdóttir frá Stóruvöllum í Bárðardal, fædd í Svartárkoti.
Eiríkur er fæddur að Kárahlíð á Laxárdal í Austur-Húnavatns-
sýslu, 29. febrúar 1892. Þá var þar blómleg byggð, enda sveitin
grösug og sumarfríð, Jrótt vetrarríki væri mikið. I harðindaárum
munu þó sumarhret og vorkuldar hafa leikið bændur þar verst, og
minnist Eiríkur þess, að eitt sumar kom slík hríð á túnaslætti, að
ekki varð borinn ljár í gxas á Laxárdal í vikutíma, sökum fanna.