Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Side 78

Húnavaka - 01.05.1965, Side 78
HÚNAVAKA 76 Börn kölluðu skelfd á föður og móður. Kona í ókunnu landi fleygði frá sér greiðunni og hrópaði á guð. En þá liond, sem lyft var til guðsins, greip óttinn og þrýsti að kiildum vörum sér. Fantastico. Og gyðja skelfinganna sveif hjá. Hús öldungsins felldi þi>k sín yfir kararmanninn og braut stökk bein hans. Blóð, féll úr loftinu, líkt og regn. Blóð fyllti brunna borgarinnar. Blóð streymdi úr vatnshönum og brunapóstum. Skelfingin vakti okkur al' drunga sektarinnar. Hún læddist upp úr kjallara hrunins húss. Hún skein út úr gasljósi götunnar. Hún sameinaðist stunum þungaðrar konu, sem hljóp villt út í veglausan sortann. Sortinn fylltist hljóðum------- í yfirgefnu húsi, einhversstaðar úti í áttleysunni lék hitinn út- fararsálm á hörpu, unz strengirnir brustu. Aíilli sárrar hlustar og skrælnaðs barka bárust kvalavein, sem týnt höfðu þögn sinni. Bergmál flóttans gaf hvítum veggjum titrandi raddbönd. Sortinn fylltist hljóðum, sem sögðu okkur að nú dansaði hel- sprengjan, og orka tortímingarinnar hefði brotizt út úr höfðum okkar. Þegar sárir fætur mínir báru mig á flótta, hljóp tortímingin á hæla mér. Hún greip fyrir kverkar mínar og fleygði mér á götuna. Hún tók mig og naut mín til fulls og hélt síðan áfram í leit sinni að þér. Og er helsprengjan lauk dauðadansinum hafði hún fundið þig og náð fullkomnun á brennheitri götunni.

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.