Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Side 40

Húnavaka - 01.05.1965, Side 40
SÉRA PÉTUR INGJALDSSON: Puríáur Jakobsclóttir Lange Árið 1955 var haldið hátíðlegt 75 ára afmæli Kvennaskólans á Blönduósi, var þar margt nemenda eldri og yngri, er rifjuðu þar upp gömul kynni, og sýndu skólanum mikla ræktarsemi. í þessum margmenna hópi leit ég virðulega mjög aldurhnigna konu. Það voru líka 70 ár liðin síðan hún útskrifaðist frá Kvennaskólanum á Vtri-Ey og 60 ár síðan hún hafði verið kennslukona þar. Þessi kona var Þuríður Jakobsdóttir Lange, er var hin ernasta og var um leið að vitja síns föðurtúns út á Strönd. Þuríður var fædd 1. des. 1872 á Árbakka á Skagaströnd. Þá mátti segja að sama frændliðið sæti allar beztu jarðirnar í grennd við hinn forna verzlunarstað, Höfðakaupstað, því þrír bræður, synir Jósefs á Spákonufelli, voru kvæntir þrem systrum, dætrum Jóns í Háagerði. Jens á Spákonufelli átti Steinunni, Jóhann á Finnsstöð- um átti Ástríði og Jakob á Árbakka átti Björgu. Þeirra einkadóttir var Þuríður fyrrnefnd. Enn voru fleiri Háagerðissystkinin, Björg móðir Halldóru Bjarna- dóttur kennara og ráðunauts og Björn síðar bóndi á Veðramóti í Skagafirði. Allt var þetta dugandi fólk og hefur orðið kynsælt. Það hefur komizt vel áfram í lífinu, verið námfúst, búhneigt og vel metið. Þuríður Jakobsdóttir átti því til góðra að telja og hlaut hið bezta uppeldi. Foreldrar hennar voru vel stæð. Jakob faðir hennar var í

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.