Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Side 38

Húnavaka - 01.05.1965, Side 38
að verða sífellt í'yrir átroðningi bæði af mér og öðrum og beiðni um að grípa inn í kennslustarf- ið? — Ég er orðin svo tengd kennslustarfinu, að mér mundi finnast tómlegt, ef ég hætti með- an heilsa mín er þó ekki orðin lakari. Mér finnst samfélagið við börnin vera svo mikils virði. Þó er mjög erfitt að fást við þau börn sem ekki vilja læra, en á því ber mun meira nú en áður. Flest börn eru líkamlega betur þroskuð miðað við aldur en var fyrir 30 árum og hafa alla að- búð, er að því stuðlar betri, en námslöngun þeirra er minni. Þeir foreldrar, sem börn eiga hjá mér nú, hafa áhuga fyrir lramgangi barna sinna, og störfum mínum í sambandi við skólann reyni ég að haga sem mest til sam- ræmis við það, er þar fer fram. Nú eru líka fyrir hendi ýms hjálp- argögn við kennsluna, er áður voru óþekkt. Sem betur fer, sér maður nú ekki barn illa til fara vegna fátækt- ar, en hún var fylgifiskur margra á fyrstu starfsárum mínum. Þó var hvergi skortur þar sem ég kenndi, en alls staðar gætt fyllstu spar- semi. Börnin voru oft illa á vegi stödd með nám þegar þau komti til skólans, en á því finnst mér ekki hafa orðið umbætur frá heimil- anna hálfu, en á því er skilsmunur hér á Blönduósi, að börnin koma það ung, að ekki er hægt að búast við miklu námi fyrr en til skól- ans kemur. Þegar ég hætti störfum sem fastur kennari voru liðin 35 ár frá því ég hóf starf mitt. Síðan eru 11 ár, svo segja má, að ég hafi verið tengd þessum þætti þjóðlífsins í rúmlega hálfan fimmta áratug, og aldrei hefur það hvarflað að mér að iðrast eftir að hafa stigið spor- in í þessa átt þegar ég sem ung stúlka stóð á mótum manndómsára. Vigdis Björnsdóttir i Kennnrn- skólanum.

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.