Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Page 44

Húnavaka - 01.05.1965, Page 44
42 HÚNAVAKA í húsi þessu eru einnig ýmsar aðrar smíðavélar. En Karl hefur eigi verið einn um hituna við smíðarnar hin síðari ár, því sonur hans Finnur, er frá barnsaldri hefur vanizt smíðum, er mikill hag- leiksmaður. Hann er nú 27 ára að aldri og hefur eigi l'arið að heiman til véla- né smíðanáms utan á 4 daga námskeið í Reykjavík, er haldið var á vegum Deutz dráttarvéla umboðsins. Finnur Karls- son er maður hagur og hugvitssamur eins og hann á kyn til. Það bar til haustið 1959, að hann var við byggingu geymsluskála að Tjörn á Skaga, er gjörður var úr steinsteypu. \?ar þar notuð af- kastamikil lirærivél, er fengin var að láni úr Höfðakaupstað. Þótti Finni sem þessi aðferð væri léttari og fljótvirkari en hin gamla að- lerð að hræra á bretti eða í tunnu. Hann var sá er tók á móti tunn- unni er flutti hræruna í mótin. Fékk hann því góða yfirsjón yfir þessa steypuvél, og þar eð nú stóð til að byggja úr steini 400 kinda hús ásamt hlöðu í Víkum, fékk hann þá hugmynd að gagnlegt væri að smíða slíka vél hr í 'a heimili sínu. Minnist hann þá þess, að á Mallandi á Skaga va ýzkt tundurdufl, er hafði verið segulmagn- að en var fyrir löngu gert óvirkt. Duflið var úr stáli, er þótti mun betra en í hinum ensku duflum. Fékk hann nú duflið og skyldi Jrað vera hræritunna steypuvélarinnar, en dráttarvél aflgjafi. Þá lékk hann frá Höfðakaupstað uppgjafa færiband og tilheyrandi tann- hjól. Færibandið festi hann utan á belg duflsins, hræritunnuna, og annað tannhjólið var notað sem drifhjól, er var fest við tannhjóla- kassa úr sláttuvél og hann tengdur við dráttarvél með drifskafti úr gömlum bíl. Hitt tam ijiilið var til þess notað að knýja vindu er lyfti elnisskúffunni, er hellir efninu í vélina, einnig vindu, sem lyftir steyputunnunni, lin hellir hrærunni. Vindurnar voru að i smíðaðar úr hestsláttuvélum, allt Jretta tók tíma, því renna 15 stykki. En fyrir rennibekk notaði Finnur gamla hestslát knúin var af dráttarvél. Þá hafði Finn- ur logsuðu við smíðar: . n Jrað var eigi fyrr en síðar að hann kom sér upp rafsuðu. Þaó eina sem keypt var til vélarinnar tilbúið, var hjöruliður með tilheyrandi grópum eða kílum, sem gengu upp í drifið á dráttarvélinni og auk þess spilvír úr stáli. Kostaði þetta tvennt kr. 500.00. Hrærivélin hrærir úr einum sementspoka í einu ásamt tilheyr- andi sandi og möl. Finnur hóf smíðarnar um miðjan júní 1960 og hafði lokið verkinu í október sama ár. Var nú tekið til að nota vél-

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.