Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2015, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 21.01.2015, Qupperneq 26
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Eftir útskrift frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2011 fór Kristján Eld-járn í fjögurra mánaða heimsreisu til Ástralíu, Malasíu og Taílands með þremur vinum sínum. Hann heillaðist svo af Ástralíu að þegar hann kynntist núverandi unnusta sínum, Leifi Guðna Grétarssyni, var hann strax ákveðinn í að sýna honum þetta stórkostlega land. Rúmu ári áður en Leifur lauk námi í líftækni frá Háskólanum á Akureyri ákváðu þeir að fara í heimsreisu og hófu að safna fyrir henni. Ferðalagið tók rúma fjóra mánuði að sögn Kristjáns og þótt megináherslan hafi verið á Ástralíu heimsóttu þeir einnig Taíland, Nýja-Sjá- land, Indónesíu, Singapúr og Fídjíeyjar. „Eftir nokkurra daga stopp í París flug- um við til Ástralíu. Fyrsti áfangastaður okkar var borgin Cairns sem er norðar- lega á austurströndinni. Þaðan keyrðum við suður til Melbourne á litlum húsbíl. Ferðalagið tók tvo mánuði og með í för fyrstu vikurnar var vinkona okkar Sig- ríður Jódís Gunnarsdóttir.“ Tíminn í Ástralíu var mikið ævintýri að sögn Kristjáns. „Við skoðuðum regn- skóga, snorkluðum í stærsta kóralrifi heims og skoðuðum fjölbreytt dýralífið. Á Whitsundays Islands sáum við eina fallegustu strönd sem við höfum séð og við heimsóttum Íslendinginn Ásgeir Þorsteinsson sem hefur verið búsettur í bænum Dubbo í 30 ár.“ Þaðan lá leiðin til Sydney en áður hafði Sigríður yfirgefið þá og flogið heim. Meðal fleiri eftirminnilegra áfangastaða auk Melbourne nefnir Kristján höfuðborg landsins, Canberra, og eyjuna Tasmaníu sem liggur við suð- austurodda landsins. Næsti viðkomustaður var Nýja-Sjá- land þar sem þeir dvöldu í viku og skoðuðu meðal annars hina sögufrægu Waitomo-hella sem frægir eru fyrir sjálf- lýsandi orma sína. Sú ferð var einn há- punktur ferðarinnar að sögn Kristjáns. Hápunktur ferðalagsins að sögn Kristjáns voru þó Fídjieyjar sem var algjör draumur að hans sögn. „Við dvöldum á lítilli eyju sem heitir Waya og gistum í litlum kofa á ströndinni. Kóral- rif var í flæðarmálinu og hlýr sjórinn var yndislegur. Ekki skemmdi svo fyrir að sofna við seiðandi öldugjálfrið utan við gluggann á kvöldin. Fólkið á eyjunni var einnig yndislegt og það var þeim að þakka að okkur leið svona vel og berum svo hlýjar minningar til dvalarinnar.“ Eftir frábæra dvöl á Fídjíeyjum tók við önnur fallega eyja, Balí í Indónes- íu. Þaðan sigldu þeir til Singapúr og dvöldu í nokkra daga áður en þeir héldu til höfuð borgar Taílands, Bangkok, þar sem foreldrar Kristjáns slógust í hóp- inn. „Stefnan var fyrst sett á Koh Tao sem er eyja í suðurhluta landsins en þar dvöldum við í viku í góðu yfirlæti. Fólkið var yndislegt og maturinn gerði dvölina ógleymanlega. Næst sigldum við til Koh Samui sem er önnur falleg eyja stutt frá. Þar fórum við á fílsbak, skoðuðum fallega staði á eyjunni og borðuðum meiri góðan mat. Eftir Koh Samui var stefnan tekin upp á megin- land Taílands þar sem við flugum yfir til Malasíu og þaðan aftur til Ástralíu.” Foreldrar Kristjáns voru enn með í för enda var ætlunin að heimsækja Ás- geir aftur en hann og pabbi Kristjáns höfðu ekki hist í mörg ár. Gamlárs- kvöldinu var eytt í Sydney og var sá dagur sérstaklega eftirminnilegur enda var stórkostleg flugeldasýning um kvöldið sem Kristján segir að hafi verið sú allra flottasta sem þeir hafi upplifað. Nokkrum dögum síðar hélt hópurinn heim á leið og segir Kristján að þá hafi verið komin smá heimþrá í þá báða. „Þeir staðir sem við heimsóttum voru mjög ólíkir og því vorum við alltaf að upplifa eitthvað nýtt. Það er algjörlega ómetanlegt að fá að kynnast menningu allra þessara staða sem við heimsótt- um, hitta fólkið og sjá hvernig það lifir. Margt af þessu er svo fjarri því sem við erum vön að maður gerir sér ekki al- mennilega grein fyrir því. Eftir upplifun sem þessa gerir maður sér grein fyrir því hvað maður hefur það rosalega gott og maður verður þakklátur fyrir allt sem maður hefur. Það er svo sannarlega ekki sjálfgefið.“ ■ starri@365.is SOFNAÐ VIÐ SEIÐ- ANDI ÖLDUGJÁLFRIÐ HEIMSREISA Ferðalag Kristjáns og Leifs um Asíu og Eyjaálfu var mikið ævin- týri sem innihélt mikla náttúrufegurð, hlýtt fólk og frábæra flugeldasýningu. HÁPUNKTURINN Dvölin á Fídjíeyjum var hápunktur ferðalagsins. SLAPPAÐ AF Notaleg stund á 57. hæð á einu flottasta hóteli heims, Marina Bay Sands, í Singapúr. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI SYDNEY SKEMMTILEG Kristján og Leifur voru mjög hrifnir af Sydney. Þar eyddu þeir ára- mótunum og sáu um leið flottustu flugeldasýningu sem þeir höfðu upplifað. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI Save the Children á Íslandi Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac One Week Flat Minnkar þembu og Vindgang hollur kostur á 5 mín. Gríms fiskibollur 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 7 D -A 1 0 C 1 7 7 D -9 F D 0 1 7 7 D -9 E 9 4 1 7 7 D -9 D 5 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.