Fréttablaðið - 21.01.2015, Síða 52

Fréttablaðið - 21.01.2015, Síða 52
21. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24 Heimildarmyndin Óli Prik, um handboltamanninn og þjóðhetj- una Ólaf Stefánsson, verður frum- sýnd 6. febrúar. Leikstjóri hennar er Árni Sveinsson og framleið- andi er Grímar Jónsson og fylgdi Árni Óla eftir í um eitt og hálft ár við gerð myndarinnar. „Það er kannski orðum aukið að ég hafi elt hann,“ segir Árni sem hitti Óla fyrst í Katar fyrir einu og hálfu ári, þegar hann var að fara að spila sinn síðasta leik sem atvinnumaður. „Myndin fjallar um ferlið þegar hann hættir í atvinnu- mennsku eftir 17 ár, flytur til Íslands og fer að þjálfa uppeldis- félagið sitt,“ segir Árni. Myndin er ferðalag þar sem áhorfendur fá að kynnast Óla náið. Hún er einlæg, persónuleg og ekk- ert dregið undan. „Þegar maður gerir svona myndir þá er maður að stíga inn í einhvern heim, í þetta sinn íþróttaheiminn. Það kom mér helst á óvart hvað það eru miklu meiri pælingar á bak við þetta sport en ég hélt og hvað það skipti Óla miklu máli. Það var svolítið hans, með alla þessa reynslu, að dýpka leikskilning og reyna að stækka þann þátt,“ segir Árni. En hvaðan kemur þetta nafn, Óli Prik? „Í einni senu í myndinni er Óli að ræða ímynd sína sem „Óli Stef“ sem er lituð af fortíðinni og frelsið í að finna sitt annað sjálf sem hann kallar Óla Prik,“ segir Árni. Hann segir umfjöllunarefni sem þetta, fólk á tímamótum, klassískt en þegar stærsta íþróttastjarna Íslands stendur á slíkum tímamót- um getur ýmislegt óvænt gerst. „Þú ert kannski með einhverja rósrauða drauma, sem fara svo á einhvern allt annan hátt en þú hélst í fyrstu,“ segir hann. adda@frettabladid.is Ekkert dregið undan í myndinni Óli Prik Heimildarmynd um handboltamanninn Ólaf Stefánsson frumsýnd 6. febrúar. MENNIRNIR BAKVIÐ ÓLA PRIK Framleiðand- inn Grímar Jónsson, Ólafur Stefánsson og Árni Sveins- son leikstjóri. MYND/ BRYNJAR SNÆR ÞRASTARSON Enska rokksveitin The Vaccines, með Íslendinginn Árna Hjörvar Árnason á bassanum, hefur gefið út lagið Handsome. Það er fyrsta smáskífulagið af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar sem verð- ur sú þriðja í röðinni. Myndband við lagið var tekið upp í hverfinu Brooklyn í New York fyrir jólin þar sem Árni Hjörvar og félagar læra kung fu undir leiðsögn eðlu og slást svo við geimverur. „Við vildum búa til myndband sem væri léttur óður til kvik- myndalistarinnar, sérstaklega kung fu-mynda frá Hong Kong,“ sagði söngvarinn Justin Young. „Fyrir mér er tónlist skemmtun og flótti frá raunveruleikanum. Við vildum myndband sem væri framlenging af þeirri pælingu. Við vildum búa til heim þar sem við gátum leikið metnaðarfullar og stærri útgáfur af okkur sjálfum.“ Rokkararnir eru að taka upp nýju plötuna í samvinnu við upp- tökustjórann Dave Fridmann, sem hefur unnið með Weezer, The Cribs og Tame Impala. The Vacc- ines gaf síðast út EP-plötuna Mel- ody Calling í fyrra. Tónleikaferð um Bretland er svo fyrirhuguð í mars og apríl. Slást við geimverur í hressu myndbandi Árni Hjörvar og félagar í The Vaccines með nýtt lag. ÁRNI HJÖRVAR Árni Hjörvar á bassanum með rokksveitinni The Vaccines á tón- leikum í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY Þessir þrír fagmenn keppa við Jóhann á Óskarnum Jóhann Jóhannsson keppir ekki við neina aukvisa um Óskarsverðlaunin í febrúar í fl okknum besta frumsamda tónlistin. Alexandre Desplat (Franskur) Tilnefndur fyrir The Grand Budapest Hotel og The Imitation Game Ferilsskrá: 8 Óskarstilnefn- ingar (m.a. fyrir The Queen, The King’s Speech og Argo) Hans Zimmer (Þýskur) Tilnefndur fyrir Interstellar Ferilsskrá: 1 Óskar fyrir The Lion King og 9 Óskarstilnefn- ingar (m.a. fyrir Rain Man, Gladiator og Inception). Gary Yershon (Enskur) Tilnefndur fyrir Mr. Turner Ferilsskrá: 1 Óskarstilnefn- ing. Tilnefndur til Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna fyrir Another Year. „Það hefur tekið sinn tíma að safna saman öllum hljóðfærunum sem þeir munu nota,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson. Hann skipulegg- ur tónleikana Tubular Bells fyrir tvo sem verða haldnir í Háskóla- bíói í kvöld. Þar spila Ástralarnir Aidan Roberts og Daniel Holds- worth lög af frægri plötu Mikes Oldfield, Tubular Bells, og verða aðeins tveir á sviðinu. Hljóðfærin verða aftur á móti 38 talsins. Tón- leikarnir eru haldnir í tilefni 40 ára afmælis plötunnar, sem var í fyrra. Að sögn Guðbjarts verða tvö trommusett á sviðinu, auk allra hinna hljóðfæranna. Fyrirtækið HljóðX hefur safnað hljóðfærun- um saman fyrir tónleikana og m.a. fékk það „tubular bells“ að láni hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tubular Bells kom út árið 1973 og er fyrsta plata enska tónlistar- mannsins Mikes Oldfield. Hún sat á breska vinsældalistanum í 279 vikur samfleytt og er sú fyrsta sem Virgin Records, fyrirtæki auðjöf- ursins Richards Branson, gaf út. Roberts og Holdsworth hafa hlot- ið mikið lof fyrir tónleika sína úti um allan heim. Þeir eru á sinni fyrstu tónleikaferð um Bandarík- in og munu ljúka ferðalaginu hér á landi. - fb Leit að hljóðfærunum hefur tekið sinn tíma Tónleikarnir Tubular Bells fyrir tvo verða í kvöld. ROBERTS OG HOLDSWORTH Félagarnir hafa verið á tónleikaferð um Bandaríkin að undanförnu. Bókamarkaður 2015 Árlegur bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda verður 27. febrúar til 15. mars næstkomandi. Útgefendur sem vilja bjóða bækur sínar á markaðinum er bent á að hafa samband við Félag íslenskra bókaúgefenda sem fyrst, eða eigi síðar en 6. febrúar n.k., í síma 511 8020 eða á netfangið fibut@fibut.is LÍFIÐ Það kom mér helst á óvart hvað það eru miklu meiri pælingar á bak við þetta sport en ég hélt og hvað það skipti Óla miklu máli Árni Sveinsson. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 7 C -4 7 6 C 1 7 7 C -4 6 3 0 1 7 7 C -4 4 F 4 1 7 7 C -4 3 B 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.