Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Síða 53

Húnavaka - 01.05.1965, Síða 53
TIÚN AVAKA fiskur hefði verið dreginn úr sjó. Varð þar 10 daga dvöl, meðan gert var að reiða skipsins. Dýrafjörður er snotur fjörður, en þar er sannarlega ekki búsæld- arlegt. Snarbrattar fjallshlíðar, gróðurlausar að kalla, en undirlendi næstum ekkert. Við skipsmennirnir ráfuðum um kauptúnið, en kynntumst fáum. Þó var þar einn maður, sem varð brátt kunningi okkar. Það var gamall skipstjóri, sem tók að sér að gera við reiða skipsins, sem bilað hafði. Karl sá var viðræðugóður og talaði vest- firzku. Þá sá ég og heyrði, hvaðan mundi ættaður húsgangurinn, sem ég hafði lært: „Nordan hardan gerdi gard“ o. s. frv. Þarna var að finna þann framburð, afsláttarlausan með öl 1 n. Eitt sinn varð gamla manninum litið upp úr vinnu sinni og þá heyrðum við hann segja: „Þarna kemur þá báturinn handan yfir fjörduna." Hef ég í það eina sinn vitað orðið „fjörður“ haft í kvenkyni. Fleira var það, sem okkur fannst harla einkennilegt í málfari vin- ar okkar, viðgerðamannsins. Hann minntist á vorverkin, sem fram- undan væru. Sagði hann að er sauðburði væri lokið, kæmi fljótlega að því að rýja trosið og reka það á fjall. Orðið ,,tros“ þekktum við sem nafn á úrgangsfiski, sem ekki var tekinn til verkunar sem út- flutningsfiskur. En nafnið ,,tros“ á geldfé, var alveg nýtt fyrir okk- ur, skipsmönnunum á Hvanney, og mun, að ég hygg, tæpast þekkj- ast utan Vestfjarða. Frá Dýrafirði fórum við á mánudegi í dymbilviku og fengum aft- ur versta veður í 3 sólarhringa. Var ég þá illa haldinn af sjóveiki, en einn félagi minn, landkrabbi eins og ég, var þeim mun verr haldinn, að setja varð hann af fyrir fullt og allt eftir þá dýfu. Var aðeins hægt einu sinni að renna færi í sjó þessa þrjá daga. Gerði það bezti dráttarmaður áhafnarinnar, þaulreyndur skútumaður. Eftirtekjan var aðeins 2 eða 3 fiskar, sem var skipt bróðurlega milli skipsmanna. Var það í fyrsta skipti á ævinni, sem ég bragðaði ný- dreginn fisk úr sjó og man enn, hvílíkt hnossgæti sá biti var. A skírdag var loks hleypt undan veðrinu inn á Grundarfjörð á norðanverðu Snæfellsnesi. Var þá norð-vestan hríð með miklu frosti. Var ætlunin að leggja skipinu innst á firðinum. Var þá gefin skipun um að fella seglin en aðrir skyldu vera tilbúnir að láta akkeri falla, er merki væri gefið. Vegna frostsins voru falir allir svo frosn- ir, að erfiðlega gekk að ná seglunum niður, þó að keppzt væri við eftir mætti. Og áður en því var að fullu lokið, var gefið merki um 4*
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Húnavaka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.