Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Síða 65

Húnavaka - 01.05.1965, Síða 65
HÍJN AVAK A Frúin hafði farið úr sambandi eitt augnablik, en þegar hún komst í samband aftur, fór allt á fleygiferð. Nú var þörf á skjótum aðgerð- um. Það mátti enginn vita, að. . . . Nei, það mátti enginn vita. Hún heyrði að lögregluþjónninn spurði um ökuskírteinið. Adda Geirs setti upp sitt blíðasta bros. Rödd hennar var stillt og fáguð. „Þér sjáið, herra lögregluþjónn, að hér er að myndast ægilegur umferðarhnútur, og nú er enginn tími til yfirheyrslu né skýrslu- gerðar, og þar sem að ég sé ráð til að leysa umferðarhnútinn á stundinni, þá bið ég yður að gjöra svo vel og loka hurðinni.“ Lög- regluþjónninn horfði undrandi á stúlkuna og sagði. ,,En ég verð að fá. . . .“ „Þér verðið að leysa hnútinn, og það á stundinni," greip Adda Geirs fram í. Það merkilega skeði, að lögregluþjónninn lok- aði hurðinni og hugsaði með sér, að bezt væri að sjá hvað hún gerði. En hann hafði varla snúið sér við, þegar litla Saab-bílnum var gef- ið ríflegt eldsneyti. Síðan krussaði hann á ljósasvæðinu, og þaut síð- an suður Lækjargötu. Það raknaði úr umferðarhnútnum, en lög- regluþjónninn stóð á gangstéttarhorninu og brosti. I raun og veru hafði hún ekkert gert af sér, hugsaði hann með sjálfum sér. Frúin var nú komin heim og búin að heilsa manni sínum á þann hátt, sem góðir eiginmenn einir skilja. Hún hafði skýrt honum frá viðskiptum sínum við lögregluþjóninn. En fulltrúinn hafði forboð- ið henni, á kurteisan hátt, að snerta bílinn fyrr en hún væri búin að taka próf. Hún hélt áfram að segja honum fréttir, og þar á meðal, að það ætti að halda Húnavökuna á Blönduósi í næstu viku. Hann spurði, hvort það væri ekki hundleiðinlegur staður þessi Blönduós, og hvort það væri nokkur leið að vera þar deginum leng- ur. Við þessar spurningar og athugasemdir, myndaðist Húnvetninga- bros á vörum fulltrúafrúarinnar. Hún þagði dálitla stund, en hóf síðan mál sitt. Það var í ræðuformi, en það er ekkert séreinkenni kvenna um Húnaþing. „Þetta er uppgangsstaður á öllum mögulegum sviðum. Þar eru allar mögulegar stéttir þjóðfélagsins, að undanteknum söðlasmiðum og skósmiðum, og ég held að þar séu engar snyrtistofur. Svo er þar lúxus hótel, sem er stífur keppinautur hótel Sögu. Að minnsta kosti hvað snertir starfsliðið. Ég veit ekki, hvort það hefur stór rúm fyrir forseta. En reyndar hefur Hótel Saga það ekki heldur. Svo er þar nýtt félagsheimili. Það er á heimsmælikvarða. Það má nú segja, að þetta sé fyrirmyndar „þjóðfélags-afkimi“.“ Frúin tók sér nú mál-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Húnavaka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.