Fréttablaðið - 25.04.2015, Side 8

Fréttablaðið - 25.04.2015, Side 8
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Frekar en að bíða eftir því að einhver færi kannski í mál fannst mönnum eðlilegt að reyna að rýmka þetta. Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri í Hornafirði. 8 BLÁSKÓGABYGGÐ „Skortur á hús- næði veldur meðal annars því að erfiðlega gengur hjá mörgum þeim sem eru í rekstri að manna laus- ar stöður til lengri tíma,“ segir atvinnu- og ferðamálanefnd Blá- skógabyggðar. „Mikill skortur er á leiguhús- næði í Bláskógabyggð á sama tíma og störfum innan helstu atvinnugreina sveitarfélagsins og nærliggjandi sveitarfélaga fer fjölgandi,“ segir atvinnunefnd- in. „Möguleikar ungs fólks, fjöl- skyldna með börn og fólks almennt sem kann að vilja flytja, búa og starfa eru með því mjög takmark- aðir, og nánast engir.“ Nefndin vill að sveitarstjórnin kanni áhuga verktaka og fjárfesta á borð við lífeyrissjóði á bygg- ingu leiguíbúða eða á kaupum á húsnæði sem þegar sé til staðar á ýmsum byggingarstigum. - gar Atvinnunefnd Bláskógabyggðar segir húsnæðisskort hamla atvinnulífinu: Litlir möguleikar fyrir ungt fólk SKIPULAGSMÁL „Það er svolítil kergja hér í samfélaginu út í þenn- an gistimöguleika,“ segir Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri í Horna- firði, þar sem bæjaryfirvöld hafa sett þrengri takmarkanir á fjölda rýma í heimagistingu en lög gera ráð fyrir. Vorið 2014 settu Hornfirðingar inn ákvæði í aðalskipulag um að í þéttbýli mætti aðeins nýta tvö rými í hverri íbúð undir heima- gistingu. Björn segist ekki vita um slíka skilmála í aðalskipulagi annarra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum geti heimagisting verið í allt að tíu rýmum fyrir sextán manns. „Menn voru hræddir um að þetta gæti verið ansi mikið inngrip í eignarrétt og atvinnufrelsi. Frek- ar en að bíða eftir því að einhver færi kannski í mál fannst mönnum eðlilegt að reyna að rýmka þetta og þess vegna hækkuðum við þetta upp í fjögur rými,“ segir Björn með vísan til þess að bæjarstjórn- in hefur nú víkkað rammann. „Menn telja lagaumhverfinu og eftirlitinu hjá löggjafanum veru- lega ábótavant og að menn séu kannski komnir út fyrir anda þessara laga frá þessum tíma. Við höfum horft upp á það hér að fólk er jafnvel að flytja út úr húsum; er skráð með lögheimili en býr ekk- ert í húsinu vegna þess að það er að leigja hvert einasta herbergi,“ segir bæjarstjórinn. Þrátt fyrir að Hornfirðingar setji enn mun þrengri skorður við heimagistingu en lög gera ráð fyrir óttast Björn ekki lögsóknir úr þessu. „Þótt lögin segi tíu rými þá ættu nánast allir að geta fullnýtt það húsnæði sem þeir eiga með fjór- um rýmum. Við erum að horfa á þá staðreynd að 97 eða 98 prósent húsa á Hornafirði eru með þrjú til fimm svefnherbergi. Þannig að þetta á í raun að hafa sára lítil heft- andi áhrif á þá húseigendur sem vilja nýta núverandi húsnæði sitt,“ segir Björn. Að sögn bæjarstjórans hefur ekki orðið mikil uppbygging á nýjum gistimöguleikum í þéttbýli á Hornafirði þótt gífurleg upp- bygging hafi orðið á gistirými í sveitarfélaginu í heild. „Margir telja eðlilegt að ferðaþjónustan byggi sjálf en taki ekki íbúðarhús- næði undir sig,“ segir hann. Angi af þessu máli er ný sam- þykkt bæjarstjórnar um niður- fellingu á gatnagerðargjöldum á íbúðalóðum sem þegar eru til- búnar á Höfn. Björn segir að fyrir þá sem vilja koma á Höfn sé tor- velt að fá leiguhúsnæði. „Þessi niðurfelling er háð því að ekki má nýta húsnæðið næstu þrjú ár í ferðaþjónustu – nema þá að greiða gatnagerðargjöldin,“ segir bæjar- stjórinn. gar@frettabladid.is Heimagisting vekur gremju á Hornafirði Þótt Hornafjörður sé eina sveitarfélagið með þrengri skorður við heimagistingu en lögin heimila óttast bæjarstjórinn ekki málsóknir eftir rýmkun á skilmálunum. STJÓRNSÝSLA Skuldahlutfall Kópa- vogsbæjar er nú komið undir 150 prósenta lögbundið viðmið en skuldahlutfall bæjarins stend- ur í 148 prósentum. Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæj- ar sem lagður var fram á bæjar- stjórnarfundi síðastliðinn mið- vikudag. Rekstrarafgangur bæjar- ins er 660 milljónir króna árið 2014 en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 667 mil ljóna króna afgangi. Þá námu tekjur Kópavogs 22,7 milljörðum króna en gert var ráð fyrir 22 milljarða króna tekjum. Eigið fé bæjarins er 16,1 milljarður króna. „Það er ánægju legt að afkoma bæjarins er í samræmi við þær áætlanir sem lagðar voru fram, skuldir halda áfram að lækka og skuldahlutfall sömuleiðis. Hins vegar er því ekki að neita að miklar hækkanir launaliða hafa sín áhrif, sem meðal annars birtist í því að útreikningur á lífeyrisskuldbind- ingum hækkar um 440 milljónir umfram áætlanir,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. - srs Skuldahlutfall Kópavogsbæjar er komið niður fyrir 150 prósenta viðmiðið: 22 milljarða tekjur hjá Kópavogi VIÐ GULLFOSS Störfum fjölgar í Blá- skógabyggð en illa gengur að manna þau vegna húsnæðiseklu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HÖFN Vaxandi fjöldi ferðamanna sækir Hornafjörð heim þar sem menn hafa jafnvel flutt úr húsum sínum til að geta selt gist- ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÁRMANN KR. ÓLAFSSON HANDVERK „Mér fannst þörf á að skrásetja söguna, ég talaði til dæmis við prjónakonur á níræðis aldri því mér fannst mikilvægt að þeirra þekking glataðist ekki,“ segir Ásdís Ósk Jóelsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, sem nýlega gerði rannsókn á uppruna, hönnun og þróun íslensku lopapeysunnar. Ásdís segir að hjá þessum prjónakonum hafi hraðprjón verið mikil- vægt. „Þetta snerist um að geta fjöldaframleitt. En þannig festist lopa- peysan í sessi,“ segir Ásdís. „Lopapeysan er mikilvægur hluti tækni- byltingar útflutnings og hönnunarsögu þjóðarinnar. Hún hefur marga snertifleti við þjóðina sem aldrei áður hefur verið fjallað um.“ Í skýrslu Ásdísar um rannsóknina kemur fram að stofnun kvenna- skóla, húsmæðraskóla og Handíðaskólans auk öflugrar starfsemi Heim- ilisiðnaðarfélags Íslands og skrifstofunnar „Íslenzk ull“ á fyrri hluta 20. aldar hafi lagt grunn að listiðnaðinum og almennri prjónaþekkingu. Handavinna var gerð að skyldunámsgrein í grunnskólum árið 1936. Árið 1967 voru svo fluttar út um 40-60 þúsund lopapeysur, og þá varð vörumerkið „Íslensk lopapeysa“ til. - sgg Ásdís Jóelsdóttir skrásetur þekkingu eldri kynslóðarinnar: Lopapeysan mikilvæg í sögunni LOPAPEYSUR Mikilvægt að skrá sögu peysunnar. LÖGREGLUMÁL Sprengjusveit Land- helgisgæslunnar aftengdi sprengju úr sprengjuvörpu við Hafravatn í gær. Útivistarfólk hafði samband við lögreglu í gær eftir að hafa fundið torkennilegan hlut. Sérfræðingar ríkislögreglustjóra telja sprengjuna frá tímum seinni heimsstyrjaldar. Æfingar með sprengjuvörpur voru í kringum höfuðborgina. Lögregla minnir fólk á að tilkynna um slíka hluti strax en röng meðhöndlun þeirra gæti reynst afdrifarík. - srs Talin vera úr seinna stríði: Fundu sprengju við Hafravatn Háskólatorgi www.boksala.is s. 5 700 777 www.facebook.com/boksala Útsala 30-70% afsláttur M YN D /A N D RÉ S KO LB EI N SS O N AKUREYRI Skjólstæðingum Afls- ins á Akureyri, samtaka um heimilis- og kynferðisofbeldi, fjölgaði á síðasta ári. 115 nýir skjólstæðingar komu til Aflsins í fyrra sem er fjölgun um rúm- lega 3,5 prósent á milli 2014 og 2013. Einkaviðtölum fjölgaði um fimmtung og voru þau í fyrra um eitt þúsund. Fjöldi einkaviðtala hjá Aflinu hefur þrefaldast frá árinu 2009. Aflið er systursamtök Stíga- móta. - sa Skjólstæðingum fjölgar: Þreföldun hjá Aflinu frá 2009 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 9 -F 9 B C 1 7 6 9 -F 8 8 0 1 7 6 9 -F 7 4 4 1 7 6 9 -F 6 0 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.