Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Side 42

Húnavaka - 01.05.1965, Side 42
10 HÚNAVAKA um með danskar bækur, en einnig íslenzkar, og betri bændur í grenndinni verið þátttakendur. í hópi slíkra var Jakob á Árbakka. Þetta var eigi lítil tilbreyting og gagnsemi fróðleiksfúsum ungling- um. Svo fór Þuríði. Hún mundi jafnan sína heimahaga, Eyjarskól- ann og annað er mótað hafði æsku hennar. Þar á meðal bókasafnið er hún naut í æsku norður á Skagaströnd. Því var það vilji hennar, að mikill hluti bóka þeirra hjóna félli í hlut Lestrarfélags í Höfða- kaupstað. Með þessu vildi hin látna heiðurskona minnast æskudaga sinna fyrir 70—80 árum. Nú hefur dóttir hennar, frú Thyra Loftsson, sent til Höfðakaup- staðar mikla ltókagjöf og eru allar bækurnar merktar „Dánargjöf Þuríðar Jakobsdóttur Lange“. Eru bækurnar flestar í bandi, allar vel með farnar og flestar sem nýjar væru. Er þar margt góðra bóka, sem nú eru orðnar torfengnar og einnig hinar beztu bækur frá síð- ari árum. Þá eru þar danskar bækur, skáldverk öndvegis höfunda. Safn Jretta er á fjórða hundrað bindi og telst mikill fengur þessu safni þorpsins, sent nú býr við þröngan húsakost. En til bóta stend- ur með hagi þess er Félagsheimilinu verður lokið.

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.