Húnavaka - 01.05.1965, Blaðsíða 84
82
HÚNAVAKA
Frá Sýslubókasafninu.
I safninu eru skráðar 3570
bækur, auk óbundinna bóka, sem
eru 150—200. Bækur á erlendum
málum eru 513. Á árinu 1964
bættust við 650 bindi í safnið,
þar af voru 262 bindi gefin safn-
inu í einu lagi af tveimur Hún-
vetningum í Reykjavík, sem ekki
vilja láta nafns síns getið.
A árinu 1964 fengu 1199 les-
endur lánuð 3399 bindi í safn-
inu. Mest lesnu íslenzku höfund-
arnir á árinu voru:
Ingibjörg Sigurðard. 35 bindi
Jónas Árnason 30 bindi
Vilbergur Júlíusson 27 bindi
Indriði G. Þorsteinsson 26 bindi
Hanna Kristjánsdóttir 25 bindi
Ármann Kr. Einarsson 24 bindi
Elinborg Lárusdóttir 22 bindi
Gunnar M. Magnúss. 20 bindi
Árni Jónsson frá Ak. 20 bindi
Gísli Ástþórsson 18bindi
Guðrún frá Lundi 17 bindi
Guðm. Daníelsson 17 bindi
Guðm. G. Hagalín 17 bindi
Árni Óla 11 bindi
Halldór K. Laxness lObindi
Ráðgert er að byggja yfir safn-
ið og hefur bókafulltrúi þegar
fallizt á nauðsyn þess. Fyrsti rík-
isstyrkurinn til nýju byggingar-
innar að upphæð 125 þús. kr. er
þegar kominn.
Frá líúnaðarsambandinu.
Ræktunarframkvæmdir í sýsl-
unni á árinu 1964 voru svipaðar
og árið áður, nema framræsla
var mikið meiri en þá.
Nýræktin var alls 190 ha.
Girðingar 24 km. Heyhlöður
4291 m3.
Grafnir voru alls 86.3 km í
opnum skurðum og upp úr þeim
mokað tæpum 300 þús. m3 og er
það meiri skurðgröftur en
nokkru sinni fyrr á einu sumri.
Unnið var með nýjum lok-
ræsaplóg Eggerts Hjartarsonar
um mánaðartíma sl. haust og
með honum gerð lokræsi sem
eru 161 km að lengd, megnið af
þeim er í beitilöndum.
Sumarið var mjög hagstætt til
framkvæmda.
Margar af vinnuvélum B.S.H.
voru að verki frá aprílbyrjun þar
til í nóvember, og er það lengri
vinnutími en í flestum árum.
Búnaðarsambandið mun á
þessu ári kaupa nýja skurðgröfu,
er kemur til starfa í júlí. Er það
vél af Pristmangerð. F.r hún
með venjulegri dragskóflu og
einnig með föstum armi vökva-
drifnum er hentar vel í fast og
bratt land. Einnig er hún með
útbúnaði til að hreinsa upp úr
og dýpka gamla skurði.